Fréttablaðið - 12.06.2009, Qupperneq 16
16 12. júní 2009 FÖSTUDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is
og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf.
RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI:
Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur
sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
SPOTTIÐ
UMRÆÐAN
Jóhannes Karl Sveins-
son skrifar um hæfi
rannsakenda
Fyrrum forstjóri Fjár-málaeftirlitsins sendi
rannsóknarnefnd Alþing-
is bréf í apríl síðastliðn-
um. Þar var vakin athygli
á ummælum sem einn nefndar-
maður hafði látið falla og fólu í sér
afstöðu til grundvallaratriða sem til
skoðunar eru hjá nefndinni, þ.e. að
orsök bankahrunsins væri m.a. (á
tungu frumheimildarinnar) „reck-
less complacency by the institutions
that were in charge of regulating
the industry and in charge of ensur-
ing financial stability in the count-
ry“. Þessi orð hafa ekki verið dregin
til baka. Mun forstjórinn fyrrver-
andi hafa bent á að augljóslega væri
nefndarmaðurinn búinn að gera upp
hug sinn til grundvallaratriða. For-
stjórinn gerði hins vegar alls ekki
kröfu um að nefndarmaðurinn viki
sæti eins og fullyrt er í fjölmiðlum
að hann hafi gert!
Það „fjölmiðla-spinn“ sem fór
í gang vegna þessa máls er ekki
traustvekjandi. Fyrst birtist ein-
hvers konar fréttaleki og daginn
eftir skrifa fjórir hagfræðingar,
sem virðast hafa fengið
sérstakar upplýsingar um
málið, dagsblaðsgreinar til
að túlka hæfisreglur þar
sem ýmsu er snúið á hvolf.
Sérstakt hæfi snýr að því
að sá sem fjallar um mál
hafi ekki þau tengsl við
efni máls eða málsaðila né
að aðstæður séu þannig að
draga megi hlutleysi í efa.
Tilgangur reglnanna er
m.a. að auka traust á því að stjórn-
völd leysi úr málum á hlutlægan
hátt. Reynt er að koma í veg fyrir
að þeir taki ákvarðanir sem eru fyr-
irfram líklegir til að gæta ekki hlut-
leysis, t.d. vegna þess að þeir hafa
tjáð sig eindregið um málið sem
fyrir þeim liggur eða sambærileg
mál á persónulegan hátt. Tilvitnuð
ummæli nefndarmannsins – ef rétt
eru höfð eftir– eru augljóst dæmi
um það síðastnefnda.
Hættan er sú að sá sem gefur slík-
ar yfirlýsingar muni, til að vernda
orðspor sitt og fræðimannsheiður,
hafa hagsmuni af því að niðurstaða
máls verði sú sama og hann hefur
áður látið í ljós. Gögn, röksemdir og
huglæg matsatriði eru þá vegin og
metin í ljósi eigin afstöðu en ekki á
hlutlægan, faglegan og sanngjarnan
hátt. Þess vegna er ekki tryggt að
málefnaleg sjónarmið verði lögð til
grundvallar. Á mannamáli kallast
þetta tregðan til að éta ofan í sig,
sem margir kannast vafalaust við.
Umfjöllun um bankahrunið hefur
oft einkennst af sleggjudómum og
takmörkuðum upplýsingum. Álykt-
anir í frábærri skýrslu Kaarlo
Jännäri, sem ráðinn var af stjórn-
völdum til að gera úttekt á eftirlits-
og regluverkinu, hafa lítið ratað
inn í umræðuna þótt þær ættu þar
heima. Menn vekja frekar á sér
athygli eða skora pólitísk stig með
því að reiða hátt til höggs. Almennt
skotleyfi virðist hafa verið gefið út
á Fjármálaeftirlitið og Seðlabank-
ann. Minna hefur verið talað um
það að kreppan er alþjóðleg, hefur
sett banka um víða veröld á hausinn
og á sér margþættar orsakir.
