Náttúrufræðingurinn - 1963, Side 30
170
NÁTT ÚRUFRÆÐINGURINN
þess að áin liaíi runnið þarna út til Skjálfandadjúps, en fróðlegt
gæti verið að fá nýtt og ýtarlegt sjókort af þessu svæði. Aðstæður
sýna annars hér eins og raunar yfirleitt þar sem há ljöll ganga út
að sjó, að landgrunnið er að nokkru leyti, þ. e. innri hluti þess,
myndað með sjávarrofi eftir að fornu dalirnir þróuðust við hina
háu sjávarstöðu.
Eyjafjarðarállinn nær allt að 600 m dýpi norðvestan Grímseyjar
og er miklu dýpri en aðrir álar á grunninu. Hann kann og að vera
annars eðlis, þ. e. gjá, sbr. og að ung eldsumbrot hafa ef til vill
orðið á svæðinu Hólsgrunn—Kolbeinsey.. Sérstaða þessa áls sést og
af því, að Skagafjarðardjúp dýpkar ekkert áberandi þar sem það
sameinast honum, nær aðeins um 300 m dýpi.
Skagafjarðar- og Húnaflóadjúp hafa óvænta stefnu, sem minnir
á sprungustefnu Suðurlands. Á Innragrunni rnætast þessir drættir
og NNV-stefna Skagans og Skagafjarðar.
Sennilegt virðist, að grágrýti Skagans nái út á Skagagrunn og væri
mikilvægt að fá úr því skorið. Sé gert ráð fyrir að þetta sé rétt,
felst í því bending um það, að á landgrunnið eins og það liggur
nú fyrir megi í aðalatriðum líta sem framhald strandflatarins, er
myndaðist seint á Plíósen eða við upphaf jökultímans. Sá flötur
er siginn yzt við Eyjafjörð og sömuleiðis hallar honum út Skaga.
Yfir hann breiddust Skagahraunin, fyrst við öfuga segulstefnu, en
síðar við rétta, og er þarna sennilega um síðustu umskipti segul-
sviðsins að ræða. Landgrunnið getur hafa verið hluti af strandflet-
inum; honum hallar norður um 1 /0 úr gráðu á Skaga, eða mjög
líkt og landgrunninu.
Reykjafjarðarál vantar alveg stórá að baki og líkist að jrví leyti
ýmsum álum fyrir Austurlandi.
Út af Djúpál (ísafjarðardjúp) virðist framburðartunga teygjast
fram úr landgrunnsbrúninni. Síðar skarst hún í sundur, er Djúp-
állinn grófst frekar niður. Þessi þróun leiddi til myndunar Halans.
Grjótdreif er talin liggja Jrvert fyrir mynni dalsins, sem sker sund-
ur framburðartunguna, á 200 m dýpi. Er hún þá væntanlega étin
út úr framburðinum við tilsvarandi sjávarstöðu, þ. e. fína efnið
hefur borizt burt, en Jrað grófa orðið eftir og myndað malarkamb.
Væri fróðlegt að þetta yrði kannað nánar.
Víkurál vantar augljóst samband við upplandið líkt og Reykja-
fjarðarál. Þetta er og alveg sérstaklega áberandi um Jökuldjúpið