Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1963, Qupperneq 20

Náttúrufræðingurinn - 1963, Qupperneq 20
162 NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN tveggja, en verður að álítast alveg án sambands við liið miklu víð- áttumeira land, sem hér var til snemma á Tertiertímanum. Ntiver- andi land varð til sem árangur a£ lyftingu takmarkaðs svæðis upp úr hinni fornu víðáttumeiri hraunasléttu, jafnframt því sem víðara umhverfi kann að hafa sokkið í sæ. Það hefur varla átt sér stað fyrr en á Míósen og sumt bendir raunar til þess, að það hafi gerzt talsvert seinna. Þannig fæst þá hámarksaldur grunnsins, þvi telja má óhugsandi að grunnið geti verið eldra en lyftingin; hún hefði að minnsta kosti mjög raskað því. Ljósari niðurstöðu verður nú reynt að fá með því að athuga nánar grunnið sjálft. Verður þá farið eftir sjókortunum, en þau gefa allgóða hugmynd um dýptarhlutföll á sjálfu grunninu, þar sem lóðanir eru þéttar. Utan við grunnið eru lóðanir sums staðar mjög strjálar, eins og úti fyrir Vesturlandi og Norðausturlandi. Aðaldrættirnir sjást þó einnig þar, enda þótt gera megi ráð fyrir að ýmislegt vanti þar enn í myndina. Á 2. mynd eru sýndar 100 m dýptarlínurnar, svo og 50 m línur (strikalínur) á sjálfu grunninu og nokkru víðar. Þetta kort er sýnt hér til yfirlits og verður að öðru leyti að vísa til sjókortanna. Til er líkan af botninum um- hverfis ísland og er ágæt mynd af því í bókinni Hafið eftir dr. Unnstein Stefánsson og skal hér vísað til hennar til heildaryfirlits yfir stærra svæði en sýnt er á 2. mynd. Landgrunnið er skýrast og reglulegast suðaustantil við landið, frá miðju Austurlandi til Eyjafjalla, og kalla ég þetta SA-svæðið. Landgrunnið hefur hér skarpa bogadregna brún á 200 m dýpi. Frá henni liggur brekka (forbrekkan), sem víða hefur um 4° halla, eða þar sem fordýpið er mikið og allt að 1100—1200 m, en hallinn minnkar niður í 11/£°, þegar kemur að Færeyjahryggnum og for- dýpið er orðið 600—400 m. Vestast er um 30 km langur kafli, þar sem halli kemst upp í 12—15°. Það er athyglisvert, hve brúnin er regluleg þrátt fyrir mikið misdýpi, sem landgrunnið rís upp af. Breidd grunnsins er um 90 km austast, en minnkar til vesturs nið- ur í eitthvað 12 km úti fyrir Dyrhólaey. Úti fyrir Eyjafjöllum breikkar grunnið aftur snögglega og mynd- ar nú Selvogsbanka með um 60 km breidd. Brúnin verður jafn- framt óskarpari og lorbrekkan hallaminni eða tæplega U/C0’ °g er það hinn ríkjandi forbrekkuhalli víðast hvar kringum landið, þar sem hægt er að ráða hann af dýptarmælingum.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.