Fréttablaðið - 25.05.2009, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 25.05.2009, Blaðsíða 6
6 25. maí 2009 MÁNUDAGUR Sólarlottó Sólarlottó Þú kemst í sólina með Plúsferðum. 69.900kr. Rimini Verð frá: Verð á mann miðað við 2 fullorðna í íbúð eða stúdíó íbúð í 7 nætur. Enginn barnaafsláttur 8. og 15. júní Spilaðu með og láttu sólina leika við þig. Þú velur áfangastað og brottfarardag og ef þú bókar strax færðu frábæra ferð á fáránlegu verði. Við sendum þér upplýsingar um gististað og ábyrgjumst að þú færð gott frí á góðum stað! Öll verðdæmi miðast við að bókað sé á netinu. EVRÓPUMÁL Að fram fari upplýst opinber umræða um það sem felst í fullri aðild að Evrópusam- bandinu er einhver mikilvægasta forsendan fyrir inngöngu nýrrar aðildarþjóðar í sambandið. Þetta segir Graham Avery, sem starfaði um áratugaskeið í framkvæmda- stjórn ESB og kom sem háttsett- ur fulltrúi hennar að aðildarsamn- ingum margra ríkja, en hann er nú heiðursfélagi St.Antony‘s Coll- ege við Oxfordháskóla og ráðgjafi rannsókna- og ráðgjafarstofnun- arinnar European Policy Centre í Brussel. Avery hélt á dögunum erindi á málþingi Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, þar sem hann fjallaði um „hverju búast megi við af Brussel“ í aðildarviðræð- um við ESB. Í erindinu lýsti hann aðildarviðræðuferlinu og lagði sitt mat á það hvernig sjá má fyrir sér að slíkar viðræður færu fram við Ísland. Í samtali við Fréttablaðið sagð- ist Avery þess fullviss að unnt sé að gera góðan aðildarsamning sem tryggja myndi bæði hags- muni Íslendinga og Evrópusam- bandsins í heild, að því gefnu að samningsviljinn sé jafnmikill hjá báðum aðilum. Avery segir þetta einnig eiga við um sjávarútvegsmál. Þar aðskilur hann annars vegar lang- tíma-meginmarkmið sameigin- legu fiskveiðistefnunnar, og hins vegar það hvernig þeim markmið- um skuli náð í framkvæmd. Eins og meginmarkmið stefnunnar séu skilgreind eigi hann bágt með að sjá að fiskveiðiþjóðin Íslendingar geti ekki skrifað upp á þau. Fram- kvæmd stefn- unnar sé annað, og „í Brussel“ sé viðurkennt að hún þurfi nú endurskoðunar við, meira en nokkru sinni fyrr. „Við þá end- urskoðun gætu Íslendingar lagt mikil vægan skerf af mörkum,“ segir Avery. Þar sem til stendur að bera væntanlegan aðildarsamning undir þjóðaratkvæði hérlendis segir Avery að það hvernig stað- ið er að hinni opinberu umræðu um samningsskuldbindingarnar sé algjört lykilatriði. Avery bend- ir á hve mörg dæmi eru um það frá öðrum löndum, þar sem þjóð- aratkvæðagreiðslur hafa verið haldnar um Evrópusambands- mál, að í þeim hljómi hæst raddir sem útbreiði afbakanir á því sem í raun sé verið að kjósa um eða tengja það alls ótengdum málum. Þetta hafi til að mynda verið til- fellið þegar Írar kusu um fullgild- ingu Lissabonsáttmálans í fyrra- sumar. Þetta þurfi Íslendingar að varast með því að auðvelda aðgengi almennings að traustum upplýsingum og vanda hina opin- beru umræðu. audunn@frettabladid.is Upplýst umræða um ESB-aðild lykilatriði Að fram fari upplýst, vönduð umræða um það sem felast muni í fullri aðild að Evrópusambandinu áður en haldin er þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarsamn- ing er að sögn Grahams Avery algjört lykilatriði í aðildarundirbúningnum. GRAHAM AVERY HVERS ER AÐ VÆNTA AF „BRUSSEL“? Höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar og ráðherra- ráðs Evrópusambandsins í „Evrópuhverfinu“ í Brussel. NORDICPHOTOS/AFP ATVINNUMÁL „Okkur finnst þetta hrikalegt,“ segir