Náttúrufræðingurinn - 1931, Page 3
ZNÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 1D31 49
H e k 1 a .
Næst sést Selsunclslœlair; fjær, suðurbrún Suartahrauns; yzt til
hægri, Selsundsfjall, og fram undan þvi, Botnafjall; fyrir miöju,
Helela; vinstra megin við hana, Rauðölduhnúkur, og bak við hann
sést ofan á Litlu-Heklu. Milli Botnafjalls og Rauðölduhnúks sést hraun-
fossinn í Stóraskógsbotnnm. Hösleuldarbjalla ber við miðja Heklu.
(G. Kjartansson teiknaði 1930).
Frá Heklti og Hekítihratmtím.
Eftir Guðmund Kjartansson frá Hruna.
í vor sem leið fékk eg styrk af Menningarsjóði til náttúru-
fræðilegra athugana í Hekluhraunum. Hafðist eg við þar í
hraununum um mánaðartíma í sumar, í júlí og ágústmánuði.
Var ætlun mín aðallega að greina í sundur helztu hraunin,
eftir því, sem eg gæti, og teikna uppdrætti af þeim. Eg var
óheppinn með veður, því að einlægar þokur voru um þessar
mundir í fjöllum og hálendi umhverfis Heklu. Veðráttan tafði
því mjög fyrir mér og gerði mér starfið mun erfiðara. — Eg
gerði uppdrátt af nágrenni Heklu og markaði fyrir takmörk-
un hrauna þar í grend. En uppdráttur minn er enn ekki nægi-
lega fullkominn eða glöggur á sumurn stöðum. Vænti eg að
geta fengið tækifæri til þess síðar að auka hann og bæta í hag-
stæðara veðri. Sérstaklega þarf að umbæta kortið af norð-
austurhluta þessa svæðis, af Lambafit og þar í kring, því að
það svæði hefir ekki verið kortlagt af herforingjaráðinu
4