Fréttablaðið - 12.06.2009, Qupperneq 6
6 12. júní 2009 FÖSTUDAGUR
FANGELSISMÁL Vista hefur þurft allt
að sjö gæsluvarðhaldsfanga í lög-
reglustöðinni við Hverfisgötu á
undanförnum dögum, þar sem öll
fangelsi landsins eru stappfull.
Aldrei fyrr hafa jafnmargir setið
í fangelsi hér á landi og nú, sam-
kvæmt upplýsingum frá Fangels-
ismálastofnun. Í gær voru um 180
fangar í fangelsum landsins. Þar
af voru ríflega 150 manns í afplán-
un, sem er met. Þá voru tæplega
30 í gæsluvarðhaldi, sem er einn-
ig met. Í einangrun sitja nú sextán
manns, sem er þriðja metið.
Öll rými eru fullnýtt og tvísett
í stærri klefana, sem eru fimm í
Hegningarhúsinu við Skólavörðu-
stíg, tvö í fangelsinu í Kópavogi
og einn í fangelsinu á Akureyri.
Við blasir að tvísetja þurfi einnig
í einhverja klefa á Litla-Hrauni, ef
fram heldur sem horfir. Einangr-
unarpláss í fangelsum landsins eru
tíu talsins.
„Þetta er talsvert meira held-
ur en nokkru sinni fyrr og fjölda-
þróunin mjög hröð og brött,“ segir
Páll E. Winkel, forstjóri Fangels-
ismálastofnunar. „Jákvæða hliðin
er sú að lögreglan er að standa sig
miklu betur heldur en áður.“
Hann segir starfsfólk í fangels-
um landsins standa sig ótrúlega
vel miðað við aðstæður.
Sé tekið meðaltal fjölda fanga
í gæsluvarðhaldi á ári frá 1996
kemur í ljós að þeir hafa verið einn
til fjórir á ári, þar til árið 2008. Þá
rauk fjöldinn upp.
„Við erum að ná fleirum og
dómar eru að þyngjast, sem þýðir
að það þarf fleiri pláss,“ segir Stef-
án Eiríksson, lögreglustjóri á höf-
uðborgarsvæðinu. Hann segir það
nánast afrek hvernig Fangelsis-
málastofnun hafi tekist að halda
uppi því þjónustustigi sem hún
geri.
„En það er ekki hægt að gera það
til lengdar nema að undan láti,“
segir lögreglustjóri. Hann segir
vaxandi fjölda fanga, þar á meðal
gæsluvarðhaldsfanga, til kominn
meðal annars vegna stórra fíkni-
efnamála. Fíkniefnadeild LRH sé
að skila miklum árangri sem menn
séu mjög stoltir af.
„Þá er nálgun varðandi kyn-
ferðisbrot og alvarlegri ofbeld-
isbrot að breytast,“ segir Stefán.
„Við erum í mjög auknum mæli að
krefjast gæsluvarðhalds yfir þeim
sem eru grunaðir í slíkum málum
á grunni rannsóknarhagsmuna
að sjálfsögðu, en einnig á grunni
almannahagsmuna sem er stefnu-
breyting af okkar hálfu. Þar erum
við að svara kalli almennings um
að tekið sé af festu á þessum alvar-
legu brotum.“ jss@frettabladid.is
HEGNINGARHÚSIÐ Í hegningarhúsinu er nú tvísett í fimm klefum. Einnig er tvísett í
klefum í fangelsunum í Kópavogi og á Akureyri, samkvæmt upplýsingum Fangelsis-
málastofnunar.
Þrefalt met í fjölda
fanga hér á landi
Ríflega 180 fangar eru nú í fangelsum landsins. Tæplega þrjátíu þar af eru í
gæsluvarðhaldi og af þeim eru sextán í einangrun. Þetta er metfjöldi í sögunni.
FJÖLDI FANGA 10.05. 2009
Heildarfjöldi fanga 181
Í afplánun 152
Í gæsluvarðhaldi 29
Í gæslu/einangrun 16
DÓMSTÓLAR Hæstiréttur hefur
staðfest níu ára fangelsisdóm
yfir athafnamanninum Þorsteini
Kragh.
Þorsteinn skipulagði innflutn-
ing á um 200 kílóum af hassi til
landsins. Aldinn Hollendingur,
Jacob van Hinte, sem flutti efnið
inn falið í húsbíl, hlaut sjö og hálfs
árs fangelsi sem Hæstiréttur stað-
festi einnig.
