Náttúrufræðingurinn - 1963, Blaðsíða 18
160
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
út yfir þá brún, sem framburður barst á Tertiertímanum. Af þessu
er ljóst að efni landgrunnsins, hörðnuð setlög, er að mestu fram-
burður frá þessum tíma. Hin mikla heildarþykkt laganna byggist
m. a. á því að botninn seig jafnharðan undan setlagafarginu.
En nú hækkaði og lækkaði sjávarborð mörgum sinnum á Tertier-
tímanum. Þegar sjór stóð lágt langan tíma má gera ráð fyrir, að
hverju sinni hafi myndazt strandflötur, skorinn í þau setlög, sem
áður höfðu borizt fram. 1. mynd á að sýna Jjverskurð af landgrunn-
inu og hugsaða legu slíkra fornra strandflata. Með þetta í huga
kemur það vel til greina, að núverandi landgrunn sé í aðalatriðum
einn slíkur strandflötur, myndaður síðla á Tertiertímanum. Fram
á hann hefðu síðar borizt nokkur setlög á ísöld og við lágstöðu
sjávar þá hefðu ýmsir drættir hans mótazt, en höfuðdrættirnir væru
eldri.
Þessi skoðun styrkist, Jregar það er athugað, að utantil í land-
grunninu við austurströnd Norður-Ameríku eru víða hörð setlög
og hin yngstu þeirra, sem tekizt hefur að ná sýnishornum af, eru
frá Míósentíma. Samkvæmt Jjví kæmi til greina að álíta landgrunn-
ið myndað með sjávarrofi seint á Míósen, en þó virðist sennilegra
af ýmsum ástæðum, að Jrað hafi ekki myndazt fyrr en seint á
Plíósen.
Það á sjálfsagt langt í land, að slík innri gerð landgrunnsins, eins
og 1. mynd gefur í skyn eða enn margbrotnari mynd, verði sannpróf-
uð; til þess þarf mjög margar og djúpar borholur í gegnum set-
lögin. En þar sem olíulög hafa fundizt í landgrunninu við Ameríku
miðar slíkri könnun þó vel áfram.
Austanmegin Atlantshafsins eru víðáttumiklir l>ankar og breið
landgrunn, allt frá svæðinu suðvestan Ermarsunds og upp til Fær-
eyja og minna mjög á bankana við Nýfundnaland um dýpi og
annað. Suma Jressara banka má skýra eðlilega sem langvarandi rof
við allt að 200 m lægri sjávarstöðu: á minni bönkunum suður af
Færeyjum er afsléttun við hið lága sjávarmál alger, á næststærsta
bankanum stendur enn klettur (Rockall) upp úr sjó og á þeirn
stærsta standa Færeyjar sjállar eftir. Þetta mætti skýra vel með rofi,
sem svaraði til um 80 krn breiðs strandflatar (framburður utan til
meðtalinn). Loks er landgrunnið kringum ísland alveg sambærilegt
við slíkan strandflöt.
Aðstæður á svæðinu umhverfis og suður frá Færeyjum skýrast