Fréttablaðið - 12.06.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 12.06.2009, Blaðsíða 4
4 12. júní 2009 FÖSTUDAGUR VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 28° 17° 22° 15° 15° 19° 19° 20° 15° 15° 22° 20° 28° 34° 11° 20° 30° 17° Á MORGUN Hæg, breytileg átt. SUNNUDAGUR 5-10 m/s á annnesjum nyrðra annars hægviðri 8 10 10 7 7 9 12 10 13 11 8 1010 10 1013 6 7 1012 7 ÞOKKALEGAR HELGARHORFUR Það verða ekki lætin í veðrinu þessa helgina frekar er síðustu daga. Horfur eru á hægum breytilegum áttum með smá vætu á víð og dreif einkum suðaustan- og austan- lands. Sýnu bjartast verður norðvestan- lands en sú gula gæti þó skotið upp koll- inum mjög víða. Sú úrkoma sem þó sést er heldur lítilfjörleg. Hiti breytist lítið. 8 8 3 8 5 8 5 3 5 3 3 Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur Minna kólesteról www.ms.is Benecol er náttúrulegur mjólkurdrykkur sem lækkar kólesteról í blóði. Mikilvægt er að halda kólesterólgildum innan eðlilegra marka því of hátt kólesteról í blóði er einn helsti áhættuþáttur kransæðasjúkdóma. Ein flaska á dag dugar til að ná hámarksvirkni. Í tengslum við frétt um leiklistarnám í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ ber þess að geta að leiklist hefur einnig verið kennd í Borgarholtsskóla síðast- liðin níu ár. Boðið er upp á allt að sjö áfanga í leiklist en tveir leiklistarkenn- arar á lista- og fjölmiðlasviði annast kennsluna. LEIÐRÉTTING EFNAHAGUR Eitt af hverjum sex heimilum, eða um tólf þúsund heimili, eru með mjög þunga greiðslubyrði og þurfa að verja meira en helmingi ráðstöfunar- tekna heimilisins í lánagreiðsl- ur. Liðlega fjórðungur heimila er með heildarskuldir sem nema um fimmföldum ráðstöfunartekjum þeirra. Þetta kemur fram í nýrri greiningu Seðlabanka Íslands á stöðu íslenskra heimila í kjölfar bankahruns. Miðað er við tekjur í febrúar 2009. „Þetta er svartara ástand en ég gerði ráð fyrir í febrúar,“ segir Tryggvi Þór Herbertsson alþingis- maður. „Þetta er mjög í samræmi við það sem maður hefði haldið og sýnir í raun hversu grafalvarlegt ástandið er. Staðan hefur versnað mikið síðan í febrúar, gengið hefur fallið, bæst hefur við verðbólguna, atvinnuleysi aukist og eignaverð lækkað,“ segir Tryggvi. Lilja Mósesdóttir, formaður félagsmálanefndar, er hins vegar á öðru máli og segir að hún hafi haldið að ástandið væri verra. „Mér finnst ánægjulegt að það skuli ekki vera stærri hópur sem er með of þunga greiðslubyrði,“ segir Lilja. Um 78 prósent hjóna með börn eru með viðráðanlega greiðslu- byrði, sem miðuð er við 40 prósent af ráðstöfunartekjum í greining- unni. Hins vegar eru um 97 prósent einstæðra foreldra með undir 500 þúsund krónur á mánuði. „Mér fannst gott að hægt var að greina þetta í ýmsar gerðir og þjóð- félagshópa. Hægt er að nota þess- ar upplýsingar þegar skattahækk- anir verða ákveðnar,“ segir Lilja. Vegna aðgerða í ríkisfjármálunum mun sá hópur fara stækkandi sem er með of þunga greiðslubyrði, að sögn Lilju, af því að ráðstöfunar- tekjur heimila munu minnka með skattahækkunum. Hún segir áhugavert hversu mikið af tekjuháu fólki er með nei- kvæða eiginfjárstöðu í húsnæði sínu. Um 40 prósent heimila með yfir 500 þúsund á mánuði eru með meira en 5 milljónir króna í nei- kvæðri eiginfjárstöðu. Ástæðan sé líklegast sú, að sögn Lilju, að verð á stórum eignum lækkar alltaf fyrst því erfiðast er að fjármagna slík kaup. „Þetta gæti orðið til þess að þegar verð fer að lækka á minni eignum vegna offramboðs þá fer eiginfjárstaða þeirra sem eru tekjulágir að versna,“ segir Lilja. Jafnframt er tæplega helmingur þeirra heimila sem er með íbúða- lán í erlendri mynt með yfir 500 þúsund krónur á mánuði. Vaxta- bætur, barnabætur, meðlög eða námslán frá LÍN eru ekki tekin með inn í reikninginn. vidirp@frettabladid.is Eitt af sex heimilum er í vondum málum Um tólf þúsund heimili eru með mjög þunga greiðslubyrði. Tekjuhátt fólk er með neikvæðari eiginfjárstöðu. „Svartara ástand en ég gerði ráð fyrir,“ segir þingmaður. Formaður félagsmálanefndar segist hafa haldið ástandið verra. GREININGIN KYNNT Þorvarður Tjörvi Ólafsson, annar þeirra sem gerði greininguna fyrir Seðlabankann, kynnir greininguna á málstofu í Seðlabankan- um í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA LILJA MÓSESDÓTTIR Hún segir ánægju- legt að hægt hafi verið að greina þjóð- félagshópa. Það komi sér vel þegar skattahækkanir verði ákveðnar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR DÓMSTÓLAR Fyrrum blaðamað- ur DV hefur verið dæmdur til að greiða konu 700 þúsund