Fréttablaðið - 23.06.2009, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 23.06.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 ARCTIC OPEN er alþjóðlegt golfmót sem hefur fest sig í sessi og verður haldið dagana 25.-27. júní á Akureyri. Mótið hefst á fimmtudag með skráningu keppenda og opnunarhátíð þar sem boðið er upp á hlaðborð með norðlenskum veitingum. Nánar á www.arcticopen.is. Tók ekki nema 25 ár að komast í toppformMagnús Bess Júlíusson varð Norðurlandameist i ítitlinum fyrir skem Magnús reynir að halda sér í góðu formi allan ársins hring en þannig líður honum best. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ÞRIÐJUDAGUR 23. júní 2009 — 147. tölublað — 9. árgangur VEÐRIÐ Í DAG MAGNÚS BESS JÚLÍUSSON Á hátindi ferilsins nærri fertugur • heilsa Í MIÐJU BLAÐSINS KE A skyrdrykkur Nýjung með bláberjum – fyrir heilbrig ðan lífsstíl Ertu læs á fjármál? Kannaðu fjármálalæsi þitt á byr.is. Það kostar ekki neitt og tekur ekki nema nokkrar mínútur. Fjármálapróf Byrs var þróað í samstarfi við Stofnun um fjármálalæsi við Háskólann í Reykjavík. Það metur fjármálalæsi þitt og er sneisafullt af gagnlegum fróðleik um fjármál að auki. Rannsóknir hafa leitt í ljós að um helmingur Íslendinga vill vita meira um fjármál. Taktu fjármálaprófið á byr.is. Sérstæð lista- verkasýning Þjóðþekktir listaverka- safnarar veita innsýn í söfn sín á sýningu sem verður opnuð Hafnarborg í dag. TÍMAMÓT 14 ÓLAFUR DARRI ÓLAFSSON Lék frummann í al- þjóðlegri auglýsingu Franska stórfyrirtækið LG í upptökum á Íslandi FÓLK 26 HRANNAR HAFSTEINSSON Baksviðs með Metallica Stjórnar ljósunum á Hróarskelduhátíðinni FÓLK 20 Rúnari hrósað Rúnar Rúnarsson sagður besti útskrift- arnemandi Danska kvikmyndaskólans í tíu ár. FÓLK 20 HÆGLÆTISVEÐUR Í dag verða rigning eða skúrir víða um land en horfur á þurru og nokkuð björtu veðri austantil. Vindáttin verður suðlæg eða breytileg, víða 3-6 metrar á sekúndu. VEÐUR 4 12 6 11 14 10 FÓLK Sólmundur Hólm blaðamað- ur vinnur nú að því að rita endur- minningar hins þjóðþekka tón- listarmanns Gylfa Ægisson- ar ásamt við- fangsefninu. Sólmundur, sem kemur fram sem eftirherma á skemmtunum, hefur einmitt sérhæft sig í að herma eftir Gylfa.Nú hafa tekist með þeim kynni vegna verkefn- isins. „Gylfi er miklu dýpri per- sóna en ég hélt hann væri. Hann er ekki bara sjúddírarírei þó ekkert orð lýsi manninum betur. Hann er eitt stórt sjúddírarírei.“ Gylfa líst vel á verkefnið, hlífir sér hvergi en tekur fram að hann vilji ekki særa nokkurn mann. „Ef við fáum eitthvað fyrir þetta vil ég ekki eyða því öllu í lög- fræðinga.“ - jbg / sjá síðu 26 Aðdáandi kemst í feitt: Ævisaga Gylfa Ægis í smíðum GYLFI ÆGISSON EFNAHAGSMÁL Tvö af þremur álfyrirtækjum hérlendis stunda viðskipti með krónur á erlendum mörkuðum. Fyrirtæki sem stunda þessi viðskipti geta hagnast á mis- ræmi milli opinbers gengis Seðla- banka Íslands og gengis krónunnar á markaði í Evrópu. Viðskiptin gætu átt sér stað með þeim hætti að álfyrirtækin kaupi gjaldeyri á markaði í Evrópu þar sem gengi krónunnar er hagstæð- ara. Fyrirtækin fá með þessum hætti fleiri krónur fyrir hvern dollara í útflutningstekjur heldur en ef fyrirtækin hefðu skipt gjald- eyrinum hérlendis. „Mörg fyrir- tæki hafa undanþágur frá höftun- um í samræmi við 14. gr. reglnanna. Hins vegar eru undanþágur ekki ætlaðar til að fyrirtækin hagnist vegna reglnanna,“ segir Svein Har- ald Öygard Seðlabankastjóri. Athuga