Fréttablaðið - 12.06.2009, Síða 36

Fréttablaðið - 12.06.2009, Síða 36
24 12. júní 2009 FÖSTUDAGUR folk@frettabladid.is Hús unga fólksins var formlega opnað á þriðjudaginn. Opnunarhátíðin fór fram með pomp og prakt, en skrúðganga fór af stað frá Lækjartorgi upp að Austur- bæjarbíói þar sem tekið var á móti gest- um með grillpartíi, kynningu á starfi hússins og tónlistaratriðum. Húsið verður miðstöð ungs fólks sem vill virkja krafta sína í hvetjandi umhverfi, en markmiðið er að bjóða ungu fólki upp á aðstöðu og aðstoð við framkvæmd hugmynda sinna og við að skapa sér skemmtilegt sumar. Tveir sjóðir hafa verið stofnaðir og hægt er að sækja um styrki úr þeim til að koma verkefnum af stað, en þeir aðilar sem standa að opnun Austurbæjarbíós eru Samfélagið frumkvæði, Hitt húsið, Rauði krossinn í Reykjavík, Lýðheilsu- stöð og Samband íslenskra framhalds- skólanema. Virkir þátttakendur hússins móta fjöl- breytta dagskrá sumarsins og sköpunar- kraftar þeirra verða nýttir við andlits- lyftingu á Austurbæjarbíói. -ag Austurbæjarbíó verður Hús unga fólksins GRILLAÐ Í GÓÐA VEÐRINU Þór Gíslason sá um að grilla fyrir gesti og gangandi á opnunarhátíðinni í Austurbæjarbíói. GRILLSTEMNING Ásgeir Kristinsson og Gróa Rán Birgisdóttir voru meðal gesta við opnunina. GÓÐ STEMNING Agent Fresco tróðu upp í Austurbæjarbíói við opnun Húss unga fólksins. Brasskvintettinn Brasskarar vera á ferð og flugi um miðbæ Reykjavíkur í allt sumar og leika létta tóna fyrir vegfar- endur. Kvintettinn er á vegum skapandi sumarstarfa Hins hússins og er skipaður þeim Bergrúnu Snæbjörnsdótt- ur sem leikur á horn, Hörpu Jóhannsdóttur á bassabásúnu, Sigrúnu Jónsdóttur á básúnu og Valdísi Þorkelsdóttur og Ragnhildi Gunnarsdóttur sem báðar leika á trompet. Stúlk- urnar ætla sér að leika klass- íska tónlist, djass og dægur- tónlist fyrir hvern þann sem á vill hlýða. „Það eru gríðarleg forréttindi fyrir okkur að fá að vinna við tónlistina í sumar. Þetta er bæði góð reynsla í því að koma fram og einnig góð æfing fyrir okkur sem tónlist- armenn,“ segir Valdís um sum- arstarfið. Stúlkurnar kynntust flest- ar við gerð Volta, nýjustu plötu Bjarkar, þar sem þær voru í hópi tíu manna brasssveit- ar sem fylgdi söngkonunni á tónleikaferðalagi hennar. „Við munum halda nokkra innitón- leika sem verða auglýstir sér- staklega en svo ætlum við einn- ig að halda óvænta tónleika víðs vegar um borgina og jafn- vel nokkra útitónleika þegar vel viðrar,“ segir Valdís. Aðspurð um framtíðaráform Brassk ar- anna segir hún þau óráðin enn sem komið er, „Maður veit aldrei hvað kemur út úr svona samstarfi, en mér finnst ekki ólíklegt að við eigum eftir að halda áfram að starfa saman eftir sumarið.“ - sm Brassstelpur Bjarkar blása úti í sumar BRASSKARARNIR Stúlkurnar í brasskvintettinum munu leika létta tóna í allt sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR > HEIMSBYGGÐIN FYLGIST MEÐ BASEL Óhætt er að segja að listahátíðin í Basel hafi feng- ið óvænta og töluvert mikla at- hygli. Fjölmiðlar fylgja nefni- lega hverju fótmáli banda- ríska leikarans Brads Pitt eftir, en hann gerði sér ferð til Basel og fjárfesti í nokkrum listmun- um fyrir einhverjar þúsundir. Ólafur Elíasson er meðal þeirra listamanna sem eiga verk á hátíðinni. Duncan McKnight, söngvari bandarísku hljómsveitarinn- ar The Virgin Tongues, hefur verið útskrif- aður af sjúkra- húsi eftir að hafa slasast lífshættu- lega í miðborg Reykjavíkur 1. maí síðastlið- inn. Hann er nú í endurhæfingu og á meðan hann jafnar sig dvelja hinir meðlim- ir sveitarinn- ar á Íslandi og leita sér að vinnu til að hafa í sig og á. Þeir verða plötusnúðar á Sódómu Reykja- vík í kvöld á tónleikum Singa- pore Sling. Einnig koma fram The Deathmetal Supersquad og Skelkur í bringu. Útskrifaður af sjúkrahúsi Á BATAVEGI Söngvari The Virgin Tongues er á batavegi.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.