Náttúrufræðingurinn - 1931, Side 5
NÁTTÚRUFR.
67
hefir þau í einfaldri girðingu. Hafa þau eignast 5 yrðlinga, og
una sér vel.
Þessi 60m2 reitur er bújörð tófuhjónanna. Þar eru ])au lokuð
inni árið um kring, og hafa ekki samneyti við tófur í nágranna-
búum. Þangað er þeim færður maturinn. í febrúarmánuði, eða
snemma í marz makast þær og gengur læðan með í ca. 52 daga.
Læðan leggur síðast í marz eða apríl og þær yngri stundum ekki fyr
en í maí. Steggurinn er skilinn frá læðunni 2—3 vikum áður en
hún leggur, og er lokaður inni á reit sínum, þangað til yrðling-
arnir eru orðnir 4 vikna, sér hann á meðan allt, sem fram fer
heima hjá konu sinni. Meðan hún er að ala yrðlingana, smakkar
hann varla mat, en er eins og á nálum og sífeldum hlaupum
meðfram girðingunni, og síkallandi (gaggandi) heim til sín, eins
og hann sé að spyrja, hvernig líði. Þegar hann heyrir ýlfrið í
yrðlingunum, sést það greinilega að hann hefir ríka löngun til
að sinna um þá og gefa þeim mat. Er það mikill fagnaðardagur,
þegar honum er sleppt til fjölskyldunnar. Eftir það stjanar hann
við yrðlingana með mörgu móti, slítur í sundur fyrir þá fæðuna
og matar þá eins og dyggasta barnfóstra.
Rokstad elur tófurnar og yrðlingana á fiski, hrossaketi, kinda-
keti og hvalketi, fuglum og mjólk og yrðlingunum eru stundum
gefin egg til matbætis. — Saltan mat þola refirnir ekki. Fæðis-
kostnaður hjónanna beggja til samans hefir orðið um 200 kr. á
ári, enda hefir hann orðið að grípa til þess að gefa þeim nýtt
kindakjöt að sumrinu, meðan það var selt á 1 kr. pundið. — 1
sveit, þar sem selveiði er, fuglatekja eða fiskiföng, mundi fæðið
verða mun ódýrara, því að egg, mjólk og nýtt ket er þar miklu
ódýrara en hér í Reykjavík. Telur Rokstad líklegt, að fæðiskostn-
aður á par myndi verða þar um 120 kr. á ári.
Hver er svo arðurinn af þessum tófubúskap? Þar kemur
tvennt til greina: Sala yrðlinga sem stofndýra, handa þeim, sem
koma vilja á fót tófubúum, og sala skinnanna. Talið er, að hver
tófuhjón eigi yrðlinga í ca. 10 ár, og fæði að meðaltali 3—4 yrð-
linga á ári. Hingað til hefir verð stofndýra verið 1000—1500 kr.
Er það álitlegur arður af bústofni, þó það sé í byrjun. — Að vísu
má búast við að sala stofndýra minnki, þegar fram í sækir og
tófuræktin hefir náð mikilli útbreiðslu. — Enn þá er mikil eftir-
spurn eftir stofndýrum, og Norðmenn hafa í þessu, sem öðru
verið fljótir til að átta sig, á þessu hagsýnismáli, og verið fljótari
til en flestar aðrar Evrópuþjóðir að koma upp refabúum, og
því notið mikils hags af stofndýrasölu.
5*