Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1985, Síða 48

Náttúrufræðingurinn - 1985, Síða 48
fellssýslu sumarið 1893“, sem birtist í And- vara árið eftir segir Porvaldur Thoroddsen um þetta svæði: „þar eru stórar hrannir af vikri; hraunkúlur og klessur hnefastórar og sumar á stærð við mannshöfuð liggja þar á víð og dreif, og hefur þurft mikið afl til þess að kasta þeim þangað alla leið frá eldborgunum“ (bls. 111, leturbreyting mín). Furðulegt má það heita að þessi stór- meistari íslenskra jarðvísinda skyldi ekki gera sér grein fyrir að gosið sem þetta er frá hefur orðið svo að segja á staðnum, í gígum vestan við Leiðólfsfell og götuslóð- in, sem hann reið er meðfram þeim. Ekki sýnist hann heldur hafa hugleitt þá stað- reynd að mjög lítið er um „hraunkúlur og klessur" nema alveg í næsta nágrenni við eldvörpin frá 1783. Niðurstaða Þorvaldar hefur verið látin gilda einnig í þetta sinn. Gígir þeir, sem eru lengra norður í hrauninu og eldri en Skaftáreldahraun, sýnist mér líklegast að séu í framhaldi gos- stöðvanna við Leiðólfsfell. Að fá úr því skorið hefði verið meira áhugavert heldur en að vera að bisa við að finna rúmtak hraunsins, sem í öllu falli er harla vonlaust verk. Leitt þykir mér að sjá notað örnefnið „Varmárfjöll“ í stað hins rétta, sem er Varmárfell. Sama er að segja um „Tjarn- argíg“ sem heitir Eldborg og hrauntraðirn- ar frá henni heita Eldborgarfarvegur. Ör- nefni ber að hafa í heiðri. Varðandi gígaröðina sjálfa, þá hefur hún ekki fyrr verið sérstaklega kortlögð og það var raunar öfundsvert verkefni. Kortið er fallega teiknað og svo virðist sem höf- undur hafi nógan efnivið til þess að gera það í stærri mælikvarða, en það hefði gefið fyllri mynd og verðuga þessu einstæða sköpunarverki náttúrunnar. Væri kortið gert sem sérkort t. d. í mælikvarða 1:25.000 og haft í litum hefði það orðið höfundi til hins mesta sóma og líklega get- að orðið söluvara. Með ánægju hefði ég borgað slíkt kort hærra verði en bókina alla. Eins og nú er hverfur það inní bókinni eins og hver önnur lítilmótleg mynd. Ekki er tekin afstaða til þess hvort gosið hafi áður á sömu sprungu, en aðeins minnst á að nokkrir telji að svo hafi verið. K. Sapper (1908) mun fyrst hafa látið að því liggja, en sumir telja að öskugígirnir séu frá upphafi Skaftárelda, án þess þó að færa rök fyrir þeirri skoðun. Tvennt er þarna að athuga. Þessir gígir skera sig mjög úr að útliti. Um stóra öskugíginn, sem er um 2 km vestan við Laka, liggur misgengi, sem þýðir að hann var til fyrir gosið 1783, og að þá gaus á þeirri sprungu. Þetta má raunar sjá á litmyndunum á milli bls 208 og 209. Að misgengin urðu til áður en hraun tók að renna í síðasta gosi má auðveldlega fullvissa sig um á skerinu vest- an við Laka. Spursmál sem þetta hefði verið æskilegt að taka upp. Hvað voru „Rauðöldur", sem Sveinn Pálsson getur um á þessu svæði? Örnefni það er nú glatað. Sterklega grunar mig að gígurinn „Roter BergL‘ á korti Sappers sé eldri en frá 1783. Hann er hæstur gíganna. Nánast broslegt er það að halda því fram (bls. 45—46) að það hafi uppgötvast fyrst 1967 að hraunið milli Hverfisfljóts og Brunnár tilheyrði Skaftáreldahrauni. Eng- an veit ég þann í sveitunum milli sanda, sem ekki gerði sé fulla grein fyrir því. Frásögn séra Jóns Steingrímssonar hefði líka átt að nægja til þess að sannfæra um hið rétta. Fleira mætti tína til varðandi þennan hluta bókarinnar en ekki skal það að sinni gert. „Bergfræði Skaftáreldahrauns“ vekur mjög persónulegan áhuga ntinn, ekki minnst vegna þess að fyrir röskum 15 árum reyndi ég á einfaldan hátt að kanna hvort hægt væri að finna mun á því hrauni, sem fyrst kom, og þá vestan Síðu, og hinu sem síðast kom en það var Tanginn austan Eldvatns á Brunasandi. Einfaldar smásjár- rannsóknir (sbr. Náttúrufr. 40, 1970, bls. 216) sýndu engan mun og það er óneitan- lega gaman að fá það staðfest með svo nákvæmum rannsóknum, sem þarna er gerð grein fyrir. Ofurlítið vænt þykir mér um efasemdir höfundar varðandi kviku- hlaup úr Grímsvötnum til Lakagíga. Ég hef á tilfinningu að megineldstöðvar séu komnar í tísku og öll eldvirkni eigi að tengjast þeim og ekki er ég frá því að 94

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.