Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1963, Síða 45

Náttúrufræðingurinn - 1963, Síða 45
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 185 einkennandi fyrir Vestur-íslendinga, og þeir því nokkuð frábrugðnir íslenzku þjóðinni í heild. Þannig er það einnig meðal landnema jurta á íslandi, að þær bera ekki allar fjölbreytni tegundarinnar. En þar sem íslenzku jurtirnar vaxa auk þess við nokkuð önnur skil- yrði en á meginlandinu, er ekki undarlegt, þótt nokkur útlitsmun- ur verði á. Skal þar til nefna afbrigðileg einkenni draumsóleyjar- innar, Papaver radicatum, eða augnfróar, Euplirasia. Má þó gera ráð fyrir, að á meginlandinu finnist enn í hópnum einstaklingar með íslenzku gerðinni, og það þá helzt til fjalla. Hins vegar er það athyglisvert við íslenzku flóruna, að hér skuli ekki finnast neinar einlendar tegundir eða jurtir sérstæðar fyrir landið fremur en þessi afbrigði. Sýnir þetta, hve ung flóran er hér á landi, og bendir eindregið til þess, að hér séu ekki jurtir, sem lifað hafa af ísöldina, einangraðar frá tegundum meginlandanna í kring. Þetta hafa flestir jurtafræðingar, sem fjallað hafa um upp- runa íslenzku flórunnar, gert sér grein fyrir, en lagt misjafnan skiln- ing í. Miðsvœði og miðsvœðisjurtir. Eins og fyrr er sagt, eru sumar tegundir íslenzku flórunnar bundnar við einstaka landshluta, þess vegna hafa ýmsir grasafræð- ingar ályktað, að á þeim svæðum hafi tegundin lifað af ísöldina og dreifzt þaðan lítið út. A þessum sömu svæðum vaxa og aðrar al- gengar jurtir, eða um helmingur íslenzku flórunnar, sem er dreifð- ur nokkuð jafnt yfir allt landið. Ætla mætti nú, að það væru fyrst og fremst fjalla- eða svalviðris- jurtirnar, sem einkenndu þessi svæði, og hefðu þær frekast hjarað af ísöldina, en síðan einangrazt á fjallatindum eins og frændur þeirra í Skandinavíu. En það eru ekki fjalla- og svalviðrisjurtir, sem eru einkennandi fyrir miðsvæðin. Svalviðrisjurtirnar eru einmitt að mestu dreifðar um hálendið, en láglendis- og hlýviðrisjurtirnar aft- ur á móti einangraðar. Af þessum ástæðum verður að draga þá ályktun, að fjallajurtirnar hafi einnig lifað á íslausum svæðum, en haft meiri útbreiðsluhæfileika og breiðzt örar út eftir ísöld en lág- lendisjurtirnar. Fjölgunarmöguleiki fjallajurta er hins vegar mun minni en meðal láglendisjurta og grundvöllurinn því vafasamur fyrir ályktun sem þessari. Sennilegra er, að svalviðrisjurtirnar hafi

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.