Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 20
1. mynd. Kort af dreifingu bergmyndana við sunnanverðan Faxaflóa. Kortið er mikil
einföldun á korti Kristjáns Sæmundssonar og Sigmundar Einarssonar, 1980. A og B
sýna hugsaða legu sniðanna á 2. mynd. — Simplified map ofthe distríbution of the major
rock formations of Southwestern lceland. Strongly simplified from K. Sœmundsson and
S. Einarsson, 1980, A and B show the approximate location ofthe sections in Fig. 2.1 =
Tertiary rocks. 2 = Early Quaternary rocks. 3 = Late Quaternary gray basalts. 4 = Late
Quaternary hyaloclastites and postglacial lavas.
(1) Tertíera myndunin er elst. Hún er
gerð að mestu úr blágrýtishraunlögum
og er mynduð áður en þeir sprungu-
sveimar, sem hér er fjallað um, urðu
virkir.
(2) Árkvartera myndunin liggur ofan á
tertíera berginu. Hún er gerð úr
hraunlögum og móbergi að mestu
leyti. Hún varð til í þeim tveimur út-
dauðu sprungusveimum, Kjalarnes- og
Stardals-sveimunum, sem að ofan get-
ur og virkir voru á fyrri hluta kvarters.
Á báðum þróaðist megineldstöð með
háhitakerfi og þróuðum bergtegund-
um (Ingvar B. Friðleifsson 1973).
(3) Nútímamyndunin er gerð úr móbergi
frá síðasta jökulskeiði og hraunum,
sem runnin eru eftir að ísöld lauk.
Þetta berg hefur myndast í sprungu-
sveimunum fimm, sem kenndir eru við
Hengil, Brennisteinsfjöll, Krísuvík,
Svartsengi og Reykjanes, en þeir eru
allir virkir enn og framleiða nú jarð-
skorpu á sunnanverðu svæðinu. Þeir
hafa ekki náð þroskastigi háþróaðra
megineldstöðva.
(4) Grágrýtismyndunin er gerð úr grá-
grýtishraunum frá síðustu hlýskeiðum
ísaldarinnar. Þessi hraun Iiggja á milli
árkvarteru og nútíma myndananna.
Þau verða ekki talin tilheyra ákveðn-
um sprungusveimum. Þau eru yfirleitt
talin vera upp komin í dyngjum, en
upptök eða gígasvæði þeirra flestra eru
enn óþekkt.
Á þeim tíma, er forverar Hengils-
66