Fréttablaðið - 12.06.2009, Page 24

Fréttablaðið - 12.06.2009, Page 24
4 föstudagur 12. júní ✽ b ak v ið tj öl di nNý sending Afmælisgjafi r fyrir alla aldurshópa! Spilavinir Langholtsvegi 126 - Sími 553 3450 Sendum í póstkröfu! Skoðaðu úrvalið og pantaðu á vefnum: www.spilavinir.is. Full búð púsluspilum af spilum & re London á eftir Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur. Skólinn er einn af fimm stærstu og virtustu leiklist- arskólunum í London og margir heimsfrægir leikarar hafa lært við skólann, svo sem James Bond leik- arinn Pierce Brosnan, hjartaknús- arinn úr Bridget´s Jones´s Diary, Colin Firth og Paul Bettany sem lék illmennið í The Da Vinci Code og í Dogville eftir Lars Von Trier. „Við nemendurnir vorum ekki teknir neinum vettlingatökum. Það var alger heragi í skólanum og harkan sex frá fyrsta degi. Dagarnir voru langir, alltaf tólf klukkustund- ir fimm daga vikunnar með þrek- tímum, ballett-, söng- og margvís- legum leiklistartímum og æfing- um fyrir leiksýningar á kvöldin. Ég vaknaði eldsnemma á morgnana, ferðaðist í klukkutíma í skólann og á kvöldin fór ég beint í háttinn til að hlaða batteríin fyrir næsta dag. Maður átti því hreinlega heima í skólanum þessi þrjú ár og lærði að vinna undir miklu álagi,“ útskýr- ir María og segir það mikil forrétt- indi að fá að læra leiklist erlendis. „London er mekka leiklistarinnar, þar sem maður getur farið í leikhús og séð allt frá spennandi Off West End nútíma leikverkum til söng- leikja á West End. Bestu leiksýn- ingarnar eru oft í minni leikhúsum í borginni og ég hef séð magnað- ar leiksýningar með kannski bara tveimur leikurum á sviðinu í litlu rými og verið algerlega uppnum- in,“ segir hún. „Mér fannst líka mjög lærdóms- ríkt að kynnast nýjum menning- arheimi og fólkinu í skólanum mínum sem kom víðs vegar að úr heiminum. Krakkarnir voru allir mjög forvitnir og áhugasamir um Ísland, þá aðallega um náttúruna og Björk og kölluðu mig oft „The Viking Woman“ þar sem ég var eini Skandinavinn í hópnum,“ segir María og brosir. „Á lokaárinu í skólanum sýndum við þrjú leikrit í atvinnuleikhúsi í miðborg London. Þar var almenn- ingi boðið að berja okkur augum, en skólinn sá um að bjóða leik- stjórum, umboðsmönnum og „ca- sting directorum“ á sýningarnar. Við vonuðust náttúrulega öll eftir því að fá umboðsmann eftir sýn- ingarnar, en það voru alls ekki allir sem fengu samning,“ segir María sem var ein af þeim heppnu sem bauðst samningur við umboðs- skrifstofu. „Það skiptir miklu máli að fá umboðsmann í London sem útveg- ar áheyrnaprufur og sér til þess að maður komist í samband við fólk í faginu, því markaðurinn í Bret- landi er svo gríðarlega stór. Fljót- lega eftir útskrift fékk ég hlutverk í leiksýningu í Soho Theatre og hef einnig leikið í nokkrum stutt- myndum og talað inn á heimildar- mynd,“ segir María. SYNGUR OG SPILAR Á SÖG Maríu er margt til lista lagt því fyrir utan leiklistina hefur hún mikinn áhuga á tónlist og byrjaði að læra á fiðlu þegar hún var sjö ára gömul. „Ég hef alltaf haft mikla ástríðu fyrir tónlist og lauk sex stigum á fiðlu. Það hefur komið að góðum notum í leikhúsinu og fiðlan var nánast með í öllum sýningum sem að ég tók þátt í í Drama Centre. Þar var líka mikil áhersla lögð á söng, sem ég hef mjög gaman af og ég hef haldið áfram að sækja söng- María Dalberg, 31 árs, er annar Íslend- ingurinn sem útskrifast úr leiklist frá Drama Centre London leiklist- arskólanum. Í viðtali við Föstudag segir hún frá skólagöngunni, fram- tíðardraumunum og sínu fyrsta hlutverki hér á landi eftir útskrift, í söngleiknum Grease. Viðtal: Alma Guðmundsdóttir Ljósmyndir: Stefán Karlsson Þ egar ég var lítil not- aði ég hvert tækifæri til að setja upp leik- rit í fjölskylduboðum ásamt frændsystkin- um mínum, sem vakti mikla lukku ömmu, afa og foreldranna,“ segir María spurð hvenær leiklistar- bakterían hafi fyrst gert vart við sig. „Ég er fædd í Árósum í Dan- mörku og bjó þar til sex ára aldurs. Mamma starfaði þar sem hjúkrun- arfræðingur og pabbi nam lækn- isfræði, en þegar hann lauk nám- inu fluttum við heim og ég byrj- aði í grunnskóla, Mýrarhúsaskóla svo Valhúsaskóla. Þar tók ég þátt í mörgum leikritum, en eftir grunn- skóla lá leiðin í MR þar sem ég var með í Herranótt og fór svo bæði í Götu- og Stúdentaleikhúsið,“ segir María sem sótti um í Drama Cent- re London leiklistarskólanum árið 2005. „Ég hafði heyrt mikið gott um þennan skóla og langaði mest af öllu að komast þar inn, en það sóttu 2.000 manns um inngöngu og aðeins 29 nemendur voru tekn- ir inn í skólann, tuttugu strákar og níu stelpur. Það var því hörku bar- átta, sérstaklega fyrir stelpurnar þar sem tveir þriðju eru strákar, en ástæðuna fyrir því segja þeir vera að það séu hreinlega fleiri hlutverk skrifuð fyrir stráka en stelpur. Ég þurfti að fara í gegnum margar síur áður en ég fór í lokaprufuna og það var mikill spenningur þegar ég fékk svo loks bréfið um að ég hefði komist inn. Ég man bara eftir að hafa hoppað og öskrað af gleði,“ rifjar hún upp og brosir. ALGJÖR HERAGI María er annar íslenski leikar- inn sem kemst inn í Drama Cent- KOMIN HEIM ÚR HERAGA Í LO Efnileg „Það var mikill spenningur þegar ég fékk svo loks bréfið um að ég hefði komist inn í skólann. Ég man bara eftir að hafa hoppað og öskrað af gleði,“ segir María brosandi. Stjörnumerki: Steingeit. Uppáhaldstími dagsins? Morgunninn. Diskurinn í spilaranum: Bonnie „Prince“ Billie - The Letting Go. Uppáhaldsmatur? Indverskur og sushi. Mesta freistingin? Súkkulaði. Mesta dekrið: Nudd og nálastungur. Ég lít mest upp til: Listamanna sem fóru erfiðu leiðina. Draumafríið: Mánaðarferð um Austurlönd með köfun í Bali. Líkamsrækt- in: Sund og jóga. Hverju mynd- irðu sleppa til að spara? Bíl.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.