Fréttablaðið - 25.05.2009, Síða 2
2 25. maí 2009 MÁNUDAGUR
585-6500 audur.is
Stattu vörð um viðbótarlífeyris-
sparnaðinn þinn
Opinn kynningarfundur
Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2, 3. hæð
Mánudaginn 25. maí kl. 17:15
Allir velkomnir
STJÓRNSÝSLA Forstjóri Ríkiskaupa,
Júlíus S. Ólafsson, vill ekki svara
ávirðingum Kjartans Arnar Sig-
urðssonar, forstjóra Office 1, á
hendur stofnuninni. Í harðorðri
grein í Fréttablaðinu á laugardag
brigslar Kjartan Ríkiskaupum um
að hygla nýjum félögum í eigu rík-
isbankanna á kostnað einkafram-
taksins. Tilefnið var yfirfærsla
rammasamnings sem Penninn og
A4 höfðu við Ríkiskaup til nýrra
félaga í eigu bankanna.
„Það er búið að kæra þetta til
kærunefndar útboðsmála og á
meðan þetta er þar sé ég enga
ástæðu til að tjá mig um þetta,“
segir Júlíus sem vill ekki heldur
ræða þessi mál í víðara samhengi.
- gar
Forstjóri Ríkiskaupa:
Tjáir sig ekki
um ávirðingar
Steinþór, þurfið þið ekki að
halda vel á spilunum?
„Jú, annars er þetta auðvitað búið
spil. En við spyrjum að leikslokum.“
Spurt að leikslokum, nýtt spurningaspil
sem kemur út á næstu vikum, er ekki
borðspil og án tenings og því hægt að
spila það hvar sem er. Steinþór Stein-
grímsson er annar höfunda spilsins.
SAMGÖNGUR Geimferjan Atlantis
lenti í Kaliforníu síðdegis í gær, um
klukkan fjögur. Upphaflega átti hún
að lenda á Kennedy-geimstöðinni í
Flórída á laugardag en hætt var
við það. Vegna stormviðris í Flór-
ída þegar geimferjan átti að lenda í
gær var henni beint til Kaliforníu.
Atlantis var send út í geim-
inn til að laga Hubble-sjónaukann
sem hafði bilað. Sjónaukinn er eitt
mikil vægasta tækið sem notað er af
NASA til geimrannsókna. Sjö geim-
farar tóku þátt í verkefninu. Heppn-
aðist verkefnið vonum framar.
Vélmennahandleggur Atlantis
tók Hubble til sín svo geim fararnir
gætu gert við hann. Eftir fimm
geimgöngur á sjónaukanum náðu
geimfararnir að koma fyrir nýjum
tækjum og skipta um rafhlöður og
mælingatæki.
Það eina sem misheppnaðist í
ferðinni var að gera við aðalmynda-
vél sjónaukans sem bilaði vegna raf-
magnstruflana. Sjónaukanum var
síðan sleppt til baka frá Atlantis síð-
astliðinn þriðjudag. Áhöfn Atlant-
is sagði að ferðin hefði verið mjög
skemmtileg frá upphafi til enda.
- vsp
Geimferjan Atlantis lenti í Kaliforníu í gær vegna veðurofsa í Flórída:
Skemmtilegt frá upphafi til enda
ATLANTIS Sjö geimfarar voru sendir út í geim til að laga Hubble-sjónaukann.
Viðgerðin gekk vel. NORDICPHOTOS/AFP
HEILBRIGÐI Grunur leikur á um sex
tilfelli svínaflensu hér á landi.
Eitt tilfelli hefur verið staðfest. Sá
smitaði er karlmaður sem kom frá
New York fyrir rúmri viku. Gert er
ráð fyrir að nið-
urstöður rann-
sókna á hinum
sýnunum liggi
fyrir í dag. Öll
hin sýktu til-
heyra fjölskyldu
mannsins sem
greindist. Eng-
inn er alvarlega
veikur. Smitið
greindist á höf-
uðborgarsvæðinu en tengsl eru við
Suðurlandið og víðar.
Haraldur Briem sóttvarnarlækn-
ir segir þann sem greinst hefur
vera á batavegi.
