Fréttablaðið - 12.06.2009, Page 42

Fréttablaðið - 12.06.2009, Page 42
30 12. júní 2009 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur ekki átt sjö dagana sæla með Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni í vetur. Esbjerg keypti hann frá þýska liðinu Hamburg fyrir einu ári en þá var hann búinn að vera í láni hjá Vålerenga í Noregi í dágóðan tíma. Það byrjaði ágætlega hjá Gunnar Heiðari og var hann í byrjunarliðinu í fyrstu sex umferðunum. „Enn og aftur var fenginn nýr þjálfari til liðsins skömmu eftir að ég kom,“ sagði Gunnar Heiðar. „Óheppnin virðist elta mig á röndum en það er óhætt að segja að ferill- inn minn hafi ekki farið hátt eftir Svíþjóðardvölina.“ Gunnar Heiðar lék frá 2004 til 2006 með Halmstad í Svíþjóð og varð árið 2005 markahæsti leikmaður deildarinnar. Þá var hann keyptur til Hamburg í Þýskalandi þar sem hann fékk fá tækifæri. „Svo virðist sem þeir menn sem bera ábyrgð á því að ég sé keyptur til félaganna séu ýmist reknir eða hætta skömmu eftir að ég kem. Þetta er því engin draumastaða.“ Gunnar Heiðar skoraði tvö mörk á liðnu tímabili í Dan- mörku og var ellefu sinnum í byrjunarliði Esbjerg – þar af aðeins einu sinni á þessu ári en það var í lokaumferðinni. „Það var í leik sem skipti engu máli og þá fékk ég loksins tækifæri. Ég nýtti það vel, spilaði ágætlega og skoraði mark. En ég veit ekki hvernig framhaldið verður. Ég á tvö ár eftir af mínum samningi og er því ekki að stressa mig á þessu.“ Gunnar Heiðar lék sex landsleiki á síðasta ári en hefur síðan þá misst sæti sitt í landsliðshópnum, þó að hann hafi ekki lent í neinum meiðslum. „Ég skil það mjög vel að ég hafi ekki verið valinn enda hef ég lítið sem ekkert verið að spila. En ég sé mikið eftir landsliðssætinu og vil fá það aftur. Til þess að það sé mögulegt verð ég að fá að spila.“ Honum líður þó vel í Danmörku. „Það eru allir í klúbbnum sem styðja mig heils hugar nema sá sem öllu ræður. Ég bið þó ekki um annað en að fá tækifæri eins og allir aðrir.“ GUNNAR HEIÐAR ÞORVALDSSON: MARTRAÐARTÍMABILI Í DANMÖRKU LOKIÐ Bið ekki um annað en að fá tækifæri SENDU SMS SKEYTIÐ ESL GBV Á NÚMERIÐ 1900 ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA! AÐRIR VINNINGAR ERU: TÖLVULEIKIR, DVD MYNDIR, BÍÓMIÐAR, GOS OG MARGT FLEIRA FRUMSÝND 12. JÚN Í Vinningar verða afhentir í ELKO Lindum.149 kr/skeytið. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. FÓTBOLTI Svo gæti farið að Skaga- maðurinn Stefán Þórðarson sé á leið til sænska B-deildarfélags- ins Norrköping á nýjan leik. Hann lék með liðinu í þrjú tímabil, frá 2005 til 2007, áður en hann kom til Íslands og lék með ÍA á síðasta keppnistímabili. „Það kemur í ljós á morgun [í dag] hvort það verði eitthvað af þessu en þá mun ég gefa þeim mitt svar,“ sagði Stefán í samtali við Fréttablaðið í gær. „Það er svo sem ekkert sem stendur í vegi fyrir því að ég fari út. Þetta er bara ákvörðun sem ég þarf að taka.“ Stefán ákvað reyndar að leggja knattspyrnuskóna á hilluna í haust en þá stóð honum til boða að spila með Vaduz frá Liechten- stein í svissnesku úrvalsdeild- inni. Það gerði hann á síðari hluta tímabilsins. „Það var lærdómsríkt. Maður er enn að sjá eitt- hvað nýtt og læra í fót- boltanum.