Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1985, Qupperneq 13

Náttúrufræðingurinn - 1985, Qupperneq 13
Einar H. Einarsson: Var melgresið fyrsti landnemi flórunnar í Mýrdal? Austanvert við Dyrhólaós í Mýrdal eru tvær samtengdar hæðir sem ná að nrestu að rótunr Reynisfjalls að vestan skammt frá sjó. Fyrir síðustu aldamót stóðu þarna tveir syðstu bæirnir á fastalandi íslands. Hellur á vestri hæð- inni, vestasti hluti hennar nefndist Hellnaskagi, en hæðin austan við bæ- inn nefndist Hellnarúst. Nú eru Hellur farnar í eyði. A eystri hæðinni stendur bærinn Garðar. Vestan við bæinn er hæðin nefnd Garðarúst, en lægðin milli hæðanna nefnist Sandskarð. Efn- ið í þessum hæðum er foksandur sem löngu er orðinn að allföstu bergi. Þar sem Dyrhólaós nær að allri hæðinni sunnanverðri allt að Sandskarði, og einnig beggja vegna að skaganum að vestan, sérstaklega þegar útfall hans austan við Dyrhólaey lokast, getur vatnsborð óssins hækkað um góðlega 4 m. Þannig getur þá drjúgan mætt á Hellnaskaganum, enda hefur hann sorfist mikið og víða myndast í bergið skútar og skvompur. Suðvestan við rústir þessara bæja er hellir í brúninni sunnan í móti sem fyrrum gekk undir nafninu Baðstofu- hellir. Ekki er hann stór og að engu veglegur, þó mun hann annar frægasti hellir í Mýrdal. Frægð sína á hann því að þakka að fyrsta veturinn sem séra Jón Steingrímsson, síðan nefndur eldklerkur, dvaldi í Mýrdal héldu þeir bræður, Þorsteinn síðar bóndi í Kerl- ingardal og Jón, til í hellinum. Það var veturinn 1756—57. Samskonar foksandsklappir og eru í þessum tveim hæðum eru einnig vest- an við Dyrhólaós og á Dyrhólaey. Þar liggja foksandsklappir á hraunlagi norðanvert á Lágeynni og norðan við hraunlagið á kafla vestast. Þessar fok- sandsklappir eru undir öllu Dyrhóla- hverfinu og móta þar allt landslag. Ýmist eru þær huldar undir þykkum gróðurjarðvegi (mold), eða jarðvegur- inn hefur veðrast af þeim, eins og í svonefndum Hvolhausum, sem standa upp úr leirunni suðaustur af Loft- salabænum, og sums staðar austast í byggðinni. Þessa myndun má rekja nokkuð samfellda allt vestur á móts við Hvolsbæi. Allvíða í sandsteininum eru göt og för líklega eftir melstangir (Elymus ar- enarius), sem sýnir, að meðan þessir foksandshaugar hafa verið að myndast Náttúrufræðingurinn 54 (2), bls. 59-62, 1985 59

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.