Fréttablaðið - 12.06.2009, Síða 8

Fréttablaðið - 12.06.2009, Síða 8
8 12. júní 2009 FÖSTUDAGUR 1. Hversu marga starfsmenn vill sérstakur saksóknari hafa? 2. Hversu marga útrásarvík- inga hefur rannsóknarnefnd Alþingis yfirheyrt? 3. Hvað kostar að tjalda í Vest- mannaeyjum? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 34 Reykjavíkurborg auglýsir eftir myndlistarmönnum til að taka þátt í forvali að lokaðri samkeppni um gerð standandi bronsstyttu í fullri stærð af Tómasi Guðmundssyni, skáldi á yngri árum. Samkeppnin mun fara fram eftir samkeppnisreglum Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM). Sérstök forvalsnefnd velur úr innsendum umsóknum þrjá myndlistarmenn til þess að vinna tillögu. Myndlistarmenn sem áhuga hafa á að vera með í samkeppninni eru beðnir um að senda inn umsókn um þátttöku, ásamt greinargóðum upplýsingum um listferil sinn og myndum af fyrri verkum, merktum með nafni höfundar, ennitölu, heimilisfangi og símanúmeri Dómnefnd skipuð fulltrúum Reykjavíkurborgar og SÍM mun velja 3 myndlistar- menn úr hópi umsækjenda til að gera tillögu að listaverki. Listamennirnir sem valdir verða skila inn frumdrögum að listaverki ásamt stuttri lýsingu á hugmynd. Hverjum þeirra verða greiddar 250.000 kr. fyrir tillögugerðina. Dómnefndin mun síðan velja eina tillagnanna til útfærslu og fær listamaðurinn umsamda upphæð til að ljúka verkinu, ef um framkvæmd verksins semst. Gert er ráð fyrir að val á þátttakendum liggi fyrir 10. júlí 2009. Skilafrestur tillagna að listaverki verður 1. október 2009. Umsóknir um þátttöku í samkeppninni skulu hafa borist fyrir kl. 14.00, miðvikudaginn 24. júní 2009 til skrifstofu Sambands íslenskra myndlistar- manna að Hafnarstræti 16 í Reykjavík. Utanáskrift: Samkeppni um styttu af Tómasi Guðmundssyni Samband íslenskra myndlistarmanna, Hafnarstræti 16, Pósthólf 1115, 101 Reykjavík Samkeppni um gerð styttu af Tómasi Guðmundssyni SJÁVARÚTVEGSMÁL „Vinnubrögðin varðandi þetta mál eru algjörlega forkastanleg. Með þetta bréf er farið eins og mannsmorð og látið eins og það sé ekki til,“ segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, sem gagn- rýnir málsmeðferð Jóns Bjarnason- ar sjávarútvegsráðherra hart vegna nýrrar nýtingarstefnu stjórnvalda í þorskveiðum sem Fréttablaðið greindi frá á miðvikudag. „Ég vek athygli á því að bréf ráð- herrans er ritað til Alþjóðahafrann- sóknaráðsins, ICES, hinn 22. maí. Hálfum mánuði síðar kemur veiði- ráðgjöfin frá Hafrannsóknastofn- uninni og viðbrögðin hjá ráðherran- um eru að yfir þessi mál verði farið og ekkert sé afráðið. Samt liggur fyrir núna að hann og ríkisstjórn- in eru búin að taka allar ákvarð- anirnar varðandi þorskinn og til- kynna þetta út í heim. Þetta lítur allt út eins og verið sé að blekkja,“ segir Einar. Einar segir að sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd hafi ekki verið tilkynnt um málið og fyrst í vik- unni hefði komið í ljós að bréfið hefði verið sent. „Ég spyr bara; hvað á þetta laumuspil að þýða? Er stefna ríkisstjórnarinnar varðandi þorsknýtinguna orðin að einhverju ríkisleyndarmáli sem enginn má vita af nema ríkisstjórnin og þeir hjá ICES? Í þessu máli fylgir ríkis- stjórnin vana sínum og stundar það að fara í feluleiki eins og væri hún krakki. Þetta eru mjög vond vinnu- brögð og hreint nýmæli.