Náttúrufræðingurinn - 1931, Qupperneq 10
56
NÁTTÚRUFR-
ast liggur hryggur þessi yfir dal einn þveran, sem fyrir gosið
hefir opnast til útnorðurs, út í dalinn milli Valahnúka og norð-
urenda Heklufjallgarðsins. — Hraunið hefir runnið stutt upp
eftir dalnum og hallar yfirborði þess all mikið frá sprungunni,
til austurs. Tveir lækir, sem renna eftir dalnum, stíflast nú af
hrauninu og mynda dálitla tjörn við enda þess. Rennsli Nýja-
hrauns sést glögglega á uppdrættinum; það hefir einkum
runnið í norður. Endi þess undir Valahnúkum er h. u. b.
460 m. y. s.
Framh.
Sykttrsýkí og ínsúlín.
Kovetni þau, er vér fáum með fæðunni, (t. d. mjölvi í
mjöli og kartöflum, mjólkursykur, reyrsykur o. fl.) verða
að breytast í einfaldar sykurtegundir, (t. d. svonefndan
„mcnosaccharida“ (CnHoO,,) samsvarandi þrúsykri) til þess að
geta borist með blóðinu og orðið líkamanum að notum. — En þessi
kolvetnissambönd eru, svo sem kunnugt er, nokkurskonar eldsneyti
handa líkamanum, er „brenna“ eða breytast í líffærunum, líkt og'
eldsneyti í eldi, — taka í sig súrefni og breytast um leið í kolsýru
(CO^) eða vatn (H-O), og berast í því formi burt úr líkamanum
aftur, ýmist með útönduninni gegnum húðina (sem útgufan eða
vatn í svitanum) eða nýrun (t. d. vatn í ]>vaginu). — En við þessi
efnaskifti eða brennslu framleiðist líkamshitinn og sú orka, er
líkamnn ]>arfnast til allra starfa.
Fái heilbrigður líkami meira af kolvetnum, en hann
þarfnast til orku- og hitaframleiðslu í svipinn, getur hann
geymt leifarnar sem forða til notkunar síðarmeir. — Sumt
breytist í svonefnt glykogen, og geymist í lifur og vöðvum, uns
það breytist aftur í sykur og brennu þegar líkaminn þarfn-
ast. — Sumt breytist í fitu, er á marga geymslustaði í lík-
amanum, og fer til hita og orkuframleiðslu, þegar með þarf.
Það ber við að ólag er á efnabreytingum kolvetnanna í
líkamanum. Þó mjölvinn og hinar samsettu sykurtegundir
meltist og breytist í einfaldar sykurtegundir (þrúgusykur), sem
líffæin geta venjulega notfært sér til brenslu, ])á getur stundum
farið svo, að líkamanum verði sykur ])essi ekki að notum; hann