Hollendingurinn játaði sök en
Þorsteinn neitaði allri aðild að
málinu. Framburður beggja þótti
með miklum ólíkindum.
Efnin bárust til landsins 10.
júní í fyrra, vandlega falin í hús-
bíl Hollendingsins um borð í Nor-
rænu. Hollendingurinn benti fyrst
í stað á Þorstein sem skipuleggj-
anda smyglsins.
Á síðari stigum rannsóknarinn-
ar tók framburður Hollendingsins
u-beygju. Kann-
aðist hann þá
ekkert við aðild
Þorsteins og bar
að tveir Banda-
ríkjamenn, Bill
og Jim, hefðu
fengið hann til
verksins.
Sagði í dómi
héraðsdóms að
breyttur fram-
burður Hollendingsins væri „svo
ótrúverðugur og reyfarakennd-
ur að hann verði ekki lagður til
grundvallar niðurstöðunni“. Þá
væri framburður Þorsteins með
ólíkindum og „í algjöru ósamræmi
við flest annað sem fram er komið
í málinu“. Þorsteinn eigi sér engar
málsbætur.
Það var virt Hollendingnum til
refsilækkunar að hafa játað og
vísað á Þorstein, jafnvel þótt hann
hafi síðar horfið frá þeim fram-
burði sínum. - sh
Hæstiréttur staðfestir dóma fyrir smygl á tæplega 200 kílóum af hassi:
Þorsteinn Kragh í fangelsi í níu ár
JACOB VAN HINTE
ÞORSTEINN KRAGH Dómur Hæstaréttar í
máli Þorsteins Kragh féll í gær og var þar
staðfest sekt hans.
BANKAHRUNIÐ „Ég staðfesti orð Jóns [Daní-
elssonar hagfræðings] um að það hafi verið
lagt hart að mér að segja af mér,“ segir Sig-
ríður Benediktsdóttir, nefndarmaður í rann-
sóknarnefnd Alþingis.
Jón sagði í samtali við Eyjuna.is í gær
að ekki væri rétt, sem haft var eftir Páli
Hreinssyni, formanni rannsóknarnefndar-
innar, í Fréttablaðinu í gær, að ekki hefði
verið lagt að Sigríði að hætta í nefndinni,
heldur hefði afsögn hennar verið rædd sem
einn möguleiki af mörgum, færi svo að hún
yrði metin vanhæf. Jón rifjaði upp að Sigríð-
ur hefði sagt sér að nefndarmennirnir tveir,
Páll Hreinsson og Tryggvi Gunnarsson,
hefðu lagt hart að sér að víkja.
Umræða um vanhæfi Sigríðar hófst eftir
að Jónas Friðrik Jónsson, fyrrverandi for-
stjóri Fjármálaeftirlitsins, skrifaði
formanni nefndarinnar og sagði Sig-
ríði ekki lengur treystandi eftir að
hún sagðist telja að bankahrunið
mætti rekja meðal annars til and-
varaleysis eftirlitsstofnana.
Jónas telur að þessar yfirlýsingar
byggi ekki á staðreyndum, heldur á
„tilfinningum, hugsanlega lituðum
af ómálefnalegum fréttaflutn-
ingi fjölmiðla og viðhorfum
ákveðinna stjórnmálamanna“.
Sigríður telur að enn sé
samstarfsgrundvöllur í rann-
sóknarnefnd Alþingis, þrátt
fyrir allt sem gengið hefur á.
Ekki náðist í Pál Hreinsson í
gær. - kóþ
SIGRÍÐUR BENEDIKTSDÓTTIR
Dr. Sigríður Benediktsdóttir er
hagfræðingur í rannsóknarnefnd
Alþingis. Hún telur að enn sé
samstarfsgrundvöllur í nefnd-
inni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Sigríður Benediktsdóttir segir enn samstarfsgrundvöll í rannsóknarnefnd:
Hart var lagt að mér að hætta
BANDARÍKIN 88 ára gamall maður
hóf skothríð á minningarsafni
um helförina í Washington í gær.
Einn maður lét lífið, en það var
öryggisvörður á safninu. Aðrir
öryggisverðir skutu árásarmann-
inn og komu þannig í veg fyrir að
fleiri létu lífið. Þúsundir manna
voru á safninu þegar árásin átti
sér stað.
