Fréttablaðið - 25.05.2009, Page 12
12 25. maí 2009 MÁNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
„Ég varð mjög hissa, enda hefði ég
verið mjög sáttur við það eitt að mynd-
in væri valin á hátíðina,“ segir Svein-
björn J. Tryggvason sem tilnefndur
hefur verið til verðlauna á Siggraph-
tölvugrafíkhátíðinni fyrir stuttmynd
úr sinni smiðju. „Þessi hátíð er mjög
þekkt en hluti af henni er tileinkuð
tölvugerðum teiknimyndum,“ útskýr-
ir Sveinbjörn en hátíðin verður hald-
in í New Orleans í Bandaríkjunum í
ágúst.
Alls voru 770 myndir sendar inn í
keppnina í ár. Þar af verða 140 mynd-
ir sýndar á hátíðinni en aðeins örfá-
ar hljóta verðlaun. Keppt er í fjórum
flokkum og eru þrjár myndir tilnefnd-
ar í hverjum flokki. Sveinbjörn er til-
nefndur í flokknum WTF (Well Told
Fable) fyrir mynd sína friends?, sem
var lokaverkefni hans við Vancouver
Film School í Vancouver í Kanada á
síðasta ári.
Sveinbjörn er beðinn um að lýsa
mynd sinni. „Þetta er eins mínútu löng
teiknimynd í þrívídd um tvo verðandi
vini. Hún er svo stutt að það er varla
hægt að segja annað um hana.“
Sveinbjörn dvaldi í eitt ár í Kanada
við nám í Vancouver Film School sem
hann segir talsvert virtan, en áður en
hann hélt út hafði hann lokið námi við
margmiðlunarskólann hér heima. Í
Kanada lærði hann að búa til hreyfi-
myndir auk þess sem lögð var áhersla
á eftirvinnslu kvikmynda. Sveinbjörn
starfar hjá margmiðlunarfyrirtæk-
inu Gagarín en það gerði hann einnig
áður en hann fór í námið til Kanada.
Hugurinn stefnir þó út fyrir landstein-
ana og draumurinn er að starfa meira
í kvikmyndageiranum. „Ég væri bæði
til í að vinna að stórum kvikmyndum
og að vinna að eigin verkefnum,“ segir
Sveinbjörn sem þætti gaman að komast
út á verðlaunaafhendinguna í ágúst en
segir tíma og fjárhag verða að leiða í
ljós hvort af verði. solveig@frettabladid.is
SVEINBJÖRN J. TRYGGVASON: TILNEFNDUR TIL VERÐLAUNA Á SIGGRAPH-HÁTÍÐINNI
Mínútulöng mynd um vinskap
MIKE MYERS ER 46 ÁRA Í DAG
„Fyrir mér endurspeglast
Evrópa af ungu fólki sem
reynir að líta út fyrir að
vera miðaldra, og miðaldra
fólki sem reynir að líta út
fyrir að vera ungt.“
Leikarinn Mike Myers er
þekktastur fyrir hlutverk
sitt sem njósnarinn Austen
Powers.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Ólöf Aðalheiður
Pétursdóttir
Dalbraut 20, Reykjavík,
sem andaðist 17. þessa mánaðar, verður jarðsungin frá
Laugarneskirkju þriðjudaginn 26. maí klukkan 15.
Pétur Guðmundsson Sonja Nikulásdóttir
Sigurður Ingólfsson
Þórdís Guðmundsdóttir Axel Sveinsson
Inga Guðmundsdóttir Magnús Kristinsson
Guðlaugur Guðmundsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Elskulegi maðurinn minn, pabbi okkar,
fósturpabbi, tengdapabbi, afi og langafi,
Pétur Kristófer
Guðmundsson
fyrrum bóndi á Hraunum í Fljótum,
Hlíðarlundi 2, Akureyri,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri sunnudaginn
17. maí. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðju-
daginn 26. maí kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á að
láta Dvalarheimilið Hlíð njóta þess.