„Hann hefur verið heima hjá sér
síðan hann greindist,“ segir Har-
aldur. Enginn þeirra sem grunað-
ur er um smit sé á spítala eða í ein-
angrun. Allir séu í heimahúsum.
„Við lítum á svínaflensufarald-
ur eins og annan inflúensufarald-
ur. Fólk fær meðferð og heldur
sig heima,“ segir Haraldur. Hann
mælir með að fólk sem sé að koma
frá Bandaríkjunum og Mexíkó
leiti læknis. Telur hann þó að fólk-
ið sem hafi verið með manninum í
flugvél hafi ekki getað veikst þar
sem hann varð ekki veikur fyrr en
tveimur sólarhringum eftir flug.
Áfram er í gildi hættustig hér á
landi samkvæmt viðbragðsáætl-
un um inflúensufaraldur. Ekki er
talin ástæða til að fara á neyðarstig
þrátt fyrir að staðfest hafi verið að
svínaflensan sé komin til Íslands,
enda eru veikindin væg.
Sóttvarnalæknir segir embætti
ríkislögreglustjóra vinna með
embætti sóttvarnalæknis til þess
að ræða ráðstafanir verði flensan
hættulegri og útbreiddari.
„Það yrðu þá ráðstafanir eins og
að loka landinu og krefjast þess að
fólk færi ekki út úr húsi. Einnig
væri þá inni í myndinni samkomu-
bann. Þetta væri þó aðeins ef ýtr-
ustu aðstæður væru fyrir hendi.
Jafnvel þótt við færum á neyðar-
stig þá færum við ekki að grípa
til umfangsmikilla aðgerða nema
nauðsyn væri,“ segir Haraldur.
Svínaflensunni svipar ti l
spænsku veikinnar 1918 og verður
því verri með haustinu. Árið 1918
kom upp inflúensufaraldur í mars
sem barst um heiminn frá Banda-
ríkjunum. Í júní fékk hún heitið
júníflensan en þótti ekki mjög
alvarleg þá og var mjög væg. Um
haustið kom hún í annarri bylgju
og var þá skæðari, alvarlegri sjúk-
dómstilfelli og há dánartíðni.
vidirp@frettabladid.is
Svínaflensan verður
verri með haustinu
Grunur leikur á um sex tilfelli svínaflensu hérlendis. Enginn er alvarlega veik-
ur. Litið er á flensuna eins og annan inflúensufaraldur. Fólk heldur sig heima
eftir meðferð. Verði flensan hættulegri kemur samkomubann til greina.
SÓTTVARIN Á LOS ANGELES-FLUGVELLI Sóttvarnalæknir segir Íslendinginn sem er
smitaður af svínaflensu á batavegi og hann haldi sig heimavið. NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUMÁL „Ég er þess fullviss
að vönduð rannsókn muni leiða í ljós
algert sakleysi mitt af þeim ávirð-
ingum sem á mig hafa verið born-
ar í fjölmiðlum,“ segir í yfirlýsingu
Ólafs Ólafssonar sem sérstakur
saksóknari hefur grunaðan um
misferli í tengslum við sölu hluta-
bréfa í Kaupþingi til Katar búans
Al-Thani.
Ólafur, sem var einn stærsti
hluthafi Kaupþings og persónu-
lega kunnugur Al-Thani, hefur ekki
látið ná í sig frá því Ólafur Hauks-
son, sérstakur saksóknari, lét í síð-
ustu vikur gera húsleit víðs vegar
vegna gruns um markaðsmisnotk-
un og auðgunarbrot í sambandi
við sölu Kaupþingsbréfanna til Al-
Thani í september í fyrra. Ekki
hefur heldur náðst í fyrrverandi
aðalstjórnendur Kaupþings, þá Sig-
urð Einarsson stjórnarformann og
Hreiðar Má Sigurðsson forstjóra.
Í stuttri yfirlýsingu Ólafs vísar
hann til yfirlýsingar sérstaks sak-
sóknara um rannsóknina og umfjöll-
un fjölmiðla um hana. „Ég vil í því
sambandi staðfesta að rannsókn-
araðilar hafa lagt hald á tölvugögn
sem voru í húsakynnum í minni eigu
á Íslandi,“ segir Ólafur í yfirlýsingu
sinni. Þess má geta að samkvæmt
fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld var
meðal annars leitað í frístundahúsi
Ólafs í Borgarfirði.
