Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 15

Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 15
nærri neðst í moldarlaginu, og annað sandkennt grænleitt gjóskulag nokkru þykkara, sem er ofarlega í moldar- laginu. í bili virtist okkur aðgengileg- asti staðurinn vera þykkt moldarrof norðan í holtinu milli Kúalágarholts og Selhryggs, nokkru austar en Þjóð- vegur-1 liggur suður með Reynisfjalli að austan. Þarna er á kafla allur mold- arjarðvegur blásinn af ísaldarmel svo að fæst mjög gott jarðvegssnið, allt frá því að gróðurjarðvegur tók að mynd- ast á melnum og fram á þennan dag. Við urðum ekki fyrir neinum von- brigðum. Þarna fundum við bæði gjóskulögin sem við leituðum að og það sem meira var, bleikleita lagið var svo að segja á sama stað þarna og í Hrossatröðinni, það er nærri neðst í moldarjarðveginum á melnum. Að því er virtist hafði þar með fengist sönnun fyrir því að gróður hafði myndast á svipuðum tíma á melnum og neðra sandsteinslaginu á Hellum. Ekki var hægt að segja að þetta eina jarðvegssnið væri sönnun fyrir því, að þetta væri fyrsta gróðurjarðvegsmynd- unin í Mið-Mýrdalnum. Síðan hef ég kannað jarðvegssnið á nokkrum stöð- um þar sem sér til grýttra mela undir þykkum moldarjarðvegi. Alls staðar þar sem ég á annað borð hef fundið bleikleita gjóskulagið hefur það verið nærri neðst í moldarjarðveginum og virðist það hafa fallið uin það leyti sem gróður hefur verið orðinn samfelldur á athugunarstöðunum. Þá kem ég að því sem ég ætlaði aðallega að vekja athygli á með þess- um greinarstúfi, því að mikil vinna er eftir, ef sæmilega á að kanna aldur efra sandsteinslagsins, og því ekki tímabært að skrifa um þessa náttúru- smíð öðruvísi en sem frumfrásögn, ef einhverjir hefðu hug á að skoða stað- inn og það sem þar má sjá. Við þær athuganir sem ég hef getið um hér að framan, lenti ég mest í að kanna mold- arlagið og efra sandsteinslagið. Ég hafði sem sé ekki gengið úr skugga um hvort leifar af melstöngum fyndust í neðra sandsteinslaginu og ekki varð af því þar til síðla sumars 1980 að við Jón Jónsson jarðfræðingur fórum í fögru veðri suður að Hellum. Svo vel hittist á að þegar við komum þangað var vatnsborð Dyrhólaóss mjög lágt, svo að við gátum skoðað neðra sand- steinslagið allt vestur á ystu klappir skagans. Það var ekki urn að villast að í laginu voru ótal för eftir melstangir, sem bæði fundust í lóðréttum og lá- réttum stellingum og svo að segja allt þar á nrilli. Nú vekur þessi könnun eftirfarandi spurningar: Var ef til vill melgresið fyrsta plantan, sem nam hér land er láglendi varð íslaust eftir síðasta jökul- skeið ísaldar? Hvaðan komu þá fyrstu melkornin, sem urðu upphaf þess mel- gresis, sem hjálpaði vindunum að skapa þessa foksandshóla, sem nú eru orðnir að föstu sandbergi? Ég hef get- ið þess að jökulurðin norðan við Dyr- hólaey liggur á bletti ofan á sandsteins- laginu, sem sannar að sandsteinninn er eldri en jökulurðin. Þar er einnig nokkurn veginn sannanlegt að urðin er leifar eftir framskrið jökuls, sem hafði verið búinn að hopa alllangt til norðurs. Því höfum við flestir, sem hana höfurn skoðað, talið líklegt að aldur jökulurðarinnar mætti rekja til Búðaskeiðsins, og ekki sennilegt að land hafi þá verið farið að gróa. Nú geng ég útfrá því að foksandurinn á Dyrhólaey og neðra lagið í Hellum sé til orðið á sama tíma. Virðast mér því sterkar líkur fyrir því að melgresið þar hafi verið fyrsta samfellda gróður- svæðið í Mýrdal eftir ísaldarlokin. Fyrir nokkrum árum, eða 1970, skrifaði ég grein í Náttúrufræðinginn um könnun mína á hugsanlegum ís- 61

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.