Náttúrufræðingurinn - 1985, Side 39
Kristján Sæmundsson:
Skýrsla um Hið íslenska náttúru-
fræðifélag 1983
FÉLAGAR
Skráðir félagar Hins íslenska nátt-
úrufræðifélags og kaupendur Náttúru-
fræðingsins voru í árslok 1983 samtals
1802, og skiptust þannig: Heiðursfé-
lagar 4, kjörfélagar 2, ævifélagar 41,
ársfélagar innanlands 1558, ársfélagar
erlendis 76, og félög og stofnanir inn-
anlands 120. Fimm ævifélagar létust á
árinu. Þeir voru Hjörtur R. Björnsson
úrsmiður, Theresía Guðmundsson
fyrrv. veðurstofustjóri, Þóroddur
Guðmundsson rithöfundur frá Sandi,
Þorsteinn Díómedesson frá Hvamms-
tanga og S.L. Tuxen dýrafræðingur og
prófessor í Kaupmannahöfn. 25 aðrir
félagar létust á árinu. Meðal þeirra vil
ég sérstaklega nefna Sigurð Þórarins-
son jarðfræðing sem við öll þekktum.
Sigurður skrifaði mikið í Náttúrufræð-
inginn og talaði um jarðfræðileg efni á
fræðslufundum. Hann var formaður
Hins íslenska náttúrufræðifélags árin
1947-1949 og ritstjóri Náttúrufræð-
ingsins í 3 ár þar á eftir. Á Sigurð var
jafnan vel hlustað og má í því sam-
bandi minnast erindis, sem hann flutti
í Náttúrufræðifélaginu um náttúru-
verndarmál fyrir rúmum tveimur ára-
tugum og vakti til unthugsunar og að-
gerða á þeim sviðum.
Frá síðasta aðalfundi hefur fækkað í
félaginu um 105. Útstrikanir vegna
vanskila voru 88, úrsagnir 25 og 30
létust. Nýir félagar upp í þessi afföll
voru 32.
STJÓRN OG STARFSMENN
FÉLAGSINS
Stjórn Náttúrufræðifélagsins var
þannig skipuð. Formaður var Kristján
Sæmundsson jarðfræðingur, varafor-
maður Erling Ólafsson skordýrafræð-
ingur, gjaldkeri Ingólfur Einarsson
verslunarmaður, ritari Axel Kaaber og
Jón Eiríksson var meðstjórnandi. í
varastjórn voru Bergþór Jóhannsson
grasafræðingur og Einar B. Pálsson
verkfræðingur. Endurskoðendur voru
Tómás Helgason húsvörður og Gestur
Guðfinnsson blaðamaður. Ritstjóri
Náttúrufræðingsins var Helgi Torfa-
son jarðfræðingur. Afgreiðslumaður
Náttúrufræðingsins og innheimtumað-
ur félagsgjalda var Stefán Stefánsson
fyrrv. bóksali með stuðningi fjölskyldu
sinnar.
Stjórn Minningarsjóðs Eggerts Ól-
afssonar skipuðu Guðmundur Egg-
ertsson erfðafræðingur, Ingólfur Dav-
íðsson grasafræðingur og Sólmundur
Einarsson sjávarlíffræðingur, en hann
var jafnframt gjaldkeri sjóðsins. Vara-
maður í stjórn Minningarsjóðs Eggerts
Ólafssonar var Sigurður H. Pétursson
gerlafræðingur.
Haldnir voru 4 stjórnarfundir á ár-
inu og fjallað þar um ýmis málefni er
snertu félagið. Flest af því fastir liðir,
svo sem afgreiðslumál félagsins, skipu-
lagning fræðslufunda og fræðsluferða.
Sú breyting varð á afgreiðslu og inn-
heimtu að hvort tveggja fluttist í húsa-
Náttúrufræðingurinn 54 (2), bls. 85-91, 1985
85