“ Vaduz féll úr deildinni en varð bikar- meistari í Liechtenstein. „Það gekk ekki sem skyldi í deildinni en það er auðvitað alltaf gaman að vinna titil.“ Stefán var og er enn gríð- arlega vinsæll meðal stuðn- ingsmanna Norrköping og var treyja hans hjá félaginu, sem var númer 18, hengd upp eftir að hann hætti. Er Stefán eini Íslendingurinn sem hlotnast hefur sá heiður hjá erlendu félagi svo vitað sé. „Þeir verða að þrykkja númerið á nýja treyju ef ég kem. Það er svo spurn- ing hvort þeir hengja hana aftur upp. Það getur jú allt gerst í fót- bolta.“ - esá Stefán Þórðarson gæti verið á leið í sænsku knattspyrnuna á nýjan leik: Gef Norrköping mitt svar í dag STEFÁN ÞÓRÐARSON Mögulega á leið til Sví- þjóðar á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR K. HANDBOLTI Svíþjóð varð í gær fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í úrslitakeppni Evrópumeistara- mótsins í handbolta sem fer fram í Austurríki á næsta ári. Liðið gerði jafntefli gegn Rúmeníu á heimavelli, 26-26, en stigið dugði til að tryggja farseðilinn. Svíar voru langt frá sínu besta í leiknum og voru undir í hálf- leik, 12-10. Rúmenar voru svo sex mörkum yfir, 22-16, þegar tíu mínútur voru til leiksloka. En þá tók við góður leikkafli hjá Svíum sem skoruðu tíu mörk gegn tveimur á næstu átta mín- útum. Staðan var þá 26-24 en Rúmenar náðu að skora síðustu tvö mörk leiksins eftir að Svíar misstu mann af velli. Rúmenía, Pólland og Svart- fjallaland keppa nú um að fylgja Svíum með til Austurríkis en öllum riðlum undankeppninnar lýkur á viku. - esá Línur farnar að skýrast í undankeppni EM: Svíar fyrstir til að tryggja sig á EM NÁÐU JAFNTEFLI Svíar máttu þakka fyrir að tapa ekki fyrir Rúmeníu á heimavelli. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FÓTBOLTI Fréttirnar um að Manchester United hafi sam- þykkt tilboð Real Madrid upp á 80 milljónir punda í Cristiano Ron- aldo komu mörgum í opna skjöldu í gærmorgun. Það kom þó ef til vill fáum á óvart enda hefur Ronaldo verið orðaður við spænska stór- veldið í mörg ár. En þar til í gær hafði United brugðist illa við þeim sögusögnum að Ronaldo væri á leið til Real Madrid. „United hefur ákveðið að gefa Real Madrid leyfi til að ræða við leikmanninn [Ronaldo] að beiðni Cristiano – sem aftur ítrekaði ósk sína um að fá að yfirgefa félagið,“ sagði í stuttri yfirlýsingu sem birt- ist á heimasíðu Manchester Unit- ed í gær. Stuttu síðar gaf Real Madrid út yfirlýsingu sem staðfesti fréttirn- ar. Kaupverðið var þó ekki staðfest í yfirlýsingunni. „Mér er mikill heiður sýndur með því að tvö bestu knattspyrnu- félög heims vilji að ég spili fyrir sig,“ sagði Ronaldo í gær í samtali við bandaríska fjölmiðla. Hann er nú staddur í fríi í Los Angeles. „Ég heyrði fréttirnar hér í LA,“ sagði hann og bætti við að honum þætti það eðlilegt að Real Madrid sendi læknalið til Bandaríkjanna til að meta líkamlegt ástand hans áður en gengið verður frá kaupun- um. Hann sagðist engar áhyggjur hafa af læknisskoðuninni og ætl- aði að vera um kyrrt í Bandaríkj- unum. „Ég er hér í fríi og verð hér aðeins lengur.