Fréttablaðið - 12.06.2009, Síða 10

Fréttablaðið - 12.06.2009, Síða 10
10 12. júní 2009 FÖSTUDAGUR ■ Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@ frettabladid.is KJARTAN GUÐMUNDSSON Staðgengill umboðs- manns neytenda specialsHljómsveitin DANSLEIKIR á Fjörukránni Hljómsveit Rúnars Þórs Specials sérhæfa sig í sjöunda áratugnum - Bítlunum, Stones og Pretty Things Sérfræðingarnir lofa stanslausu stuði á Fjörukránni. Smeygjum okkur í dansskóna og mætum tímanlega. Tilboð kr. 23.995* Nýja S2120 ryksugan frá Miele er lágvær, létt, kraftmikil og með stórum poka. Parketbursti að andvirði kr. 9.220 fylgir frítt með. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Sparaðu með Miele Þú sparar kr. 9.220 Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur *tilboð gildir á meðan birgðir endast. A u g lý si n g a sí m i – Mest lesið Staðgengill umboðs- manns neytenda hafði veður af því að margir söknuðu verkjalyfsins Treo úr hillum apóteka um allt land. Hann fór því á stúfana og komst að því að lyfið vinsæla var ófáanlegt um nokk- urra vikna skeið, en er nú fáanlegt aftur. Að sögn lyfjafræð- ings hjá Lyfju var mjög mikið spurt eftir Treo meðan það var ófáanlegt. Ekki síst af mígrenissjúkling- um, enda sé Treo gott fyrir þá og innihaldi bæði koffín og asp- irín. Vissulega séu til önnur lyf sem geti gert sama gagn, en margir séu vanafastir og kjósi það sem þeir telji henta sér best. Hjá Apótekaranum var tekið í sama streng og sagt að viðskiptavinir hafi gengið á milli apóteka til að freista þess að ná sér í Treo. Hjá Distica, sem flytur inn Treo, fengust þær upplýsingar að lyfið hefði lent í nokkurra vikna bið. Misræmi hafi verið í texta fylgiseðils, sem um gilda ströng skilyrði, og því þurft að umpakka upplaginu. Heyrst hefði af þessum fjölda sem saknaði Treo, en nú gæti fólk tekið gleði sína á ný. Neytendur: Margir söknuðu verkjalyfsins Treo úr hillum apóteka Vanafastir taka gleði sína KOSNINGAR Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, veifar fána landsins á kosningafundi á miðvikudag. Forseta- kosningar fara fram í Íran í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP EVRÓPUMÁL Það er erfitt að taka undir það að ESB fari illa með Letta, eins og Ögmundur Jónas- son heilbrigðisráðherra hélt fram í Fréttablaðinu á laugardag, segir Eiríkur Bergmann, forstöðumað- ur Evrópuseturs Háskólans á Bif- röst. Sannleikurinn sé sá að Lett- ar geti einfaldlega ekki uppfyllt Maastricht-skilyrðin, og fái því ekki að taka upp evru. „Evrópusambandið hefur tekið illa í að slaka á þessum skilyrðum gagnvart Austur-Evrópu. Auð- vitað má spyrja að því hvort ESB eigi að draga úr Maastricht-kröf- unum yfirleitt. En það er annað mál,“ segir hann. - kóþ Eiríkur Bergmann um ESB: Lettar ná ekki skilyrðunum DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur dæmt bónda til að greiða stúlku tæpar tvær milljónir í bætur eftir að nýborin kýr sem hann átti réðst á stúlkuna og slasaði hana. Hér- aðsdómur hafði áður sýknað bónd- ann. Stúlkan var fjórtán ára árið 2002 þegar hún var við störf hjá bóndanum, þá alls óvön sveita- störfum. Faðir bóndans fór með hana til aðstoðar til þess að reka heim nýborna kú. Skipti þá engum togum að kýrin réðst á stúlk- una, stakk höfðinu í kvið hennar og stangaði hana um koll. Stúlk- an féll á bakið á þúfótt undirlag. Þá stappaði kýrin á höfði hennar og traðkaði á andliti hennar. Auk áverka á höfði hlaut stúlkan sam- fallsbrot í mjóhrygg. Varanleg örorka hennar var metin fimm prósent. Í dómsniðurstöðu Hæstarétt- ar segir meðal annars að sérstök skylda hafi hvílt á eiganda kýrinn- ar og vinnuveitanda stúlkunnar að tryggja að henni yrði ekki falið að sækja kúna, þar sem nýborn- ar kýr geta brugðist illa við áreiti. Ella hefði honum borið skylda til að tryggja öryggi stúlkunnar við verk af