Rannsókn á bankahruninu er
nauðsynlegt uppgjör þjóðarinn-
ar við þau grimmu örlög sem hún
glímir nú við. Til þess að eitthvað
gagn verði af rannsókn þarf hún
að byggjast á hlutlægu, faglegu og
sanngjörnu mati á gögnum, aðstæð-
um og réttarreglum. Þeir sem rann-
saka þurfa að vera hæfir til að sinna
því mikilvæga starfi og við þurfum
að skilja að það er engum greiði
gerður með því að slá þar neitt af.
„Sannleiksnefndin“ á síst að vera
undanskilin.
Höfundur er sjálfstætt starfandi
lögmaður.
Um hvað snýst hæfi?
JÓHANNES KARL
SVEINSSON
FRÁ DEGI TIL DAGS
P
ólitískar vísbendingar um möguleika á þjóðstjórn eru ekki
sýnilegar eins og sakir standa. Þörfin fyrir skýra fram-
tíðarsýn, vissu um hvað til bragðs skuli taka og breiðari
samstöðu um framkvæmd einstakra mála er þó smám
saman að verða augljósari og brýnni en áður.
Gjaldmiðilshrunið og fall bankanna kallaði eðlilega á pólitískt
uppgjör. Það fór fram í búsáhaldabyltingu og kosningum. Niður-
staðan leiddi fram skörpustu mögulegar andstæður í íslenskum
stjórnmálum. Viðfangsefnin eru hins vegar svo risavaxin að aldrei
fyrr hefur verið meiri þörf á breiðri samhentri forystu um málefni
landsins. Þessi þverstæða blasir við.
Pólitíska uppgjörið snerist um fortíðina. Slíkt uppgjör gat bara
farið á einn veg. Á hinn bóginn hefur ekkert uppgjör átt sér stað um
framtíðina eða hvernig standa eigi að endurreisn á öllum sviðum
í búskap þjóðarinnar. Þess vegna er ríkisstjórnin í jafn kröppum
dansi og raun ber vitni þegar á fyrstu lífdögunum.
Allur málflutningur og rökstuðningur fyrir málum byggist á
skírskotunum til fortíðarinnar. Það er af því að pólitíska uppgjörið
fór fram um hana en ekki framtíðina. Framtíðaruppgjörið fáum við
héðan af ekki fyrr en að loknu þessu kjörtímabili.
Við slíkar aðstæður er rétt og skylt að vekja þá spurningu hvort
breiðari stefnumótun og ábyrgð sé líklegri til árangurs en ríkj-
andi pólitískt ástand. Mikilvægt er að hafa í huga í því sambandi
að þjóðstjórn sem einvörðungu snerist um að skipta valdastólum
breytti litlu. Spurningin snýst um hitt hvort unnt er að sameina
stjórnmálaöflin um höfuðlínur endurreisnarinnar þannig að hún
geti gengið fram með mestum mögulegum hraða og fólkið í landinu
viti hvert stefnir og fái trú á framtíðina.
Hér hafa ekki setið hreinræktaðar hægri eða vinstri stjórnir fyrr
en nú. Málflutningur stjórnarflokkanna bendir til að þeir vilji nýta
sér þá stöðu til hins ítrasta.
Á sama hátt má sjá glögg merki um að stjórnarandstöðuflokk-
arnir telja að tíminn vinni með þeim. Þeir eru ekki líklegir til að
hafa áhuga á stjórnarþátttöku fyrr en eftir að pólitíska framtíðar-
uppgjörið hefur farið fram í nýjum kosningum.
Þetta er hinn eðlilegi gangur mála. Í reiptogi stjórnmálanna felst
langtíma jafnvægi. Aðstæður þjóðarinnar eru á hinn bóginn svo
óvenjulegar að þjóðin hefur ekki efni á því hiki og þeirri óvissu
sem af pólitísku þrátefli leiðir.
Í reynd hefur verið málefnaleg stjórnarkreppa um framtíðarmál-
efni þjóðarinnar síðan í nóvember. Sennilega er hún búin að kosta
fólkið í landinu og fyrirtækin jafn mikið í krónum og aurum eins
og upphaflega hrunið. Að sama skapi er pólitísk ábyrgð á vanda-
málunum á fleiri herðum nú þegar.