“ Talsmaður Manchester United sagði í samtali við enska fjölmiðla í gær að það hafi verið Alex Fergu- son, knattspyrnustjóri liðsins, sem hafi tekið endanlega ákvörðun um að selja Ronaldo. Eigendur félags- ins höfðu ekkert um það að segja og er talið að tekjurnar af sölunni verði notaðar til leikmannakaupa. United hefur allra helst verið orðað við Franck Ribery hjá Bay- ern München, Karim Benzema hjá Lyon og Antonio Valencia, leik- mann Wigan. Á mánudagskvöldið var það til- kynnt að Real hefði keypt Bras- ilíumanninn Kaka frá AC Milan fyrir 65 milljónir evra (56 milljón- ir punda). Real Madrid eyddi 75,8 milljónum evra í Zinedine Zidane árið 2001 en nýtt met verður sett þegar gengið verður frá kaupunum á Ronaldo. Hann verður um leið dýrasti leikmaður knattspyrnu- sögunnar. Mörgum er eðlilega spurn hvern- ig Real Madrid hafi efni á að eyða meiri pening en öll önnur félög í leikmannakaup. Ástæðan, segir í fréttaskýringum enskra fjölmiðla, er einföld. Real Madrid er tekju- hæsta félag heims. Undanfarin fjögur ár hefur Real Madrid verið tekjuhæsta knatt- spyrnufélag heims samkvæmt end- urskoðendafyrirtækinu Deloitte sem hefur reglulega tekið saman fjármál knattspyrnuheimsins. Í síðustu skýrslu, sem kom út í febrúar, var fjallað um rekstrar- árið 2007-8. Heildartekjur Real Madrid voru 290 milljónir punda og tekjuaukningin frá síðasta ári á undan fjögur prósent. Michel Platini, forseti Knatt- spyrnusambands Evrópu, gagn- rýndi Real Madrid í gær. „Mér finnst þetta afar furðulegt í ljósi þess að knattspyrnan stendur fyrir framan mestu fjármálaerfiðleika sína til þessa.“ eirikur@frettabladid.is Á eftir Kaka kemur Ronaldo Aðeins nokkrum dögum eftir að Real Madrid gekk frá kaupum á Kaka fyrir risaupphæð bætti félagið enn um betur og hefur nú gert enn stærra tilboð í Portúgalann Cristiano Ronaldo hjá Manchester United sem samþykkti tilboðið. KVEÐUR UNITED Cristiano Ronaldo hefur mjög líklega leikið sinn síðasta leik í bún- ingi Manchester United. NORDIC PHOTOS/GETTY ÞEIR FIMM DÝRUSTU: Leikm. - Kaupverð - Félög 1. Cristiano Ronaldo til Real Madrid £80 millj. - frá Man. United (2009?) 2. Zinedine Zidane til Real Madrid €75,8 millj. - frá Juventus (2001) 3. Kaka til Real Madrid €65 millj. - frá AC Milan (2009) 4. Luis Figo til Real Madrid €61,3 millj. - frá Barcelona (2000) 5. Hernan Crespo til Lazio €56,7 millj. - frá Parma (2000) (Heimild: Infostrada) > Miðasala í fullum gangi Enn er hægt að kaupa miða á landsleiki Íslands gegn Noregi og Makedóníu í undankeppni EM 2010. Báðir leikirnir fara fram í Laugardalshöllinni og mætir Ísland Norðmönnum á sunnudaginn klukkan 16.00. Makedón- íumenn koma svo í heimsókn á þjóðhátíðardaginn, mið- vikudaginn 17. júní klukkan 17.00. Stór skörð hafa verið höggvin í leikmannahóp íslenska liðsins og þarf liðið sárlega á öllum þeim stuðningi að halda sem áhorfendur geta veitt þeim. Athygli er vakin á því að aðgangur er ókeypis fyrir börn sjö ára og yngri.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.