Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1951, Side 34

Náttúrufræðingurinn - 1951, Side 34
Þór Guðjónsson: Veiki í laxi Athugun sú á veiki í ktxi, scni grein ]>essi fjallar um, var gerð að tilhlutan Rafmagns- vcitu Reykjavíkur, samkv. ósk rafmagnsstjóra, hr. Steingríms Jónssonar, og cr greinin birt hér með hans samþykki. í byrjun laxveiðitímans (júníbyrjun) síðastliðið sumar t<»kti menn eftir óvenjulegum hvítum blettum á laxi í Elliðaánum. Voru blett- irnir aðallega á hnakkanum, en einnig á bakinu framan og aftan við veiðiuggann, og á liliðum stirtlunnar. Á flestum löxunum konni fram sár í blettunum á hnakkanum og á fáeinum á síðum stirtlunn- ar. Náðu sárin inn úr roðinu og niður í vöðvana undir því og voru rauð (blóðrík). Sárin voru yfirleitt sem n;est hringmynduð, en nokk- ur voru ílöng, og þau stærstu náðu niður á síðurnar beggja megin frá hnakkanum. Sérkennilegt var það, að hvitu blettirnir komu á iaxana fljótlega eftir að þeir gengu upp í árnar. Veiddust laxar með bletti neðan til í ánum, og í laxakistuna við rafstöðina komu laxar með blettum og sárum, en sárin komu einnig fram eftir stutta veru laxanna í ánum. Eins og vitað er, þá er laxakistan aðeins um 1 km frá sjó, og laxarnir ganga oftast á fáeinum klukkutímum úr sjónum upp í kistuna. El'tir því sem á júnímánuð leið fjölgaði blettóttum og særðum löxum I Elliðaánum og hélt svo áf'ram í júlí, en síðan fór þeim aftur að fækka. Kvað töluvert að veikinni, sem olli blettunum og sárun- um, þegar mest var. Vitað er um, að í eitt skipti (19. júlí) var þriðji Iiver lax, sem tekinn var úr laxakistunni við rafstöðina, með veikina, en laxinum er safnað, eins og kunnugt er, í laxakistuna með það íyrir augum að flytja hann upp fyrir Árbæjarstíflu og sleppa lionum þar. Eigi varsvoaðsjá, aðsjúkdómurinn í laxinum væri bráðdrepandi, því að ekki urðu menn varir við fleiri dauða laxa við Elliðaárnar en venjulega. I>að ráð var tekið til að draga úr útbreiðslu veikinnar í

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.