Ríkisstjórnarflokkarnir hafa boðið til samstarfs í þinginu þegar
brotalamir í þeirra eigin liði valda óvissu um framgang mála. Þetta
er merki um veikleika en ekki nýtt lýðræði. Þegar ríkisstjórn-
in býður stjórnarandstöðunni að viðræðuborði með samtökum
atvinnulífsins og launþega fær þjóðin ekki að vita hvort það er til
að hlusta eða til að hafa áhrif og bera ábyrgð. Það er vísbending
um lausatök en ekki festu.
Að þessu virtu gæti þjóðstjórn verið góður kostur. Vel gæti líka
farið á því að kalla á mann utan við vettvang stjórnmálanna til að
veita henni forystu og tengja saman. Til þess að svo megi verða
þurfa forystumenn á Alþingi að virða stöðuna af nýrri sjónarhæð.
Er þjóðstjórn góður kostur?
Hugsanlega
ÞORSTEINN PÁLSSON SKRIFAR
smyrja bílinn hjá Max1
Max1 verðdæmi á ódýrri smurþjónustu
Toyota Yaris 1,3 Olía, olíusía og vinna: 9.095 kr.
Nissan Almera 1,5 Olía, olíusía og vinna: 9.092 kr.
Mazda3 1,6 Olía, olíusía og vinna: 9.370 kr.
Ford Focus 1,6 Olía, olíusía og vinna: 9.688 kr.
Sparaðu, láttu
Smurþjónusta
Við erum góðir í að gera hlutina fljótt og vel og ódýrt – skoðaðu: www.max1.is
Reykjavík, sími 515 7190: Bíldshöfða 5a,
Bíldshöfða 8, Jafnaseli 6, Knarrarvogi 2.
Akureyri, sími 462 2700: Tryggvabraut 5.
Skoðaðu www.max1.is
Innifalið 2 lítrar af Max1 rúðuvökva
Ekki er efast um Evu
Við Íslendingar gerðum, illu heilli,
lítið úr viðvörunarhrópum erlendra
sérfræðinga þegar þeir sáu okkur fara
eftir villuljósum í útrás og uppspunnu
góðæri. Síðar sáum við að það gæti
verið gott að hafa eins og tvö gests-
augu á svæðinu. Nú hefur Eva Joly
séð eitthvað athugavert við að Valtýr
Sigurðsson ríkissaksóknari sinni störf-
um fyrir þær sakir að vera faðir annars
forstjóra Exista. Eins segir
hún að vanti fjármagn og
mannskap svo hægt sé að
rannsaka málin. Nokkuð
kemur á óvart að bæði
dómsmálaráðherra
og forsætisráðherra
segjast sjá þetta líka.
En af hverju var þá
beðið uns Eva ærðist? Var ekki hægt
að gera eitthvað við þessu strax?
Vanhæfisástand
Annars virðast margir sjá vanhæfi
hvaðan sem þeir koma. Í janúar sagði
Björg Thorarensen, forseti lagadeildar
Háskóla Íslands, að Páll Hreinsson
kynni að vera vanhæfur sem hæsta-
réttardómari í málum sem snúa að
hruni bankanna, en hann
er formaður rannsóknar-
nefndar um hrun þeirra.
Jónas Fr. Jónsson,
fyrrverandi forstjóri
FME, telur Sigríði Bene-
diktsdóttur vanhæfa
í nefndinni vegna
ummæla sem
hún hafði uppi í
viðtali við erlent skólablað. Páll sjálfur
segist hins vegar ekki geta tjáð sig um
það hvað honum þyki um málefni
Sigríðar því það myndi hugsanlega
gera hann vanhæfan. Þetta er nú
meiri óhæfan. Gæti nefndin hugsan-
lega aðhafst eitthvað sem ekki gerir
hana vanhæfa?
Fátt um fína vexti
Guðmundur Rúnar Svavarsson, áður
ritstjóri Stúdentablaðsins, er með fína
ábendingu á bloggsíðu sinni til þeirra
sem telja Breta og Hollendinga kúga
okkur, til dæmis með 5,55 prósenta
vöxtum. Af hverju tökum við ekki bara
hagstæðara lán annars staðar fyrir
þessu? spyr hann. En veit eins og er
að fátt væri um fína drætti í slíkum
samningum. jse@frettabladid.is