Rósa Pálmadóttir
Guðrún Björk Pétursdóttir Friðrik Gylfi Traustason
Elísabet Alda Pétursdóttir Sigurður Björgúlfsson
G. Viðar Pétursson Anna Kristinsdóttir
Pétur Sigurvin Georgsson Jónína Halldórsdóttir
Berglind Rós Magnúsdóttir Ásgrímur Angantýsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
Sigríður Eymundsdóttir
sjúkraliði, frá Flögu í Skriðdal,
sem lést fimmtudaginn 14. maí, verður jarðsungin frá
Seljakirkju miðvikudaginn 27. maí kl. 15.00. Jarðsett
verður frá Þingmúlakirkju í Skriðdal laugardaginn 30.
maí kl. 14.00.
Eygló Magnúsdóttir Jón Símon Gunnarsson
Eymundur Magnússon
Steinarr Magnússon Anna Sólveig Árnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Kjartan Helgason
fyrrum ferðaskrifstofueigandi,
lést á Landakotsspítala þriðjudaginn 19. maí.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
27. maí kl. 13.00.
Ingibjörg Einarsdóttir
Kristín Kjartansdóttir Issa
Björg Kjartansdóttir
Einar Helgi Kjartansson
og fjölsk.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Lovísa Hannesdóttir
Gullsmára 10, Kópavogi,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju mánudaginn
25. maí kl. 13.00.
Unnur S. Björnsdóttir
Hannes Björnsson Hafdís Ólafsdóttir
Kristján Björnsson Helga Haraldsdóttir
Sigríður Björnsdóttir Brynjar Guðmundsson
Illugi Örn Björnsson Fanný M. Ágústsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
MERKISATBURÐIR
1300 Dante Alighieri held-
ur niður til Vítis í Hinum
guðdómlega gleðileik.
1420 Hinrik sæfari verður stór-
meistari Kristsreglunnar.
1660 Konungdæmið er endur-
reist í Englandi með krýn-
ingu Karls II.
1920 Guðjón Samúelsson er
skipaður húsameistari rík-
isins.
1946 Jórdanía verður til sem
sjálfstætt ríki.
1987 Mesti jarðskjálfti á Suð-
urlandi síðan 1912 verð-
ur í Vatnafjöllum, suður af
Heklu, 5,7 stig.
1991 Erik Weihenmayer verður
fyrsti blindi maðurinn til
að ná tindi Everestfjalls.
AFMÆLI
MARKÚS
ÖRN ANT-
ONSSON,
fyrrverandi
borgarstjóri
í Reykjavík,
er 66 ára.
UNNUR
BIRNA
VILHJÁLMS-
DÓTTIR,
ungfrú
heimur
2005, er 25
ára.
Á þessum degi fyrir áttatíu
árum var Sjálfstæðisflokkur-
inn stofnaður af þingmönn-
um Íhaldsflokksins og Frjáls-
lynda flokksins. Fyrsti formað-
ur flokksins var Jón Þorláksson,
verkfræðingur og síðar borgar-
stjóri í Reykjavík. Hann gegndi
því embætti til 1934 þegar Ól-
afur Thors tók við. Því næst var
formaður dr. Bjarni Benedikts-
son 1961-1970, þá Jóhann Haf-
stein til 1973, næstur Geir Hall-
grímsson til 1983, Þorsteinn
Pálsson til 1991, Davíð Odds-
son til 2005, Geir H. Haarde til
2009 og núverandi formaður er
Bjarni Benediktsson.
Fyrstu tíu árin var Sjálfstæð-
isflokkurinn lengst af í stjórn-
arandstöðu, ef undanskilið er
tímabilið frá miðju ári 1932 til
miðs árs 1934 þegar flokkurinn
tók þátt í ríkisstjórn í fyrsta sinn.
Hann hefur komið að lands-
stjórninni í 22 ríkisstjórnum frá
stofnun hans og veitt 15 þeirra
forystu.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
lengst af verið stærsti flokkur-
inn, sé miðað við kjörfylgi sem
flokkurinn hefur fengið í kosn-
ingum. Mestu kosningu fékk
flokkurinn árið 1933, 48,0 pró-
sent, en þá verstu árið 2009,
23,7 prósent.
ÞETTA GERÐIST: 25. MAÍ 1929
Sjálfstæðisflokkurinn stofnaður
JÓN ÞORLÁKSSON Fyrsti formaður
Sjálfstæðisflokksins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
TVEIR VINIR Stuttmynd
Sveinbjörns er í þrívídd og
notar hann mjög einföld
form.