Náttúrufræðingurinn - 1963, Síða 4
146
NÁTTÚR UFRÆÐINGURINN
tíu árin. Nöfn þau, er notuð eru í Botany of Iceland (skammstafað
B.I.), eru sett með í sviga, ef önnur nöfn eru notuð hér en þar.
Hvað viðvíkur systematík og latneskum heitum, er liér stuðst við
Illustrated Moss Flora of Fennoscandia, en fyrsta bindi þess rits
kom út 1954, og er áætlað að síðasta bindið komi út 1964, og er
það því nýjasta rit um skandinaviska mosa, en nær allar íslenzkar
tegundir af þessum ættbálkum finnast í Skandinavíu. Ég get hér
nokkuð um útbreiðslu hverrar tegundar, svo að þeir, sem áhuga
hafa á mosum landsins, geti nokkuð áttað sig á, hvaða tegundir
þeir geti lielzt átt von á að finna. Frekar lítið er vitað um tit-
breiðslu einstakra tegunda, og er því ekki öruggt, að það, sem liér
verður sagt um hana, reynist að öllu leyti rétt. Ekki eru hér lýs-
ingar á tegundum eða vaxtarstöðum þeirra, slíkt verður að bíða
betri tíma.
Til þessara þriggja ættbálka til samans munu teljast um það bil
14% allra íslenzkra mosategunda.
POTTIALES.
íslenzkir mosar af þessum ættbálki tilheyra tveim ættum, Iin-
calyplaceae og Pottiaceae. Ættkvíslin Encalypta er eina ættkvísl
fyrri ættarinnar, en allar aðrar ættkvíslir ættbálksins teljast til
síðari ættarinnar. Flestar tegundir þessa ættbálks vaxa í lítt grón-
um jarðvegi, á berri mold, á steinum, þar sem jarðvegur hefur
safnast fyrir, í klettasyllum og lóðréttum klettabeltum, á mjúku
bergi, á steyptum veggjum og öðrum álíka stöðum, en einstaka
tegundir finnast þó jafnframt á gróðurmeira landi. Tegundir, sem
tilheyra jaessum ættbálk, eru í Botany of Iceland númer 3—8, 53—
73 og 106-108.
1. Encalypta streptocarpa Hedw (E. conlorta í B.I.) er getið frá
Búðahrauni í B.I., og síðan er hún fundin í Austurgili í A.-Skaft.
af Eyþóri Einarssyni, og ég hef fundið liana í Grundarfirði á Snæ-
fellsnesi.
2. E. procera Bruch, hefur ekki verið getið héðan áður. Hana
hef ég fundið á tveim stöðum í nágrenni Reykjavíkur, árið 1959
í Öskjuhlíðinni og 1961 í nánd við Hafravatn.
3. E. ciliata Hedw. er nokkuð víða, einkum á S- og SV-landi,
en ekki algeng.