Náttúrufræðingurinn - 1944, Side 45
NÁTTÚRUFRÆÐIfJGURINN
99
um orðuin sa«t, að hún sýgur loft inn uin neí'ið, það er að
segja, lofti er dæll inn i hana uni op á framstafninuin, loftinu
er síðan þjappað saman til þcss að hita það, síðan er það hit-
að enn frekar með fljótandi eldsneyti, sem flugvélin liefir
meðferðis, og að lokum er því hlásið al' miklu afli út um op
á al’turenda flugvélarskrokksins. Hraðinn á loftslraumnum aft-
ur úr flugvélinni er nægur til að reka hana áfram með hraða,
sem nernur 800 og allt upp undir 1000 kílómetrum á klukku-
stund, að því er útreikningar sýna.
Slík flugvél hefir ýmsa mikilsverða kosli umfram loftskrúfu-
flugvélar. Fvrst er það, að hreyfillinn er stórum mun einfald-
ari en í hinum, og jafnframt er hægt að losna við ýmis vand-
kvæði í samhandi við rekstur hreyfilsins, þegar komið er mjög
Iiátt á loft. Annað er það, að þessi nýja flugvél smýgur loftið
hetur en Iiinar, því að skrúfan truflar alllaf eðlilegan loftstraum
aftur með skrokk og vængjum, og nokkuð af gangorkunni tap-
ast af þeim orsökum. En mest er þó um það vert, að þessar
flugvélar eiga að geta farið miklu hraðar og komizl miklu
hærra en þær flugvélar, sem nú eru til. Sérfræðingar telja, að
loftskrúfuflugvélin hafi þegar náð þeirri fullkomnun, að lítil
von sé til þess, að liægt verði að áuka hraða hennar eða flug-
liæð úr þessu, svo að miklu nemi.
Af þessu er ljóst gildi u]>])fynningarinnar, ekki sízl á striðs-
tínium. Bæði í Þýzalandi og á Italin hefir verið unnið að þvi
að gera flugvél, sem rekin væri á svipaðan liáll og þessi flug-
vél Whittles, en þær tilraunir virðazt hafa borið mjög litinn
árangur. Árið 1941 flaug itölsk loftknúin flugvél frá Napoli til
Rómahorgar, cn síðan hefir ekkert um þetta heyrzt úr þeim
herbúðum. En um flugvél Whittles er það að segja, að hún
er þegar komin af tilraunastiginu. Bæði í Bretlandi og Banda-
ríkjunum hafa verið farnar reynsluflugferðir hundruðum sam-
an í þessari nýstárlegu flugvél, án þess að nokkurt óha]>p kæmi
fyrir, og tilkynnt er, að verið sé að hefja stórframleiðslu loft-
knúinna flugvéla handa flugherjum Breta og Bandarikjamanna.
Það er því alls ekki fjarri sanni, að flugvél l>essi gcti átt eftir
að hafa álirif á gang þessarar styrjaldar. B. F.
Nýkenning um eðli segulmagns
Eelix Ehrenhaft, ]>rófessor, er Ansturríkismaður af Gyðinga-
ætlum og var um skeið forslöðumaður hinnar kunnu oðlis-