þessu tagi. Ekki var talið að hún hefði átt raunhæfan kost á að komast undan eða afstýra árás kýrinnar. -jss KÝR Nýbornar kýr geta reynst ansi skæð- ar ef þeim dettur í hug að setja undir sig hausinn. Hæstiréttur sneri við dómi héraðsdóms sem áður hafði sýknað bónda: Stúlka fær tvær milljónir í bætur SVISS, AP Alþjóðaheilbrigðisstofn- unin lýsti því yfir í gær að H1N1- flensan, sem einnig hefur verið kölluð svínaflensan, sé orðin að heimsfaraldri. Það þýðir að flensan sé að dreifast í að minnsta kosti tveimur hlutum heimsins. Flensan er sú fyrsta í 41 ár til þess að verða að heimsfaraldri. „Heimsbyggðin er að fara inn í fyrstu daga fyrsta heimsfarald- urs 21. aldarinnar,“ sagði Margaret Chan, yfirmaður Alþjóðaheilbrigð- isstofnunarinnar og bætti því við að flensan væri nú óstöðvandi. „Þrátt fyrir það búumst við ekki við því að sjá mikla aukningu af alvarlegum eða banvænum tilfellum.“ Að sögn Chan hefur enginn annar heims- faraldur verið uppgötvaður svo snemma. Ekki hefur heldur nokk- urn tímann verið fylgst jafn vel með heimsfaraldri. Flensan hafði í gær dreift sér til 74 landa þar sem næstum 30 þúsund manns hafa smitast. 144 hafa látist hingað til. Faraldurinn er því heldur vægur en stofnunin óttast samt sem áður að ef mikill fjöldi nýrra tilfella kæmi upp myndu sjúkrahús og heil- brigðisyfirvöld ekki ráða við það, þá sérstaklega í fátækum löndum. Venjuleg flensa leggur um 250 þúsund til 500 þúsund manns að velli á hverju ári. Um ein milljón manna létu lífið í síðasta heimsfar- aldri, Hong Kong-flensunni. Um helmingur þeirra sem hafa látist úr svínaflensunni var ungt og heilbrigt fólk, sem væri ekki svo móttækilegt fyrir venjulegri flensu. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur mælt með því að nú verði ráðist í gerð bóluefnis. Lyfjarisinn Glaxo- SmithKline greindi frá því í gær að hægt yrði að hefja framleiðslu á því í júlí en nokkrir mánuðir muni líða þar til það verður til í miklu magni. Þá verða fyrstu skammtarnir sendir til landa sem hafa pantað það fyrir- fram, þar á meðal eru Belgía, Bret- land og Frakkland. Einnig verður bóluefni fyrir 50 milljónir banda- ríkjadala gefið til Alþjóðaheilbrigð- isstofnunarinnar til dreifingar í fátækum löndum. thorunn@frettabladid.is Svínaflensan orðin að heimsfaraldri Alþjóðaheilbrigðisstofnunin lýsti því yfir í gær að viðbúnaðarstig vegna H1N1- flensunnar hefði verið hækkað og flensan því orðin heimsfaraldur. Hafist hefur verið handa við gerð bóluefnis. 30 þúsund hafa nú smitast og 144 látið lífið. Haraldur Briem sóttvarnarlæknir fundar í dag með almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra vegna þeirrar yfir- lýsingar Alþjóðaheilbrigðisstofnunar- innar að svínaflensan sé opinberlega orðin að heimsfaraldri. Haraldur segir yfirlýsinguna ekki koma á óvart. „Þetta þýðir í sjálfu sér ekkert annað en að við höldum okkar vinnu áfram eins og við höfum verið að gera. Viðbúnaður hefur verið á hættustigi og mun verða það áfram að óbreyttu. Við munum fara yfir stöðuna og meta það sem heilbrigð- isstofnunin hefur að segja. Þeir vara við að menn grípi til yfirgripsmikilla aðgerða sem gætu haft áhrif á flug milli landa, að gripið sé til lokana og þvíumlíks, enda er tilefnið ekki þannig núna.“ Að sögn Ólafs er stærsta fréttin sú að í kjölfar yfir- lýsingar Alþjóða- heilbrigðisstofn- unarinnar geti framleiðendur snúið sér að því að búa til bóluefni gegn flensunni. „Þeir geta ekki byrjað á því fyrr en það er búið að ákveða að þetta sé heims- faraldur. Þetta hefur því talsverða þýðingu,“ segir Haraldur Briem. - kg NÚ ER HÆGT AÐ FRAMLEIÐA BÓLUEFNI HARALDUR BRIEM BLAÐAMANNAFUNDUR Margaret Chan og Keiji Fukuda, hjá Alþjóðaheilbrigðisstofn- uninni, segja viðbúnað vegna svínaflensu kominn á sjötta og efsta stig. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.