Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 41

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 41
31. janúar Fyrirlesarar Þorleifur Einarsson jarðfræðingur og Ævar Petersen dýra- fræðingur. Efnið: Jarðfræði og fuglalíf Grímseyjar. 28. febrúar Fyrirlesari Einar H. Guðmundsson stjörnufræðingur. Efnið: Þróun sól- stjarna. 28. mars Fyrirlesari Jóhann Sigurjónsson líf- fræðingur. Efnið: Hvalir við ísland. 25. apríl Fyrirlesari Oddur Sigurðsson jarð- fræðingur. Efnið: Jarðfræðileg ljós- myndun úr lofti. 31. október Fyrirlesari Jón Gunnar Ottósson líf- fræðingur. Efnið: Lifnaðarhættir ís- lenskra blaðlúsa. 28. nóvember Fyrirlesari Hreggviður Norðdahl jarðfræðingur. Efnið: Jökullón og jökulmenjar í Fnjóskadal og Flat- eyjardal. Þakkar stjórnin fyrirlesurunum þeirra góða framlag til félagsstarfsins. Undantekningarlaust taka menn því vel þegar til þeirra er leitað um erind- isflutning og verður svo vonandi áfram. FRÆÐSLUFERÐIR Sumarið 1983 voru að venju farnar fjórar fræðsluferðir til náttúruskoðun- ar, þrjár eins dags ferðir og ein þriggja daga ferð. Þátttakendur í ferðunum urðu alls um 190. Bílar voru fengnir frá ferðaskrifstofu Guðmundar Jónas- sonar. 1. Sunnudag 15. inaí var farin fugla- skoðunarferð út á Reykjanes. Farar- stjóri var Erling Ólafsson. Þátttakend- ur voru 28. 2. Sunnudag 10. júlí var farin grasa- ferð í Heiðmörk og nágrenni. Farar- stjóri var Eyþór Einarsson. Þátttak- endur voru 22. 3. Langa ferðin var farin föstudag 12. — sunnudags 14. ágúst og skoðaðir Lakagígar og Skaftáreldahraun. Veður var milt en lítið skyggni vegna þess hve lágskýjað var. Minna var því skoðað en verið hefði í bjartviðri. A inneftirleið fyrsta daginn var rennt upp í Skaftárdal, konrið við á Kirkjubæjarklaustri og skoðuð sýning í minningu Skaftárelda. Annan daginn var ekið vestur í Blágil, þar norður yfir hraunið í Hnútu og austur með Laka- gígum. Gerðist sú ferð æði slarksöm, áður en lauk, þokan dimm, brekkurn- ar brattar og einn bíllinn bilaði. Þriðja daginn var gert við bílinn til bráða- birgða og lagt af stað heim um tvö- leytið. Komið var til Reykjavíkur um miðnætti. Þátttakendur í ferðinni voru um 120. Leiðsögumenn voru Jón Jóns- son, Ingvar Birgir Friðleifsson, Þor- leifur Einarsson og Kristján Sæmunds- son jarðfræðingar. 4. Síðasta ferðin var farin þ. 11. sept., jarðfræðiferð í Botnsdal. Leið- sögn annaðist Kristján Sæmundsson. Þátttakendur voru 18. ÚTGÁFUSTARFSEMI Af útgáfustarfsemi er fátt að segja, því allt sem út kom af Náttúrufræð- ingnum var 1 tvöfalt hefti (3-4 hefti 51. árg.) á vordögum. Fólk er að von- um óánægt með þennan seinagang á útgáfu Náttúrufræðingsins. Leiðir til úrbóta eru til umræðu og vonandi er bjartara framundan. FJÁRHAGUR Reikningar félagsins sýna góðan fjárhag fyrir síðasta reikningsár, enda samhengi þar á milli og seinagangs í útgáfu Náttúrufræðingsins. Vonandi saxast fljótlega á sjóðinn með nýju átaki í útgáfumálunum.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.