Árásarmaðurinn liggur þungt
haldinn á sjúkrahúsi. Hann er
þekktur kynþáttahatari í Banda-
ríkjunum og hefur verið tengdur
við nýnasistahreyfingar. Banda-
ríkjaforseti var meðal þeirra
sem fordæmdu verknaðinn í gær.
- þeb
88 ára gamall kynþáttahatari:
Hóf skothríð á
helfararsafni
HJÁLPARSTARF Ítalir og Frakk-
ar hafa ekki staðið við loforð um
aukinn stuðn-
ing við fátæk
Afríkuríki.
Þetta er meðal
niðurstaðna í
skýrslu hjálp-
arsamtakanna
One, sem sett
voru á fót af
Bono, söngvara
U2, til að berj-
ast gegn fátækt í heiminum. Frá
þessu segir á fréttavef BBC.
Í skýrslunni segir að Ítalía og
Frakkland hafi minnkað fjár-
framlög til Afríkuríkja, þrátt
fyrir loforð um hið gagnstæða
á Gleneagles-efnahagsráðstefn-
unni árið 2005. Ríkisstjórn Ítalíu
segir efnahagskreppunni um að
kenna.
Einnig kemur fram í skýrslu
One að Bandaríkin, Kanada og
Japan hafi að mestu leyti staðið
við loforð sín í þessum efnum. - kg
Skýrsla hjálparsamtaka:
Frakkar og Ítal-
ir svíkja loforð
BONO
Kannabisræktun upprætt
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók
130 kannabisplöntur í íbúð í aust-
urbæ Reykjavíkur í fyrradag. Að auki
fundust um 200 grömm af tilbúnum
efnum. Karlmaður á fertugsaldri var
handtekinn. Hann hefur áður komið
við sögu hjá lögreglu.
Lagði hníf að hálsi manns
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið
dæmdur í fjögurra mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að leggja hníf að
hálsi annars manns og ógna þannig
lífi hans. Atvikið átti sér stað á Ísafirði.
DÓMSTÓLAR
Ætti dómsmálaráðherra að fara
að kröfum Evu Joly um fjölgun
sérstakra saksóknara?
Já 93,3%
Nei 6,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Eiga námslán að vera jafnhá
atvinnuleysisbótum?
Segðu þína skoðun á vísir.is
VIÐSKIPTI Byr hefur ákveðið að
gera fyrirtækjum sem hafa tekið
lán í erlendri mynt í gegnum
sparisjóðinn kleift að leita eftir
lækkun á greiðslubyrði að undan-
gengnum skilyrðum.
Í tilkynningu frá sparisjóðn-
um í gær kemur fram að lántaki
verði að greiða reglulega fasta
fjárhæð þar sem afborgun og
vextir miðast við greiðslubyrði
eins og hún var 2. maí í fyrra en
ekki við gengi viðkomandi gjald-
miðils.
Sá munur sem myndast við
þetta bætist við höfuðstól láns
eða dregst frá honum, allt eftir
gengissveiflum krónunnar. Við
það lengist lánstíminn eða stytt-
ist, líkt og segir í tilkynningunni.
- jab
BYR Í HAFNARFIRÐI Fyrirtæki geta samið
við Byr um lægri greiðslu af lánum í
erlendri mynt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Byr nær lendingu með lánin:
Geta samið um
lægri greiðslur
LÖGREGLAN Lögreglumaður á Suð-
urnesjum, sem greint var frá í
fjölmiðlum í síðasta mánuði að
hefði „lýst yfir velþóknun sinni“ á
niðrandi ummælum um hælisleit-
endur á netinu, ætlaði alls ekki
að gera það, heldur var hann að
hrósa annarri tengdri frétt.
Þetta segir Sigríður Björk Guð-
jónsdóttir, lögreglustjóri á Suð-
urnesjum, eftir að hún ræddi við
manninn, en nafn hans hefur ekki
verið gefið upp. Sigríður segir
að ummælin við fréttina hafi svo
flækst inn í umræðu fólks um
mann í hungurverkfalli, og öllu
verið blandað saman í fjölmiðl-
um. Málið minni á að varlega
skuli farið á netinu. - kóþ
Lögreglumaður á Fésbók:
Tók ekki undir
með rasisma
KJÖRKASSINN