Náttúrufræðingurinn - 1951, Blaðsíða 13
ÁTAN OG SÍLDIN
155
S. mynd. Átusvicði seinni hhitu júnf og fyrri hluta júli 1951. Innskots-
Iwrt sýnir, hvar sild súst ú sinna tiinabili. Álusvœði merkt eiiis og ú 2.
mynd.
að gefa átusvæðin til kynna, en liel/.t hefur skort á, að athuganirnar
væru nógu þéttar eða tækju yf'ir nægilega stórt svæði. Ég tók því feg-
ins hendi tilboði síldarrannsóknarnefndar tnn nákvæmari rannsókn
en áður lialði verið unnt að gera, og var rannsókn sú framkvæmd í
lok júní og í byrjun júlí sumarið 1951. Næstum því samtímis þeim
rannsóknum sendi síldarrannsóknarnefnd m/s Faxaborg til síldar-
leitar á austurmið og til úthafs, og reyndist unnt að tengja átumæl-
ingar, sem þá voru gerðar, mælingum okkar l'yrir vestan og norðan
landið, enda þótt rannsóknartæki væri ekki af alveg sörnu gerð. Hægt
hefði verið að fara fljótar yfir rannsóknarsvæðið, ef ekki hefði verið
staldrað við ;i Jökulgrunni til að fylgjast með síldargöngunni.
1 vær aðrar athuganir voru gerðar á vegum Fiskideildar, sú lyrri í
lok júlí og í byrjun ágúst (18/7—7/8) og hin síðari um miðjan ágúst
(10/8—25/8). Skal nú skýrt l’rá niðurstöðum þessara rannsókna.
I lok júní og í byrjun júlí var síldarátan mest á tveintur svæðum