Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 40

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 40
kynni Náttúrufræðistofnunar við Hlemmtorg. Þar hefur félagið nú geymslupláss og skrifstofuherbergi í viðbótarhúsnæði sem Náttúrufræði- stofnun fékk á 5. hæð fyrir rúmu ári. Stefán Stefánsson lét um áramótin 1983/1984 af störfum sem afgreiðslu- maður félagsins. Þakkar félagsstjórnin og raunar félagsmenn allir honum og fjölskyldu hans áralanga góða sam- vinnu og margvíslega hjálpsemi. Við afgreiðslunni tekur Erling Ólafsson en hann starfar hjá Náttúrufræðistofnun, og hefur lausasala Náttúrufræðingsins smám saman verið að færast til hans. Ný tækni og hagræðing ýmisskonar hefur létt vinnu af afgreiðslumanni frá því sem áður var, og þóknun til af- greiðslumanns hefur því verið lækkuð úr 10% af innheimtum félagsgjöldum í 6%. Stjórn Náttúrufræðifélagsins út- nefndi 2 fulltrúa á aðalfund Land- verndar í nóv. 1983, þá Guttorm Sig- bjarnarson og Axel Kaaber. Þar var m.a. fjallað um „skipulega landnýt- ingu með hliðsjón af verndun Land- náms Ingólfs". I dýraverndarnefnd sat fyrir hönd Náttúrufræðifélagsins Sig- urður H. Richter líffræðingur og í fuglafriðunarnefnd Agnar Ingólfsson dýrafræðingur. í Flórunefnd sitja þeir Eyþór Einarsson, Jóhann Pálsson og Hörður Kristinsson. Flórunefnd er búin að starfa lengi og vonandi fer að hilla undir niðurstöður af störfum nefndarinnar. Aðalfundur fyrir árið 1983 var hald- inn laugardaginn 25. febrúar 1984 í stofu 101 í Lögbergi við Suðurgötu í Reykjavík. Fundarstjóri var kosinn Tómas Einarsson og fundarritari Axel Kaaber. Formaður flutti skýrslu stjórnar um árið 1983 og gjaldkeri las upp reikninga félagsins og voru þeir samþykktir. Abending kom varðandi innistæðu fjár á gíróreikningi með lágum vöxtum og þar af leiðandi rýrn- un. Athugandi væri að færa fé á spari- sjóðsreikning sem gæfi hærri vexti. Óánægja var látin í ljós vegna seina- gangs í útgáfu Náttúrufræðingsins og þeim tilmælum beint til ritstjóra og útgáfunefndar að taka sig þar á. Sam- kvæmt lögum félagsins áttu að ganga úr stjórn formaður og tveir stjórnar- menn. Kristján Sæmundsson formað- ur og Erling Ólafsson varaformaður gáfu ekki kost á sér til endurkjörs. Ingólfur Einarsson gjaldkeri félagsins gaf hins vegar kost á sér til áframhald- andi stjórnarsetu. Til formannskjörs komu fram tillögur um þá Einar Arna- son líffræðing og Ágúst H. Bjarnason grasafræðing. Atkvæði féllu þannig að Einar fékk 15 atkvæði en Ágúst 20. 1 seðill var auður. Tillögur komu fram um tvo stjórnarmenn, þá Ingólf Ein- arsson og Bergþór Jóhannsson. Voru þeir báðir kjörnir, Ingólfur með 29 atkvæðum, Bergþór með 30 at- kvæðum. 5 seðlar voru auðir. I vara- stjórn voru þeir Einar B. Pálsson og Bergþór Jóhannsson. Einar gaf ekki kost á sér til endurkjörs. í stað þeirra kontu uppástungur um Ingibjörgu Kaldal jarðfræðing og Þór Jakobsson veðurfræðing og voru þau kjörin. Endurskoðendur voru kjörnir þeir Magnús Árnason og Einar Egilsson. Gestur Guðfinnsson var endurkjörinn varaendurskoðandi. Óskar Ingimars- son var kjörinn varamaður í stjórn minningarsjóðs Eggerts Ólafssonar. FRÆÐSLUSAMKOMUR Á árinu 1983 voru haldnir 6 fræðslu- fundir, allir í Árnagarði, stofu 201. Efni var hið fjölbreytilegasta og jafnan fyrirspurnir og umræður í lok erinda. Aðsókn var jöfn, að meðaltali um 40 manns. Fyrirlesarar og efni fyrirlestra var sem hér segir: 86

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.