Náttúrufræðingurinn - 1963, Page 28
NÁTTÚRUFRÆÐINGU R I N N
i(i8
Hornafjarðardjúp og Lónsdjúp liggja öll í beinu framhaldi af til-
svarandi jökulám. Breidd þeirra er 15—20 km, en dýpið aðeins 50—
100 m miðað við yfirborð grunnsins. Má af þessu sjá, að árnar hafa
flæmzt víða við nokkurn veginn kyrrstætt sjávarmál, en það bendir
eindregið til þess, að þær hafi mætt á og rutt fram tiltölulega mjúk-
um lögum, þ. e. lítt eða óhörðnuðum sand eða leirlögum.
Skaptárdjiip stefnir skáhallt til norðausturs upp að Skaptárós. Er
athyglisvert, að það liggur fram hjá ósum Kúðafljóts án þess áhrif
þaðan séu sýnileg. Hefði þó sýnzt eðlilegra að állinn stefndi ein-
mitt til Kúðafljóts, því þar hefur Skaptá sennilega einnig komið
frarn að miklu leyti áður en hraunin flæddu yl'ir Meðalland eftir
ísöld. Einkennilegt er einnig, að ekkert mótar fyrir ál í framhaldi
af Jökulsá á Sólheimasandi. Þessar staðreyndir mætti skýra þannig,
að Skaptárdjúp sé raunar framhald Héraðsfljóts og Núpsvátna, en
bæði Skaptá og Kúðafljót hafi komið fram vestar en nú og þá fyrir
það misgengi í nánd við Mýrdalinn, sem áður var vikið að.
Athyglisvert er að ekkert mótar fyrir álum í lramhaldi af Þjórsá
og Ölfusá, og verður síðar vikið að því.
Fyrir austan Lónsdjú]3 tekur við Berufjarðaráll og er þar þó naum-
ast um að ræða uppland, sem framkallað hefði stórá. Enn óljósara
verður samband álanna fram af Fáskrúðsfirði og Revðarfirði við
stórár, og ekki er auðvelt að reikna með aðgreindum jökultung-
um svo langt úti á grunninu.
Næst er að geta djúps langt úti fyrir Mjóafirði og annars beint
út frá Seyðisfirði og í sambandi við hann. Er enn síður hér en
sunnar hægt að benda á stórá eða reikna með sjálfstæðum jökul-
tungum, er skýrt geti þessi djúp. Þó er Seyðisfjarðardjúpið engu
minni dalur en þeir, sem liggja út frá Skeiðará og Jökulsá á
Breiðamerkursandi. Loks má segja um djúpin fyrir Austurlandi,
að þau eru víð og óreglulega löguð, en dýpið er svipað og sunnan-
lands, víða um 250 m. Þetta samband mikilla ála og djúpa við
fjarlæga firði og smáár nútímans er ekki auðskilið og verða frekari
rannsóknir að koma til áður en ]rví verði gerð viðhlítandi skil.
Norðar kemur Héraðsdjúp, sem gengur með yfir 200 m dýpi
alveg inn á Héraðsflóa. Er athyglisvert, að það skuli ekki hafa
fyllzt upp af framburði.
Út af Vopnafirði er enginn megináll heldur þvert á móti Vopna-
fjarðar-grunn, en grunnur áll gengur í sveig suður í Héraðsdjúp.