“ - shá Einar K. Guðfinnsson gagnrýnir Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra hart: Nýting þorsks ríkisleyndarmál EINAR K. GUÐFINNSSON JÓN BJARNASON STJÓRNSÝSLA Indriði H. Þorláksson, hagfræðingur og fyrrum ríkisskatt- stjóri, hefur verið ráðinn aðstoðar- maður Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra. Indriði var síðast ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneyt- inu. Um leið hefur verið greint frá því að ráðherrann hafi sett Guð- mund Árnason sem ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu til ársloka. Guðmundur stýrði áður mennta- málaráðuneytinu, en þangað fer nú Baldur Guðlaugsson, sem hefur verið í leyfi frá störfum sínum sem ráðuneytisstjóri fjármála. Þetta eru tímabundnar ráðstafan- ir, því ráðgert er að þeir Guðmundur og Baldur snúi til fyrri starfa sinna um næstu áramót, án þess að það sé skýrt nánar í tilkynningu frá fjár- málaráðuneytinu. - kóþ Guðmundur Árnason gerður að ráðuneytisstjóra fjármála: Baldur í menntamál og Indriði aðstoðarmaður Steingríms Joð GUÐMUNDUR ÁRNASON BALDUR GUÐLAUGSSON INDRIÐI HAUKUR ÞOR- LÁKSSON NEYTENDUR Atlantsolía mun end- urgreiða öllum viðskiptavin- um sínum, sem tóku bensín frá morgni 29. maí til hádegis mánu- daginn 8. júní, því sem nemur ótímabærri hækkun vörugjalds á bensíni. Í tilkynningu frá Atlantsol- íu kemur fram að dælulyklahaf- ar og aðrir viðskiptavinir sem notuðu kreditkort við kaupin fái endurgreiðslu inn á kortareikn- ing sinn. Þeir sem notuðu debet- kort fái greitt inn á bankareikn- ing sinn. Áætlað sé að öllum endur- greiðslum verði lokið innan þriggja daga. - kg Ótímabær bensínhækkun: Atlantsolía end- urgreiðir öllum SÖFNUN „Þetta er mjög góð leið til að enda grunnskólagönguna,“ segir Kolfinna Tómasdóttir, vara- formaður nemendaráðs Háteigs- skóla, sem útskrifaðist úr tíunda bekk skólans á miðvikudag. Við það tilefni færðu útskriftarnem- arnir styrktarfélaginu Göngum saman, sem hefur það að mark- miði að styrkja grunnrannsókn- ir á krabbameini í brjóstum, 400.000 krónur sem þeir söfnuðu í vor. Að sögn Kolfinnu var fjárins aflað á ýmsan máta. Nemarnir héldu kökubasar og áheitanótt, þar sem þeir stunduðu íþrótt- ir í stað þess að sofa, seldu sér- hannaða boli og gerðu heimildar- mynd um brjóstakrabbamein sem áhorfendur borguðu sig inn á. - kg Útskriftarnemar Háteigsskóla: Gáfu 400.000 krónur til góðs málefnis MEÐ GJÖFINA Nemar í 10. bekk Háteigs- skóla sem vildu láta gott af sér leiða. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Atvinnulausir frítt í sund Ákveðið hefur verið að veita atvinnu- lausum íbúum Álftaness frítt í sund í Álftaneslaug. ÁLFTANES SAMGÖNGUR Nýr loftferðasamn- ingur mun heimila áætlunar- flug milli Íslands og Tyrklands. Samningurinn var undirritaður á þriðjudag í utanríkisráðuneytinu og er sá fyrsti milli landanna, en Tyrkland er eitt af þeim löndum sem Ísland hefur átt í viðræðum við að undanförnu. Þessi samningur auðveld- ar flug til Tyrklands og styrkir möguleika fyrir íslenska flugrek- endur sem vilja sinna störfum og verkefnum þar. Haydar Yalcin, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Flugmálastjórnar Tyrklands, undirritaði samning- inn ásamt Einari Gunnarssyni, formanni íslensku samninga- nefndarinnar. - hds Nýr loftferðasamningur: Flug til Tyrk- lands heimilað Yfirtaka rekstrarsamninga Hafnarfjarðarbær hyggst taka yfir rekstrarsamninga Nýsis hf. vegna Lækjarskóla, Álfasteini og Bjarkarhúsi og kaupa búnað sem þar er. Nýsir hefur verið í miklum fjárhagserfið- leikum. HAFNARFJÖRÐUR AKUREYRI Hermann