Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 14

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 14
voru þarna myndarlegir melhólar. Háir og fyrirferðarmiklir hólar mynd- ast oft því melurinn, ef hann er nokk- uð þéttur, veldur því að sandurinn hleður mjög ört upp hólahryggi, ef nægjanlegt efni berst að. Ekki virðist melgresi þrífast reglulega vel nema því berist árlega drjúgt magn af foksandi. Verður nú horfið frá sandsteininum vestan við Dyrhólaós þar sem ekki hefur verið gerð nema tiltölulega lítil könnun á honum, t.d. ekki kannað nema á Dyrhólaey á hvernig undirlagi hann liggur. Hellna-sandsteinninn hefur verið betur kannaður, þó mikið verkefni sé þar óunnið. Eini staðurinn sem ég hef séð á prenti að getið sé um bergmynd- un Hellnahæðarinnar er í bókinni „Með huga og hamri“ sem er safn jarðfræðidagbóka Jakobs H. Líndals, bónda og jarðfræðings á Lækjarmóti í Húnavatnssýslu og dr. Sigurður Þórar- insson jarðfræðingur bjó undir prent- un að Jakobi látnum (Menningarsjóð- ur 1964). Þar sagði Jakob frá ferðalagi um Mýrdalinn haustið 1939. Þá skoðaði hann meðal annars Hellna- skagann og umhverfi. Hann taldi berg- ið í honum vera móberg og gat þess að hann hafi á einum stað, í skúta í berg- inu, fundið moldarjarðveg milli berg- laga, og álykaði að þarna væri um að ræða leifar af gróðurjarðvegi frá hlý- skeiði milli jökulskeiða á ísöld. Þegar ég las þessa frásögn vakti það forvitni mína, en ekki varð af að ég skoðaði þennan umgetna stað fyrr en undir 1970. Mér varð fljótt Ijóst að þarna var ekki um móberg að ræða heldur sand- berg myndað úr foksandi. Greinileg för eftir melstangir er víða að finna í berginu, en litur og útlit benda ekki til að um gjóskuberg sé að ræða. Eg fann fljótlega moldarlagið í berginu og komst að því að það sést allvíða og hlaut að vera þann veg til komið að mikill aldursmunur væri á berginu, sem ofan á því liggur, og því bergi sem undir því er. Þarna hafði gróðurjarð- vegur líklega myndast ofan á neðra sandsteinslaginu og þarna verið gróið land í langan tíma. Síðan hafði fokið á gróðurinn sá sandur, sem myndar efra sandsteinslagið. Þykkur moldarjarð- vegur liggur nú þarna ofan á, þar sem gróðurlendi er. Best sér til moldarlags- ins í helli sunnan í berginu nærri því sem Hellnarústin er hæst. Hellir þessi heitir Hrossatröð og hafa hross verið tröðuð [sett í girðingu] þar áður fyrr, en skammt innan við opið hefur hrun- ið svo mikið úr þakinu að ekki væri nú þægilegt fyrir hross að vera þar inni. Innan til í hellinum er hæðarhryggur í eldra berginu undir moldarlaginu og hallar því niður beggja vegna og nær báðum megin niður á hellisgólfið, svo þarna fæst á sjötta metra langur þver- skurður af moldarjarðvegslaginu og er þykkt þess sem næst 1 metri. Lagið virðist óhaggað allt frá því að það byrj- aði að myndast og þar til sandur efra berglagsins hefur kaffært þessa grónu valllendishæð. Lagið er að engu frá- brugðið öðrum þykkum jarðvegssnið- um í Mið-Mýrdal og er með allmörg- um, misþykkum og mislitum gjósku- lögum og moldin eins og víðast frá sama tíma mjög mettuð járnsam- böndum, sem víða er vont að tálga með hnífi til að fá slétt snið. Oft höfum við dr. Sigurður Þórar- insson jarðfræðingur komið þarna, eins og á marga skoðunarverða staði í Mýrdal. Síðast þegar við vorum þarna, höfðum við mikinn hug á að komast að því hve snemma á myndunarskeiði gróðurjarðvegs í Mýrdal þetta lag hef- ur tekið að myndast ofan á sand- steininum. Það sem við bundum mest- ar vonir við að gæti komið okkur að notum var hið sérkennilega fín- kornaða, bleikleita gjóskulag, sem er 60

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.