Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1931, Page 12

Náttúrufræðingurinn - 1931, Page 12
58 NÁTTÚRUFR. dýranna, þannig, að þeir væru í fullu sambandi við blóðæðar, nytu næringar, og sellurnar gætu haldið Jjroska. Að því búnu skáru ]>eir burtu úr þeim þeirra eigin briskirtla. — En dýr þessi fengu engan vott af sykursýki. — Af þessu var það ljóst, að eigi var það útilokun brissafans frá þörmunum, sem orsakaði sykursýkina. Rússneskur maður, Ssoboleiv, sannaði það 1902, að Langer- hans-eyjarnar ættu hér hlut að máli. Hann batt fyrir leiðslu- pípur brissafans til þarmanna á all-mörgum tilraunadýrum. — Er þau höfðu lifað þannig á sig komin all-langan tima, lét hann slátra þeim. Kom þá í ljós, að selluvefir þeir í brisinu, er fram- leiða brissafann, er flýtur til þarmanna, var eyðilagður, — en Langerhans-eyjarnar voru enn í góðu gengi. Enda höfðu til- raunadýrin elcki fencjið sykursýki. Þar að auki höfðu menn nú rannsakað briskirtla margra manna, er höfðu haft sykursýki, og beðið bana af hennar völd- um eða öðrum orsökum, og fundið, að Langerhans-eyjarnar voru ýmist með glöggum sjúkdómseinkennum eða miklu færri en eðlilegt var talið. Samkvæmt ofansögðu mátti ]>að teljast sannað, að Langer- hans-eyjarnar í brisinu framleicldu eitthvert líffæralif („hor- mon“), er væri vörn cjecjn sykursýki, og styddi að |>ví á einn eða annan hátt, að sykurinn breyttist á eðlilegan hátt í líkam- anum, og kæmi að notum, sem orku- og hitagjafi. Nú voru menn búnir að komast fyrir orsakir sjúkdómsins, eftir því sem unnt var. En þá var eftir að finna meðal, til að lækna hann. — Þá var hendi næst, að reyna ])á aðferð, að ná hreinu ]>ví lyfi er brisið framleiddi gegn sykursýkinni, og nota það sem lyf handa ]>eim, er ]>jáðust af sýkinni. Fengust ýmsir við tilraunir í ]>essa átt á fyrstu tugum ]>essarra alda. Frakk- neskur lífeðlisfræðingur, Gley að nafni, komst einna lengst; honum tókst að ná vökva úr briskirtlum, er nokkuð virtist draga úr sykursýki á tilraunadýrum. — En tilraunirnar voru svo vandasamar og fjárfrekar, að hann varð að leggja árar í bát. Þá komu hinir auðugu Ameríku-menn til sögunnar, sem í engu ]>urftu að spara fé við rannsóknastofnanir við háskóla sína. Ungur læknir í Kanada, að nafni F. G. Bantincj, tók tilraun- ir þessar upp 1921. Fékk hann í félag við sig annan ungan lækni, C. Ii. Best, og fengu þeir að gera tilraunir sínar í rannsókna- stofu háskólans í Toronto. — Gerðu þeir tilraunirnar á hund- um. Þeir bundu fyrir brisleiðslupípurnar til þarmanna á all-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.