Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1963, Blaðsíða 52

Náttúrufræðingurinn - 1963, Blaðsíða 52
192 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Kápuskreyting Gísla B. Björnssonar er til augnayndis. Plastkápan er nýjung, sem Jreir læra bezt að nieta, er leita ráða bókarinnar í misjöfnum veðrum. Því miður hefur pappírsval tekizt síður en skyldi. Pappírinn er of gljúpur og hætt við, að hann Jxtli illa vos. Að lokum vil ég færa þýðanda og útgefanda Jtakkir mínar fyrir Jretta myndarlega framlag til íslenzkrar náttúrufræði. Hér á landi hefur lengi verið skortur á slíkri bók um fugla (ekki síður en um aðra flokka dýraríkisins), enda á hún þegar miklum vinsældum að fagna. Ég er ekki í neinum vafa um, að Fuglar lslands og Evrópu verður öllum íslenzkum náttúruunnendum til ómet- anlegs gagns og gamans. Megi fleiri slíkar fvlgja í kjölfar liennar. Arnþúr Gurðarsson. UNGLINGABÆKUR UM NÁTTÚRUFRÆÐI. Mikið er gefið út af bókum í landi hér, en jtó er mjög bagalegur skortur á alþýðlegum fræðslubókum náttúrufræðilegs efnis, ekki sízt bókuni við hæfi barna og unglinga, sem glætt gætu eða vakið áhuga þeirra á Jressum fræðum. Erum við að verða algjörir eftirbátar annarra þjóða í þessu. Þar eð flestir unglingar eru nú orðið stautfærir i ensku langar mig til að vekja athygli á bókaflokki, sem gefinn er út af forlaginu Weidenfeld & Nicolson ((Educational) Ltd. í Lundúnum. Þessi bókaflokkur nefnist The Young Enthusiastist’s Library (Bókasafn unga áhugamannsins) og skiptist í marga undirflokka, svo sem The Young Scientist, The Young Engineer o. s. frv. í flokknum The Young Scientist (Ungi vísindamaðurinn) eru komnar út einar 15 bækur og von er á fleirum. Fjalla Jtær um liin ólíkustu efni, alll frá gervihnöttum til erfðafræði. Þær eru um 150 bls. að stærð og nettóverð í Englandi níu og hálfur skildingur. Tvær af þessum bókum hef ég lesið. Önnur ber heitið The Crust of the Earth (Jarð- skorpan) og er eftir V. A. Firsoff, hin heitir Rocks, Minerals and Fossils (Berg, steinar og steingervingar) og er eftir W. Sheplierd. Báðar virðist mér vera skemmtileg og greinargóð lesning fyrir áhugasama unglinga og eru þær báðar skrifaðar á Jtað einfaldri og auðveldri ensku, að llestir unglingar á gagnfræða- stigi ættu að eiga auðvelt með að lesa Jtær. Þess má geta, að sama bókaforlag gefur út bækur um náttúrufræði ætlaðar 9—11 ára börnunt. Heitir ein þeirra Earthquakes and Volcanoes (Jarðskjálftar og eldfjöll) og er eftir A. Wellmann. í lienni eru tvær myndir írá íslandi, önnur af Geysi, hin frá Hveravöllum, og hefur sú meinlega villa slæðst inn í undirskrift síðarnefndrar myndar, að hún sýni eldgíga. En í heild er jtetta læsileg barnabók og líkleg til að glæða áhuga á jarðfræði. Væri sannarlega þörf á slikri bók eða svipaðri á íslenzku, Jtví ekki varðar íslenzk börn minna um eldgos og jarðskjálíta en Jtau ensku. Sigurður Þórarinsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.