Náttúrufræðingurinn - 1931, Blaðsíða 16
62
NÁTTÚRUFR-
öld eftir að sjúkdómurinn varð kunnur, tókst mönnum að sigr-
ast á honum eða fjötra hann svo, að hann ekki lengur getur tal-
ist alvarlegt eða dauðhættulegt mein.
G. G. B.
r
Islenzktsr fosfórsýrtíábtírðtir.
Fosfórsýra (P-Or,) er eitt af þeim steinefnum, er jurtirn-
ar geta eigi án verið, ef þær eiga að ná eðlilegum þroska. í ís-
lenzkum moldarjarðvegi, sem rannsakaður hefir verið (ca. 100
sýnishorn), hefir verið að meðaltali 0,16% af fosfórsýru, og í
þeim sýnishornum, sem bezt hafa reynzt, um 1%, en í öðrum
sýnishornum ]iaðan af minna, allt niður í 0,03%. — Fosfórsýran
gengur til ]>urða í ræktaðri jörð, ]>ar sem gróðurinn er sleginn
eða tekinn upp og fluttur burtu, nema fosfórsýru sé bætt í jarð-
veginn með áburði. í kúamykju blandaðri kúaþvagi, sem hér
hefir verið efnagreind, hefir verið 0,08% af fosfórsýru en í ó-
blandaðri mykju 0,13% og í sauðataði 0,21%. í erlendum fosfór-
sýruáburði tilbúnum (superfosfat), sem hér hefir verið reynd-
ur, hefir verið 17—18% af fosfórsýru.
í Mókollsdal í Strandasýslu, þar sem bleikjan eða postulíns-
leirinn finnst, sem sagt var frá í síðasta hefti Náttúrufræðings-
ins, hefir fundizt leir, sem er óvenjulega auðugur af fosfórsýru.
Dr. Gruner, sem lét reyna postulínsleirinn úr Mókollsdal, segir
frá þessum fosfórleir, og hefir látið efnagreina hann. („Boden-
kultur Islands“).
Leirinn var tekinn nálægt sjálfu Bleikjuholtinu. Var hann
svipaður postulínsleirnum að gerð, en ýmist gulleitur eða rauð-
leitur. Efnasamsetningin var þessi: Kísilsýra (SiO-) 27.97
(33.28) %. Alúminíumoxyd (ALO;i) 18.37 (21.68). Járnoxyd
(Fe2 03) 22.33 (26.55). Kalk (Ca O) 0.33 (0.39). Magníum (Mg
O) 0.94 (1.12). Kalí (K2 O) 0.04 (0.05). Natron (Na2 O) 0.29 0.35)
SO;i 1.66 (1.98). Brennisteinn (S) 0.06 (0.07). Fosfórsýra (P2Or.)
12.30 (14.64). Glæðutap 15.77. — Tölurnar utan sviganna sýna
hundraðshluta ( %) efnanna í leirnum með þeim raka, sem í honum
var, en tölurnar í svigunum hlutföll efnanna í leirnum, raka-
lausum. —
Samkvæmt þessu voru 12.30—14.64% af fosfórsýru í leirn-