Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1931, Side 16

Náttúrufræðingurinn - 1931, Side 16
78 NÁTTÚRUFR. ast í júní eða fyrst í júlí. Á hún oft 10—14 egg á stærð við æðar- egg, hvítgul að lit. Mér finnst bezt við eiga að velja önd þessari íslenzkt heiti í samræmi við hrafnsandarnafnið, og sting því upp á, að hún verði nefnd korpönd (korpur = hrafn, sbr. Korpúlfur = Hrafnúlfur). G. G. B. Sjóíaugm á Reykjanesí. Sjólaug þessi er þegar orðin mörgum kunn síðustu árin, síð- an ferðafólk fór að leggja leið sína út á Reykjanes. Þar geta menn tekið bað í sjó, sem er álíka heitur og við baðstaðina á Ítalíu og Suður-Frakklandi við Miðjarðarhaf. Þessar volgu sjávaruppsprettur koma fram í hraunjaðri bak við Valahnúka- möl, 1—200 m. frá sjó. — Þar hefir myndast mjótt lón bak við malarkambinn, er hækkar í við flæði. 1 og við norðurenda þess koma uppspretturnar fram. Streymir volgur sjór þar í lónið og verður laugin þar 17—20° (C.) heit. Sunnar í lóninu er sjór- inn mun kaldari, og í syðsta hluta þess, eigi heitari en sjórinn við ströndina (ca. 10°). — Árið 1928 sprengdi Ólafur Sveinsson vitavörður op á hraunið norðanvert við lónið, og kom þar niður á volgar uppsprettur; gjörði hann þar þró í hrauninu, sem má synda í um flæði og hálffallinn sjó, og þakti yfir, svo þar er komið baðhús, sem nota má, hvernig sem viðrar. í október síðastl. haust (6.) mældi eg hitann, bæði í laugar- húsinu og aðaluppsprettunni í norðurenda lónsins. Er fyrsta mælingin gerð, þegar aðfall var að byrja. kl. 3 kl. 3,30 kl. 4 kl. 4,30 í laugarhúsi 28-28,1° 27,8' 27,5° 26,5° í aðaluppsprettu í lóni 19,7° 20,1' Þegar kl. var 4, var svo hátt orðið í lóninu, að eigi varð kom- ist að aðaluppsprettunni til að mæla hitann. í dálitlu keri, ofan- vert við grjótgarðinri, austanvert við lónið, var hitinn kl. 414 21° (C.), og í uppsprettu undan grjótstíg frá túnjaðrinum fram á grjótgarðinn, 25°. Lofthitinn inni í laugarhúsinu var 17°, en lofthitinn úti 5—6°. Því miður var selta sjávarins í uppsprett- unum ekki mæld, en eg tel líklegt, að hún sé hin sama og í sjón- um við ströndina.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.