Fréttablaðið - 12.06.2009, Qupperneq 12
12 12. júní 2009 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 22 Velta: 110 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
269 -0,85% 741 +0,23%
MESTA HÆKKUN
CENTURY AL. +7,72%
ÖSSUR +2,74%
MESTA LÆKKUN
BAKKAVÖR -6,09%
MAREL FOOD S. -0,92%
FØROYA BANKI -0,41%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 4,20 +0,00% ... Atlantic Airways
167,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 550,00 +0,00% ... Bakkavör 1,08 -6,09%
... Eik Banki 89,00 +0,00 ... Eimskipafélagið 1,00 +0,00% ... Føroya Banki 122,50
-0,41% ... Icelandair Group 4,60 +0,00% ... Marel Food Systems 54,00 -0,92% ...
Össur 112,50 +2,74%
Heimsmarkaðsverð á áli hefur
hækkað statt og stöðugt í mánuð-
inum og var í gær komið í 1.673
Bandaríkjadali á tonnið á hrávöru-
markaðnum í Lundúnum í Bret-
landi. Það hefur ekki verið hærra
á árinu.
Fyrir ári stóð álverðið í tæpum
þrjú þúsund dölum á tonnið og rauf
múrinn þegar nær dró hausti. Þegar
fjármálakreppan kreppti að efna-
hagslífinu dró hratt úr eftirspurn
og féll álverð niður undir 1.200 dali
á tonnið skömmu eftir áramót. Það
reis eftir það og var komið í 1.400
dali í síðasta mánuði.
Mikil eftirspurn eftir áli í Kína
og Japan hefur ýtt verðinu upp síð-
ustu vikur, samkvæmt upplýsing-
um Bloomberg-fréttaveitunnar í
gær. Þar segir að Kínverjar nái
ekki að sinna heimamarkaði með
eigin framleiðslu og verði því að
flytja inn ál annars staðar frá.
Þá hafa framleiðlendur bíla og
véltækja í Japan sömuleiðis gefið í
við framleiðsluna og þurfa á meira
álmagni að halda en áður.
IFS Greining segir í áliti sínu
um stöðu og horfur á álmarkaði í
fyrradag nokkuð sterkt samband
á milli birgðamagns og verðs á
áli. Markaðsaðilar hafi fagnað
fréttum af minnkandi álbirgð-
um og hækkað verðið. Gera megi
ráð fyrir að verðið hækki á næstu
misserum. - jab
Álverð ekki hærra í ár
Í ÁLVERI Sérfræðingar telja líkur á að
álverð hækki á næstu misserum, eða
í takt við viðsnúning á helstu erlendu
mörkuðum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Gengi hlutabréfa Össurar
endaði í 112,5 krónum á hlut
í gær og er nú álíka hátt og í
janúar árið 2007. Hlutabréf
Össurar eru í raun ódýrir
Bandaríkjadalir, segir sér-
fræðingur.
„Skýringin kann að liggja í fáum
fjárfestingarkostum í Kauphöll-
inni. Miðað við önnur félög lítur
Össur afskaplega vel út. Í raun má
líta svo á að stoðtækjafyrirtækið
bjóði fólki að
kaupa erlend-
an gjaldeyri á
afslætti,“ segir
Haraldur Yngvi
Pétursson, sér-
fræðingur hjá
IFS Greiningu.
Gengi hluta-
bréfa Össurar
hefur hækkað
um rúm 54 pró-
sent síðastliðna þrjá mánuði, eða
síðan það tók dýfu í enn einum
skellinum á alþjóðlegum hluta-
bréfamörkuðum í mars síðastliðn-
um og fór við það í tæpar 73 krón-
ur á hlut. Þá hafði það ekki verið
lægra í fimm ár.
Gengið hækkaði um 2,74 pró-
sent í gær, endaði í 112,5 krón-
um á hlut og hefur það ekki verið
hærra síðan í maí í hittiðfyrra. Á
sama tíma hefur gengi annarra
félaga tekið dýfu og Úrvalsvísi-
talan hrunið um 97 prósent.
Hlutabréf Össurar eru jafn-
framt þau einu sem hafa hækkað
í verði í Kauphöllinni síðastliðna
tólf mánuði og þau einu íslensku
sem verið hafa á uppleið þar frá
áramótum. Hin félögin tvö eru
færeysk, Atlantic Petroleum og
Færeyjabanki. Gengishækkun
þeirra nær ekki tveimur prósent-
um á meðan gengi bréfa Össur-
ar hefur hækkað um tæp þrettán
prósent.
Viðskipti hafa verið all nokk-
ur upp á síðkastið með hlutabréf
stoðtækjafyrirtækisins. Ekki má
útiloka að viðskiptavakar félags-
ins eigi þar hlut að máli til að vega
upp á móti ládeyðu á mörkuðunum
eftir að efnahagslífið fór á hliðina
í fyrrahaust.
Haraldur segir í raun ekki rétt
að hugsa um gengi hlutabréfa Öss-
urar í krónum. Undirliggjandi
verðmæti stoðtækjafyrirtækisins
sé í Bandaríkjadölum, uppgjörs-
mynt félagsins. Öll sala liggi utan
landsteina og því beri að hugsa
um verðmatið á hlutabréfunum í
dölum.
Í nýlegu verðmati IFS frá í
lok maí er markaðsgengi Össur-
ar metið á einn Bandaríkjadal á
hlut. Miðað við lokagengi bréfa
félagsins í gær stendur það hins
vegar fast við 0,8 dali á hlut, sem
er afskaplega lágt að mati Harald-
ar. „Ég tel að 1,5 dalir á hlut sé
nær lagi,“ segir hann.
jonab@markadurinn.is
Össur rýfur kreppumúr
HÖFUÐSTÖÐVAR ÖSSURAR Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins er það eina sem
hefur hækkað síðastliðna tólf mánuði í Kauphöllinni.
HARALDUR YNGVI
PÉTURSSON
TIL HAMINGJU EYRARBAKKI OG STOKKSEYRI
Við Hásteinsveg 16
Við Stjörnusteina/Heiðarbrún
Við Eyrarbraut/Eyjasel
Við Eyrargötu/Háeyrarveg
Við Eyrargötu/Álfsstétt
Við Túngötu/Bárðarbrú
Við Túngötu 33
Shellskálinn Hásteinsvegur 4
Merkisteinn Eyrargötu 49
Stokkseyri
Eyrarbakki
Fréttablaðskassar Afhent í verslun:
Óskir þú frekari upplýsinga eða vilt koma á framfæri óskum um uppsetningu Fréttablaðskassa bendum við þér á að hafa samband við Pósthúsið á dreifing@posthusid.is eða í síma: 585-8330.
...allt sem þú þarft
Náðst hefur samkomulag við bæjaryfirvöld um uppsetningu Fréttablaðskassa þannig að nú getur
þú nálgast Fréttablaðið á miklu fleiri stöðum. Einnig getur þú nálgast Fréttablaðið á Vísir.is