Náttúrufræðingurinn - 1985, Síða 17
Páll Imsland:
Úr þróunarsögu jarðskorpunnar
við sunnanverðan Faxaflóa,
sprungumyndunarsaga
I. INNGANGUR
Kenningin um landrek og tilurð
jarðskorpu á gliðnandi plötumótum,
gerir betur grein fyrir myndun, þróun
og ástandi íslensku jarðskorpunnar en
nokkurt annað tiltækt hugmyndakerfi.
Það sem hér verður útlistað um al-
mennt jarðfræðilegt ástand og þróun
skorpunnar á Suðvesturlandi er gert
innan ramma plötukenningarinnar,
seni er óneitanlega frjóasta og nota-
drýgsta heildarmynd, sem jarðfræðin
hefur átt. Á fáunt stöðum á jörðinni
tala merkin ljósar á máli þessarar
kenningar en einmitt hérlendis. Sam-
hengið í jarðfræðilegri þróun er tiltölu-
lega auðsætt hér, þó flókið sé, og sam-
band „strúktúra“ og þeirra ferla, sem
eru orsök þeirra, liggur ljósar fyrir en
almennt gerist. Veldur því bæði, að
landið er í hraðri myndun og eins hitt,
að það er gróðursnautt, svo opnur eru
yfirleitt mjög góðar í berggrunninn.
Það er vegna þessa, sem ísland gegnir
gjarnan lykilhlutverki í jarðfræði-
legum rannsóknum, er beinast að
skilningi á jörðinni í heild.
II. UM SPRUNGUSVEIMA OG
MEGINELDSTÖÐVAR OG HLUT-
VERK ÞEIRRA í JARÐSKORPU-
MYNDUN
íslenska jarðskorpan verður til í
rek- og gosbeltinu. Á Suðvesturlandi
liggur þetta belti um Reykjanes-
skagann og Hellisheiðar-Þingvalla-
svæðið í átt til Langjökuls. Framhald
þess til suðurs er sjálfur Reykjanes-
hryggurinn. Flói og Ölfus liggja á ný-
mynduðum vesturjaðri Evrópuplöt-
unnar, er rekur til austurs með u.þ.b.
1 cm hraða á ári að meðaltali. Höfuð-
borgarsvæðið liggur hins vegar á ný-
mynduðum austurjaðri Ameríkuplöt-
unnar, vestan við rekbeltið, og rekur
með líkum hraða til vesturs (Leó
Kristjánsson 1979). Landið verður því
eldra, sem lengra kemur frá rekbelt-
inu. Nýtt land er ætíð að myndast í
rekbeltunum. Það verður til, þar sem
spennuástand í jarðskorpunni veldur
því, að landið brotnar upp og myndar
langar sprungnar ræmur eða spildur,
sprungusveima. Þeir eru virkastir inn
til miðjunnar, en jaðrar þeirra og
Náttúrufræðingurinn 54 (2), bls. 63-76, 1985
63