Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 33
nokkra aðskilda hraunstrauma, sem
runnið hafa frá 5 km langri sprungu
snemma á nútíma og tilheyra Náma-
fjalls-eldstöðvakerfinu (Karl Grön-
vold 1972). Þetta er apalhraun, en þar
sem það er mjög hulið vikri er illt að
rekja útbreiðslu þess. Stærsta
hraunspildan er norðan við Lúdent og
kallast Hraunbunga, hinar spildurnar
eru nafnlausar og eru allar nerna ein
norður af Lúdent. Hraunið er lítið að
flatarmáli, líklega tæpir 3 km2. Auð-
velt er að komast að hrauninu eftir
vegarslóða sem liggur frá Mývatni að
Lúdent. Islandít-hraun hefur einnig
fundist skammt norður af Hlíðarfjalli
(Karl Grönvold 1972). Það hraun
ásamt hrauninu við Lúdent eru einu
þóleiísku ísúru hraunin sem kunn eru
frá nútíma. Íslandít-hraunin eru mjög
breytileg að efnasamsetningu og er
það líklega einkenni á ísúrum
hraunum. I hrauninu við Lúdent vex
t. d. hlutfall Si02 frá 56.2% nyrst til
66.8% syðst. Hér hefur verið valið
sýni sem tekið er í nyrsta
hraunstrauminum.
Tafla II sýnir efnasamsetningu
hraunsins (Karl Grönvold 1972), og er
sýnið tekið í yfirborði þess. Hér ber
helst að undirstrika, að íslandít hefur
hærra hlutfall (prósent) af Si02, Na20
og K20, en lægra hlutfall FeO, Ti02
og P2Os en basaltískt íslandít. Þessar
steintegundir mynda íslandíthraunið:
Dílar eru plagíóklas, ágít, magnet-
ít, hypersten og ólivín.
Grunnmassinn er samsettur af
plagíóklas, klínópyroxen og málmi,
en einnig er nokkuð af gleri.
A 1. mynd (B) er sýnd smásjár-
teikning af hrauninu. Þótt dílategund-
irnar séu margar, þá eru dílar aðeins
um 1-2% af rúmmáli bergsins. Mynd-
unarröð díla er þessi: fyrst kemur
magnetít, þá ágít og hypersten, svo
plagíóklas og loks ólivín. Korn
grunnmassans eru enn minni en í bas-
TAFLA I. Basaltískt íslandít, efnagreining gerö
á sýni (NI 6241) úr hraunlagi úr Þingmúlaeld-
stööinni, SSA í Hetti, Skriðdal, Suður-Múla-
sýslu. Ný efnagreining (I. Sörensen). - Basaltic
icelandiie, new chemical analysis (by I. S0rens-
en) on a satnple (Nl 6241) of lava from Höttur
mountain in the Tertiary Pingmúli (Thingmúli)
volcanic center, eastern Iceland.
TAFLA II. Íslandít, efnagreining gerð á sýni
(NI 6999) úr nútímahrauni, skammt norður af
Lúdent og austur af Hverfjalli, S-Þingeyjarsýslu
(Karl Grönvold 1972). — Iceiandite, chemical
analysis (Karl Grönvold 1972) on a sample (NI
6999) from a Recenl lava north of Lúdent, nort-
hern Iceland.
N16241 wt.% N16999 wt%
SiOz 55.03 sío2 58.9
TiO, 2.12 TiO, 1.2
A12Ö, 13.96 ai2o. 14.9
Fe20, 4.88 Fe20, 1.7
FeO 7.67 FeO 7.3
MnO 0.27 MnO 0.19
MgO 3.03 MgO 3.2
CaO 6.60 CaO 7.1
Na20 3.54 Na,0 4.3
k26 1.31 K,Ö 0.95
P2Os 1.10 p2o5 0.22
h2o 0.72 h2o (ekki ákv.)
Alls 100.23 Alls 100.0
79