krón- ur í skaðabætur, auk þess sem ummæli um hana í blaðinu voru dæmd dauð og ómerk. Upphaf málsins var umfjöllun um meðferðarheimili á Norður- landi. Blaðamaður hafði ummæli eftir nafngreindum viðmæl- anda um fyrrum mágkonu hans, meðal annars að hún hefði verið í sjálfsvígshugleiðingum. Dómur- inn sagði að ekki hefði verið um að ræða viðtal við fyrrum mág- inn. Því teljist viðmælandinn ekki vera höfundur efnisins heldur blaðamaðurinn. - jss Blaðamaður DV dæmdur: Sekt og um- mæli ómerkt INNANRÍKISMÁL „Ég hef ákveðið að þau verði ekki send sjálfkrafa til Grikklands,“ segir Ragna Árna- dóttir dómsmálaráðherra um sex hælisleitendur frá Grikklandi sem hafa verið hér í meira en hálft ár. Á grundvelli Dyflinnarreglna eru hælisleitendur sjálfkrafa sendir til fyrsta viðtökuríkis. „Stefnan er sú að það verði endursendingar til Grikklands en málin verða skoðuð með til- liti til hvers og eins. Við þurfum að skoða þetta með hliðsjón af skýrslunni,“ segir Ragna. Í skýrslu sem unnin var fyrir dómsmálaráðuneytið kemur fram að Sameinuðu þjóðirnar leggist gegn því að flóttamenn séu sendir aftur til Grikklands. Hins vegar hafi aðstæður þar skánað. - vsp Hælisleitendur frá Grikklandi: Ekki sendir sjálfkrafa burt DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur maður hefur verið dæmdur í eins mánaðar fangelsi og til svipting- ar ökuréttar í fimm ár. Maðurinn stal úr verslunum vörum fyrir nokkra tugi þúsunda. Hluta þeirra greiddi hann með greiðslukorti annars manns. Þá stal hann tveimur blómvöndum í Krónunni. Hinn dæmdi var að auki tekinn drukkinn undir stýri. Hann hafði áður verið tekinn fullur og rétt- indalaus við akstur og voru þau mál sameinuð málinu nú. Maður- inn er erlendur ríkisborgari. - jss Fangelsi í mánuð: Ók fullur og stal blómum BLÓM Maðurinn stal meðal annars tveimur blómvöndum. REYKJAVÍK Kaffihús verður opnað í dag í Hljómskálanum í samnefnd- um garði. Ætlunin er að hægt verði að kaupa þar veitingar í sumar og standa að uppákomum, til að mynda á hljómsveit að spila af þaki Hljómskálans á laugardögum. Klukkan 14 munu borg- arfulltrúar hrinda af stað átakinu Björtu Reykjavík á Lækjartorgi með því að tyrfa torgið að hluta. „Við ætlum að nota sumarið til að gera miðborgina okkar enn grænni, fegurri og betri. Meðal annars með því að fegra leik- og útisvæðin,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri. - kóþ Borgarfulltrúar tyrfa torgið: Hljómskálakaffi opnað í dag HANNA BIRNA KRISTJÁNSDÓTTIR Forsetakosningar í dag Forsetakosningar fara fram í Íran í dag, eftir mikla og harða kosninga- baráttu undanfarið. Tveir helstu frambjóðendurnir eru Mahmoud Ahmadinejad forseti og Mir Hoss- ein Mousavi. Mousavi hefur kallað eftir meiru félagslegu frelsi, opnari fjölmiðlum og því að samskipti við Vesturlönd verði bætt. ÍRAN STJÓRNSÝSLA „Hann ákveður sjálf- ur sitt hæfi og ég hef ekkert um það að segja,“ segir Ragna Árna- dóttir dómsmálaráðherra um van- hæfi Valtýs Sigurðssonar ríkissak- sóknara. Eva Joly, ráðgjafi vegna rann- sóknar á íslenska bankahruninu, sagðist í Kastljósi í fyrradag vera þeirrar skoðunar að Valtýr ætti að víkja úr embætti að öllu leyti. Valtýr lýsti sig vanhæfan 18. maí síðastliðinn til að fara með mál er tengjast bankahruninu. Ástæðan er að sonur hans var einn af æðstu stjórnendum Exista. Ragna átti fund með Evu Joly og Ólafi Þór Haukssyni, sérstök- um saksóknara, í gær og segir að þau hafi átt hreinskiptið samtal um þær lagabreytingar sem unnið er að. Hún segist ekki hafa trú á því að Eva hætti að vinna með íslensk- um stjórnvöldum. „Ég hef fulla trú á að það takist að finna botn í þessu máli. Fundur- inn í gær gaf mér ekki tilefni til að halda annað,“ segir Ragna. Hún segir jafnframt að verið sé að vinna að tillögum Evu um að skipaðir verði sjálfstæðir saksókn- arar innan embættis sérstaks sak- sóknara. Eva Joly hefur lagt fram tillögur um að skipaðir verði sjálf- stæðir saksóknarar yfir hverjum banka. - vsp Dómsmálaráðherra segir ríkissaksóknara ákveða sjálfur sitt hæfi: Vinna að tillögum Evu Joly EVA JOLY Hefur lýst því yfir að hún vilji að ríkissaksóknari víki að öllu leyti. Einn- ig að skipaðir verði sérstakir saksóknarar yfir hverjum banka. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL GENGIÐ 11.06.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 219,3622 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 128,06 128,68 210,83 211,85 179,5 180,5 24,102 24,244 20,173 20,291 16,687 16,785 1,3068 1,3144 197,54 198,72 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.