Jóhann Már Helgason, framkvæmdastjóri Stúd- entaráðs Háskóla Íslands, aðspurð- ur um viðbrögð við frétt blaðsins í gær um að um 2.300 manns fái ekki vinnu hjá Reykjavíkurborg næsta sumar. Stærsti hlutinn er framhalds- og háskólanemar. „Við erum hins vegar komin með sumarnám við Háskólann sem við börðumst fyrir fyrr í vetur, til að sporna gegn þessu. Við köllum nú eftir frekari aðgerðum frá rík- inu og sérstaklega sveitarfélögun- um til að tryggja atvinnu,“ segir Jóhann. Félagsstofnun stúdenta rekur Atvinnumiðlun stúdenta sem aug- lýsir laus störf í boði. Jóhann segir að eins og með annað vanti þá stofnun fjármagn. Hafsteinn Gunnar Hauksson, fráfarandi formaður Nemendafé- lags Verzlunarskóla Íslands, segir þetta koma sér illa fyrir þau ung- menni sem hafi ekki fengið vinnu annars staðar og treysti á Reykja- víkurborg um atvinnu. „Ég finn fyrir því í kringum mig að félagar manns sem hafa getað treyst á þessa vinnu [hjá Reykja- víkurborg] undanfarin ár geta ekki treyst á þetta núna og standa jafnvel uppi atvinnulausir,“ segir Hafsteinn. - vsp Stúdentaráð HÍ telur hrikalegt að um 2.300 fái ekki vinnu hjá borginni í sumar: Kalla eftir frekari aðgerðum SUÐUR-KÓREA Suður-kóreska þjóð- in varð fyrir áfalli á laugardaginn þegar í ljós kom að fyrrverandi forseti landsins, Roh Moo-hyun hefði framið sjálfsmorð. Lík Rohs fannst við klettasyllu og í kjölfarið fannst sjálfsmorðs- bréf þar sem hann bað fjölskyldu sína um að syrgja sig ekki. Forsetinn fyrrverandi hafði verið kærður fyrir að taka við mútum upp á sex milljónir doll- ara, eða um 700 milljónir króna, meðan hann var forseti árin 2003 til 2008. Hann viðurkenndi aldrei verknaðinn en hafði beðist afsök- unar. Núverandi forseti landsins sagðist harma atburðinn. - vsp Forseti Suður-Kóreu: Tók við mútum og svipti sig lífi HÁSKÓLANEMAR Atvinnuhorfur nema eru ekki bjartar í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Er nægt eftirlit með að reglum um gjaldeyri sé fylgt? Já 22,5% Nei 77,5% SPURNINGS DAGSINS Í DAG Hygla stjórnvöld fyrirtækjum í eigu ríkisbankanna? Segðu þína skoðun á visir.is MENNTUN „Það var bara mjög góð tilfinning að sjá á eftir þessu til þeirra,“ segir Magnús Magnússon kvikmyndagerðarmaður, sem gaf færeysku þjóðinni nær allt ævi- starf sitt; það eru sextíu heimild- armyndir og þættir. Þeirra á meðal er myndin „Í ríki fálkans“ sem var frumsýnd 3. maí síðastliðinn. „Ég var löngu búinn að ákveða að gefa þeim þetta. Svo þegar þeir stóðu með okkur í hremmingunum meðan aðrir litu undan varð ég ákveðinn í að nú þyrfti ég að láta verða af þessu. Svo hringdi ég í menntamálaráðherra þeirra og hún sagði bara já, takk.“ Efnið verður textað og svo sýnt í sjónvarpi. Þá nýt ir Náms- gagnastofnun efnið. Einnig verður það til sýnis á bóka- söfnum, sjúkra- húsum og víðar. Magnús fór með myndirn- ar í síðustu viku og notaði ferðina til að taka myndir af fuglum fyrir myndavef sem Námsgagnastofn- unin hér lætur gera. Færeyingar hafa nú fest kaup á þessum vef. „Ég held að þetta sé í fyrsta sinn sem námsgögn eru flutt út frá Íslandi,“ segir hann. Magnús á allar hreyfi- myndirnar á vefnum og margar ljósmyndir en annars á Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur mestan heiðurinn að vefnum. - jse Magnús Magnússon gefur færeysku þjóðinni sextíu heimildarmyndir og þætti: Gaf Færeyingum ævistarfið MAGNÚS MAGNÚSSON ÚR RÍKI FÁLKANS Mynd úr heimildar- myndinn „Í ríki fálkans“. KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.