Fréttablaðið - 12.06.2009, Síða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðssonar
Í dag er föstudagurinn 12. júní,
163. dagur ársins.
3.01 13.27 23.55
1.52 13.12 0.36
Nýlega las ég grein þar sem yfirstandandi efnahagsófar-
ir voru ekki eingöngu skrifaðar á
gráðuga bankamenn og andvara-
lausa stjórnmálamenn, heldur líka
á ríkjandi menningarástand und-
anfarinna ára á Vesturlöndum sem
er jafnan kennt við póstmódern-
isma. Hugmyndafræði sem hafnaði
fyrri gildum og reglum, var ekki
bundin á klafa fortíðarinnar held-
ur einkenndist af afstæðishyggju
og stuðlaði þannig að áhættusæk-
inni nýjungagirni á fjármálamörk-
uðum. Módernísk atómskáld viku
fyrir póstmódernískum athafna-
skáldum.
NÚ fór auðvitað sem fór. En það
var gaman meðan á góðærinu
stóð; um skeið upplifðu Íslending-
ar sig sem efnahagslegt stórveldi.
það var ekki svo slæm tilfinning.
Mér var hugsað til þessa meðan
ég horfði á íslenska landsliðið í
fótbolta lúta í lægra haldi fyrir
Makedónum í fyrradag. Fótbolti er
ef til vill eitt af því fáa sem virtist
ósnortið af póstmódernismanum,
að minnsta kosti grundvallaratriði
leiksins. Ef til vill felst endurreisn
Íslands í því – póstmódernískum
fótbolta.
TUNGUTAK póstmódernism-
ans fellur vel að fótbolta. Það ætti
því að vera auðvelt að þróa nýtt
afbrigði; byrjum á að afbyggja
nokkra leikvanga, afmiðjum vell-
ina og í framhaldinu verða gerð-
ar viðeigandi breytingar á regl-
unum og dregið verulega úr þeim,
til dæmis verða engin fyrirfram
ákveðin lið heldur þurfa leikmenn
að gera það upp við sig að hvoru
markinu þeir ætla að sækja – ef
ekki báðum.
MARKMIÐIÐ er eftir sem áður
að koma boltanum (sem verð-
ur að vísu ferkantaður) inn fyrir
marklínu, með þeirri breytingu
að mörkunum hefur verið snúið
við og vísa nú að áhorfendum.
Skori einhver mark þarf dómar-
inn, sem er sprenglærður í lacan-
ískum fræðum, að taka ákvörðun
um hvort markið hafi í raun átt sér
stað. Markmiðið er ekki endilega
að sigra í leiknum heldur stuðla að
díalektískri umræðu og í beinum
útsendingum verður myndavél-
inni aðallega beint að grasrótinni
– bókstaflega.
ÞAÐ er borin von að Íslendingar
nái nokkurn tímann langt í fótbolta
miðað við núverandi skipan. Knatt-
spyrna í dag er heimsvaldaíþrótt
þar sem lítil eyríki ná ekki máli.
Það er kominn tími til breytinga.
Ísland verður orðið stórveldi áður
en við vitum af. Það eina sem við
þurfum að gera er að afmá gild-
andi reglur. Það er íslenska leið-
in.
Pómóbolti
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Hvar er þín auglýsing?
34%
74%