Ekki náðist í sérstakan sak-
sóknara í gær til að fá fréttir af
árangri húsleitanna og framgangi
rannsóknar hans. - gar
Fyrrverandi stjórnendur Kaupþings tala ekki en Ólafur Ólafsson staðfestir húsleit:
Kveðst saklaus í Kaupþingsbréfamáli
ÓLAFUR ÓLAFSSON Grunaður um
lögbrot vegna sölu á 25 milljarða hlut í
Kaupþingi til sjeiks frá Katar en kveðst
saklaus. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MENNTUN „Það verður ekki farið
fram gegn vilja kennara í þess-
um efnum. Það er mikilvægt að
allar svona aðgerðir séu ákveðn-
ar í góðri sátt og við munum
ræða málin á þeim nótum,“ segir
Katrín Jakobs-
dóttir mennta-
málaráðherra.
Katrín fundar
í dag með full-
trúum Sam-
bands íslenskra
sveitarfélaga
(SÍS) um hug-
myndir þeirra
um tímabundna
fækkun lög-
bundinna skóla-
daga grunnskólanemenda.
Katrín fundaði á laugardag
með fulltrúum kennara um þessi
mál, en Kennarasamband Íslands
hefur lagst eindregið gegn hug-
myndum SÍS. - kg
Katrín Jakobsdóttir:
Ekki farið gegn
vilja kennara
LÖGREGLUMÁL Kannabisrækt-
un var stöðvuð í íbúð í miðbæ
Reykjavíkur um miðjan dag á
föstudag. Við húsleit fundust um
150 kannabisplöntur. Helmingur
þeirra var á lokastigi ræktunar.
Karlmenn á fertugsaldri ját-
uðu aðild að málinu. Mennirn-
ir hafa áður komið við sögu lög-
reglu. Telur lögreglan málið
upplýst.
Málið er liður í sameiginleg-
um aðgerðum lögreglunnar til að
hamla sölu og dreifingu fíkni-
efna. Margar verksmiðjur hafa
verið upprættar á undanförnum
mánuðum. - vsp
Kannabis í miðborginni:
150 plöntur í
101 Reykjavík
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
LÖGREGLUMÁL Lögreglan lýsir
eftir Jóni Helga Lindusyni. Talið
er að Jón Helgi haldi sig á höfuð-
borgarsvæðinu.
Jón er fædd-
ur árið 1993, er
um 175 senti-
metrar á hæð,
grannvaxinn
og dökkhærð-
ur. Jón Helgi
strauk af með-
ferðarheimili.
Lögreglan
biður alla þá
sem geta veitt
upplýsingar um ferðir Jóns Helga
Lindusonar eða dvalarstað hans
að láta vita í síma 444 1104.
Lögreglan í Reykjavík:
Lýst eftir pilti
JÓN HELGI
LINDUSON
Seinheppinn þjófur
Bíl var stolið við heimahús í Kletta-
borg á Akureyri á föstudagskvöld.
Svo óheppilega vildi til að þjófurinn
velti bílnum í götunni, skarst eilítið
en slapp annars nokkuð vel. Hann er
grunaður um ölvunarakstur.
LÖGREGLUFRÉTTIR
HARALDUR BRIEM
SKATTAMÁL Ríkisskattstjóri hefur
sent skattrannsóknarstjóra þrjá-
tíu mál þar sem grunur leikur á
að Íslendingar hafi notað erlend
greiðslukort hérlendis og komið
sér þannig undan því að greiða
lögbundinn skatt. Þetta kom
fram í fréttum Stöðvar 2 í gær-
kvöldi. Þar sagði enn fremur að
athugun ríkisskattstjóra á um
sextíu málum af þessum toga
væri lokið.
Eins og áður hefur komið fram
í Fréttablaðinu fékk ríkisskatt-
stjóri aðgang að gögnum um
notkun þessara greiðslukorta
með dómi Hæstaréttar í fyrra.
- gar
Skoðun ríksskattstjóra lokið:
Grunar þrjátíu
um kortasvik
SPURNING DAGSINS