Náttúrufræðingurinn - 1931, Síða 3
ÍÍÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 1931 gg
Silf urref ur.
(Refamóðir á Bjarmalandi).
RefSrnír á Bjarmalandí.
Eg er nýkominn frá Bjarmálandi; ekki því Bjarmalandi,
þar sem Örvar-Oddur barðist við tröll og fjölkunnugar þjóðir og
vann sér frægðarorð, heldur frá Bjarmalandi við Laugalæk á
norðanverðum Kirkjusandi. — Þar býr og hefir búið í mörg
ár Ewil RoJcstad austmaður. Hefir hann tekið tryggð við ís-
lenzkan búskap, talar Vel íslenzku og hefir samið sig að íslenzk-
um há'ttum. -— Hann hefir numið þar land og bygt sér bæ, að sið
hinna fornu landnámsmanna. í búskaparlagi hans er ýmisskonar
nýbreytni og fjölbreytni, sem ber vott um það, að hann styðst
v’ð tveggja þjóða reynslu í framkvæmdum sínum.
Húsdýrin, eða kvikfénaðurinn á Bjarmalandi er nokkru fjöl-
breyttari en almennt er í sveit. Rokstad hefir bæði kýr, hesta,
sauðfé, hund, kött og svo hænsni í hundraðatali. — Svo bætast
refirnir við, sem mest koma við þessa sögu, og eru að verða aðal-
þáttur búsins.
Rokstad hefir líka klakið út og alið upp lax, urriSa, bleilcju
og sleppt seiðunum í Elliðavatn. — Ilefir silungsveiðin marg-
faldazt í vatninu síðan hann fékk það á leigu. Auk þess hefir
hann flutt inn og klakið út hrognum vatnalcarfa (Cyprínus car-
pio) og nokkurra annara erlendra fiska, sem þróast í Noregi
(t. d. Coregonus lavaratus og Tinca vulgaris) og sleppt seiðun-
5