Náttúrufræðingurinn - 1985, Side 12
Skeiðarársandur hækkar enn
í Náttúrufræðingnum árið 1934 (bls.
178—180) kom greinarkorn eftir Jón
Eyþórsson undir heitinu „Skeiðarár-
sandur hækkar“. Þar segir hann frá því
að Helgi Arason á Fagurhólsmýri hafi
sett koparbolta í Borgarklett (sjá
mynd) með því hugarfari að fylgjast
með hækkun sandsins. Svo segir í
greininni:
Ég gekk frá tveimur koparmerkjum í
Borgarkletti, 11. okt. 1932. Merkin eru
norðanmegin á NV-horninu. Neðra
merkið er 1 m ofan við sandleiruna, en
hitt merkið er lóðrétt upp af því, 70 cm
hærra. Mcrkin eru úr 16x65 mm sí-
völum koparnöglum. Þau ná 40 mm inn í
klettinn en 25 mm standa fram úr klettin-
um, og er þar höggið ártalið 1932 á bæði
merkin.
Ég gekk frá merki í Máfaskeri 27.
sept. 1933. Það er stálstöng 25 mm í
þvermál og 52 cm á lengd, 45 cm standa
upp úr skerinu.
Borgarklettur er 1,4 km norður af Ing-
ólfshöfða. Hann er að lengd 30 m,
breidd að austan 9 m, en að vestan 6—7
m. Hæð að vestan 7 m, en að austan 3,5
m. Hæðin er mæld frá leirunni, sem er
umhverfis klettinn. Ég ætlaði í haust að
reyna að kortleggja klettinn, en býst nú
varla við að ég hafi tíma til þess fyrst um
sinn.
Þann 11. október 1983 var ég þarna
á ferð og mældi hæðina frá neðri bolt-
anum niður á sandinn; reyndust þá
vera 12 cm frá neðri boltanum í vatn.
Þar sem vatn sást nú nokkuð víða
þarna í kring hygg ég að þessi hæð sé
nokkuð nálægt yfirborði sandsins.
Þannig hefur sandurinn hækkað þarna
um 88 cm frá árinu 1932, eða um 1,73
cm á ári að meðaltali. Nokkuð mun þó
líða þar til efri boltinn hverfur undir
sandinn.
í greininni er getið um Máfasker,
sem nú er fyrir löngu horfið enda stóð
það ekki nema 7—8 cm uppúr sandin-
um árið 1932.
Páll Björnsson
Fagurhólsmýri
A-Skaftafellssýslu
Náttúrufræðingurinn 54 (2), bls. 58, 1985
58