Jón Tómasson hefur tekið við af Sigrúnu Björk Jakobsdóttur sem bæjarstjóri á Akureyri. Voru skiptin gerð á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag. Bæjarstjóra- skiptin eru gerð samkvæmt mál- efnasamningi Samfylkingar og Sjálfstæð- isflokks sem gerður var eftir síðustu bæjar- stjórnarkosn- ingar. Í honum kemur fram að bæjarstjóri fyrstu þrjú árin skuli vera frá Sjálfstæðisflokknum, en síðasta árið frá Samfylkingunni. Hermann Jón og Sigrún Björk hafa lýst því yfir að þau muni ekki þiggja biðlaun í lok starfstíma síns sem bæjarstjórar. - kg Bæjarstjóraskipti á Akureyri: Hermann Jón tekinn við HERMANN JÓN TÓMASSON STJÓRNSÝSLA Setja á Björn Bergs- son hæstaréttarlögmann sem sér- stakan ríkissaksóknara í málum er varða bankahrunið. Ekkert setn- ingarbréf hefur hins vegar verið gefið út en enginn tímarammi verður á skipun hans. Ragna Árna- dóttir dómsmálaráðherra gerir ekki ráð fyrir að staðan verði aug- lýst. „Ef þú setur einhvern til að fara með eitt einstakt mál þá þarf ekki að auglýsa það. Björn verður sett- ur ríkissaksóknari í einstökum málum en það leysir ekki þá stöðu að ríkissaksóknari er búinn að segja sig frá málaflokknum í heild sinni,“ segir Ragna. Valtýr Sigurðsson ríkissak- sóknari sagði sig frá málefnum er varða bankahrunið 18. maí síðast- liðinn þar sem sonur hans var einn af aðalstjórnendum Exista. Ragna segist vera að vinna að lagabreytingu sem hún kynnir fyrir ríkisstjórninni á morgun þar sem heimilt verður að setja sérstakan ríkissaksóknara sem varðar bankahrunið. Engin laga- heimild er í núgildandi lögum til þess að skipa sérstakan ríkissak- sóknara í heilum málaflokki, ein- ungis í einstökum málum, að sögn Rögnu. Í áliti umboðsmanns Alþingis frá því 29. desember 2008, sem hann tók til athugunar að eigin frumkvæði, um setningu Björns Rúnars Sigurðssonar sem skrif- stofustjóra á nýrri efnahags- og alþjóðafjármálaskrifstofu for- sætisráðuneytisins, kemur fram að auglýsa hefði þurft stöðuna. Trausti Fannar Valsson, lekt- or í stjórnsýslurétti við Háskóla Íslands, segir að við setningu embættismanns sé gert ráð fyrir því að auglýsa þurfi stöðuna en á því séu undantekningar. Fyrst og fremst ef starfið er ekki talið aðalstarf. Það á til dæmis við um setu í nefndum á vegum ríkis- ins, segir Trausti. Dómsmálaráð- herra gerir hins vegar ráð fyrir að starf sérstaks ríkissaksóknara verði aðalstarf. Enn eigi þó eftir að útfæra það. Í lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna er mælt fyrir í 24. gr. að leyfilegt sé að setja mann til að gegna embætti um stundarsakir ef embættismað- ur fellur frá, er fjarverandi vegna veikinda eða af öðrum ástæðum. Þó aldrei lengur en í eitt ár. „Það hefur ekki verið útilokað að hægt sé að beita þessu ákvæði þótt mér sé ekki kunnugt um að á það hafi reynt. Þar fyrir utan kann að vera eðlilegt að stjórnvöld auglýsi störf til að tryggja vand- aða stjórnsýsluhætti og í störfin veljist hæfasti einstaklingurinn,“ segir Trausti. vidirp@frettabladid.is Vera kann að aug- lýsa þurfi stöðuna Setja á sérstakan ríkissaksóknara í málefnum um bankahrunið. Dómsmálaráð- herra gerir ekki ráð fyrir að auglýsa það. Lektor segir að undantekning á aug- lýsingaskyldu sé ef starf er aukastarf. Gert er ráð fyrir að starfið sé aðalstarf. RAGNA ÁRNADÓTTIR Mun skipa hæstaréttarlögmann sem sérstakan ríkissaksókn- ara í málefnum sem varða bankahrunið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.