Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1963, Side 39

Náttúrufræðingurinn - 1963, Side 39
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 179 Enda þótt suðrænt fræ berist að sjávarströndu eða eyðisandi, er það ekki vænlegt til þroska, þar sem ekki eru sérstök vaxtarskilyrði fyrir hendi. Með tíu þúsund ára tilraunum náttúrunnar hefur landtakan aðeins tekizt hjá tiltölulega fáum tegundum. Oft sjást þó margs konar fræ í hrönnum í fjöruborðum, t. d. af strandjurt- um og störum, og væri nokkurs virði að kanna nánar þann reka. Eins væri fróðlegt að athuga flotmagn hinna ýrnsu fræja. Smá- athugun gerði ég fyrir nokkru með að geyma hvannafræ í sjó. Eftir eitt ár voru um 80% fræjanna enn á floti. Hvannafræ er að vísu vel varið korki, og er vafalítið, að margt fræ hefur minna flotmagn, en þetta sýnir þó, að fræ getur haldizt á floti í sjó nægi- lega langan tíma til jress að geta borizt milli landa. Ekki er ósennilegt, að fræmagn það, sem berst til sjávar sé mis- mikið á ýmsum tímum. Á jreim tíma, sem jökla leysti i lok ísaldar, fór sjávarborð hækkandi og gekk á gróið land. Þetta hefur aukið nokkuð möguleika á reka. Löndin risu síðan úr sæ, og á rneðan á þessari breytingu frá hæstri stöðu til núverandi sjávarmarka stóð, 2. mynd. Fræreki at húsapunti, mel og Ijörukáli. Drifted seed Of Agropyron, Elymus and Cakile.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.