ber að fyrirtækin brjóta ekki lög með viðskiptunum þar sem þau hafa undanþágu frá gjaldeyris- reglum Seðlabankans. Upplýsingafulltrúar Alcan á Íslandi og Alcoa segja að fyrir- tækin hafi bæði varið lágu hlutfalli tekna til kaupa á íslenskum krón- um erlendis. Upplýsingafulltrúi Norðuráls segir hins vegar að öll viðskipti fyrirtækisins með íslenskar krón- ur hafi alla tíð farið fram á Íslandi og eingöngu í gegnum íslenska við- skiptabanka. Hjá Alcan hefur nú verið ákveð- ið að breyta viðskiptaháttum með krónur. Eftir umfjöllun Fréttablaðs- ins um gjaldeyrisviðskipti útflutn- ingsfyrirtækja hafði Alcan sam- band við Seðlabanka Íslands sem óskaði eftir því að gjaldeyrisvið- skipti fyrirtækisins færu alfarið fram hérlendis. -bþa / sjá síðu 6 Áltekjur skila sér illa Álfyrirtækin nýta sér markað með krónur erlendis og hagnast þannig á mis- ræmi milli gengis Seðlabanka Íslands og markaðsgengis krónunnar erlendis. Pepsi-deild karla Valsmenn og Blikar með góða sigra í lokaleikj- um áttundu umferðar í gærkvöldi. ÍÞRÓTTIR 22 Efnahagslegt heilsuleysi „Við ber að Íslendingar á erlendri grund kjósi að leyna þjóðerni sínu,“ skrifar Jónína Michaelsdóttir. UMRÆÐAN 12 STJÓRNMÁL Fulltrúaráð Sjálfstæð- isflokksins í Kópavogi samþykkti með yfirgnæfandi meirihluta í gær að Gunnsteinn Sigurðsson tæki við af Gunnari I. Birgissyni sem bæjarstjóri. Framsóknarmenn funduðu í gærkvöldi og samþykkt var að halda samstarfinu áfram að nokkrum skilyrðum uppfylltum. Meðal annars að nýr bæjarstjóri úr röðum Sjálfstæðisflokks taki við ekki síðar en á miðvikudag og sitji út kjörtímabilið. Ætli Gunnar sér að snúa aftur sem bæjarfull- trúi þurfi að semja um samstarf flokkanna að nýju. Mikill hiti var á fundinum og tillaga um sam- starfsslit var felld naumlega. Á fundi Sjálfstæðismanna var samþykkt tillaga um að lýsa yfir fullu trausti á Gunnar Birgisson og hans störf. Í þrígang klöppuðu fundarmenn honum lof í lófa. - kóp Nýr bæjarstjóri í Kópavogi: Samstarf áfram með skilyrðum EFNAHAGSMÁL Fundað var í Stjórn- arráðinu fram eftir kvöldi í gær um stöðugleikasáttmála. Allt kapp var lagt á að undirrita samninginn í gær og stóð fundur enn yfir þegar Fréttablaðið fór í prentun. Samkvæmt heimildum blaðsins er samningurinn mjög víðfeðmur og tekur á flestum þeim málum sem hvað hæst hafa farið undan- farið; ríkisfjármálum, bönkum og gjaldeyrishöftum, svo eitthvað sé nefnt. Þá er gert ráð fyrir að engar ákvarðanir verði teknar í ríkisfjármálum án aðildar samn- ingsaðila. Fulltrúar vinnumarkaðar- ins hittu ríkisstjórnina í hádeg- inu í gær og gengu síðan á fund í Karphúsinu. Ætlunin var að hitta ráðherrana aftur síðdegis en það tafðist, bæði vegna umræðu á Alþingi og þátta sem þurfti að vinna frekar í samningnum. Á meðan sátu fulltrúar Banda- lags starfsmanna ríkis og bæja, Alþýðusambandsins, Bandalags háskólamanna, kennarar, banka- menn og fulltrúar Samtaka atvinnulífsins, ásamt fulltrúum ríkisvalds og sveitarfélaga. Sú nefnd hittist klukkan 20 og gekk frá tillögunni sem lögð var fyrir ráðherrana klukkan rúmlega 21 í gærkvöldi. - kóp Fundað um stöðugleikasáttmála langt fram eftir kvöldi í gær: Stefnt að undirritun samningsins SAMIÐ UM STÖÐUGLEIKA Fulltrúar atvinnulífs og ríkisstjórnar sátu á fundi fram á nótt í Stjórnarráðinu í gær. Reyna átti að skrifa undir en óvíst var hvort það næðist þegar Fréttablaðið fór í prentun. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.