Fréttablaðið - 23.06.2009, Page 2
2 23. júní 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Dagný Alda, er þetta ekki
harður bransi?
„Hann er að minnsta kosti ekki
mjúkur.“
Dagný Alda Steinsdóttir innanhússarki-
tekt, sem á og rekur fyrirtækið Alda
Design, hyggur á útflutning á vörum úr
íslensku grjóti.
EFNAHAGSMÁL Samkvæmt nýju mati
skilanefndar Landsbanka Íslands
hf. er gert ráð fyrir því að 83 pró-
sent fáist upp í forgangskröfur
miðað við stöðuna 30. apríl síð-
astliðinn. Matið hefur lækkað úr
89 prósentum í febrúar. Ef matið
reynist rétt munu nettóskuldir
íslenska ríkisins vegna Icesave-
samningsins hækka úr 72 millj-
örðum í 115 milljarða. Þar að auki
munu vaxtagreiðslur af Icesave-
samningnum bætast við þessa
fjárhæð.
Lárus Finnbogason, formað-
ur skilanefndar Landsbankans,
segir að sá hluti sem eftir varð í
gamla Landsbankanum hafi verið
langsamlega verstu lánin í lána-
safni bankans. Það skýri að hluta
ástæður þess að endurheimtuhlut-
fall lána íslenska lánasafnsins sé
einvörðungu 23 prósent, það lang-
lægsta af þeim lánasöfnum sem
bankinn á hlut að. Endurheimtu-
hlutfall áhættusömustu útlána
Landsbankans í London séu 63 pró-
sent og 97 prósent í svokölluðum
eignatryggðum flokki. Því eru lán
Landsbankans erlendis að skila sér
mun betur en útlán hérlendis.
Lárus segir að í sumum til-
fellum sé einungis verið að fá
smáræði upp í milljarðakröfur
íslenskra eignarhalds- og fjárfest-
ingarfélaga. Hann segir að þessi
félög dragi endurheimtuhlutfall-
ið umtalsvert niður. Hann segir
jafnframt að óvissan um eigna-
safnið sé enn ákaflega mikil og
erfitt sé að meta það. Lárus bætir
við að birt verði uppfært mat á
verðmæti eigna í ágúst.
„Ég verð stöðugt áhyggjufyllri
yfir því að það eigi að samþykkja
þennan Icesave-samning,“ segir
Tryggvi Þór Herbertsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins.Hann
segir samninginn ótraustari en
hann gerði ráð fyrir og hann vilji
sjá ákveðið hámark á þær skuld-
bindingar sem íslenska ríkið taki
á sig. Hann er ekki ánægður með
þá óvissu og miklu áhættu sem er
viðloðandi samninginn og segir
erfitt að skrifa undir við þessar
aðstæður.
„Ég tel þó að tjónið af völdum
Icesave-samninganna verði af
þeirri stærðargráðu að það sé
viðráðanlegt,“ segir Helgi Hjörv-
ar alþingismaður, sem jafnframt
er formaður efnahags- og skatta-
nefndar. Helgi segist ánægður
með að matið frá því í febrúar
gangi í aðalatriðum eftir en það
sé vissuleg slæmt að eignirnar
séu að rýrna.
bta@frettabladid.is
Eignir bankans rýrna
og skuldabyrði eykst
Verðmæti eigna Landsbankans lækkar. Helgi Hjörvar segir tjónið viðráðanlegt.
Formaður skilanefndar Landsbankans bendir á slök lánasöfn íslenskra fjárfest-
ingarfélaga. Tryggvi Þór Herbertsson segir samninginn ótraustan.
FUNDUR EFNAHAGS- OG SKATTANEFNDAR Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og
skattanefndar, ræðir uppfært mat á eignum Landsbankans. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ég verð stöðugt áhyggju-
fyllri yfir því að það eigi
að samþykkja þennan Icesave-
samning.
TRYGGVI ÞÓR HERBERTSSON
ÞINGMAÐUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKS
VIÐSKIPTI Olís hækkaði verð á öllu
bensíni um 12,5 krónur í gær og er
lítrinn á blýlausu bensíni rúmlega
190 krónur á flestum sölustöðum.
Hækkunin er tilkomin vegna
breytinga á vörugjöldum sem
tóku gildi 28. maí. Þær birgðir
sem félagið átti fyrir hækkunina
kláruðust 18. júní síðastliðinn, en
síðan þá hefur fyrirtækið tvisvar
flutt inn bensín.
„Þessi hækkun er einfaldlega
endurspeglun á þeim skattahækk-
unum sem ríkisstjórnin lögleiddi á
dögunum og lýsir þeim veruleika
sem íslenskir neytendur búa við,“
segir Tryggvi Þór Herbertsson
alþingismaður. Hann segir þessa
hækkun skila sér beint inn í vísi-
tölu neysluverðs, sem skili sér í
hækkun lána landsmanna.
Hin olíufélögin hafa ekki fylgt í
kjölfarið en talið er líklegt að það
styttist í það. Birgðirnar dugi í
mesta lagi út mánuðinn.
„Það gefur augaleið að svona
mikil hækkun á bensínverði hefur
áhrif á ferðaþjónustu og búast
má við að margir keyri minna
en ella,“ segir Erna Hauksdóttir,
framkvæmdastjóri Samtaka ferða-
þjónustu.
„Allar skattahækkanir sem
hækka ferðakostnað eru áhyggju-
efni og alltaf hætta á að fólk dragi
úr keyrslu,“ segir Erna. - vsp
Olís hækkar bensínverð um 12,5 krónur á lítra sem kostar nú um 190 krónur:
Hækkar lán og ferðakostnað
BENSÍNI DÆLT Aðeins er farinn að
þyngjast róðurinn fyrir bílaeigendur eftir
að verð hækkaði á öllu bensíni um 12,5
krónur hjá Olís í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ALÞINGI Frumvarp um ríkisábyrgð
vegna Icesave-samninganna verð-
ur lagt fyrir Alþingi strax að lokn-
um nefndardögum sem lýkur á
fimmtudag. Þetta kom fram í máli
Steingríms J. Sigfússonar fjár-
málaráðherra á þingi í gær.
Í svörum við óundurbúnum
fyrirspurnum Illuga Gunnars-
sonar og Birgittu Jónsdóttur kom
fram að ráðherra hefði séð lána-
safn Landsbankans. Hann myndi
tryggja að þingmenn fengju einn-
ig aðgang að eignasafninu áður en
þeir tækju afstöðu til frumvarps-
ins. Hann sagðist efast um að full-
trúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
hefði kynnt sér safnið. - kóp
Spurt um Icesave á Alþingi:
Icesave fyrir
þing á föstudag
ALÞINGI Fjármálaráðherra sagði
aðspurður að Bretum hefði ekki verið
gert viðvart um að Icesave nyti mögu-
lega ekki meirihlutastuðnings á Alþingi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Valgeir Skagfjörð á þing
Valgeir Skagfjörð tók sæti í fyrsta
sinn á Alþingi í gær. Hann kemur
inn sem varamaður fyrir Þór Saari,
þingmann Borgarahreyfingarinnar,
sem er frá þingstörfum í tvær vikur
vegna persónulegra ástæðna. Valgeir
var í 2. sæti á lista Borgarahreyfingar-
innar í Suðvesturkjördæmi í síðustu
kosningum.
ALÞINGI
ÍRAN Mótmæli voru leyst upp með
táragasi í Teheran í Íran í gær.
Um þúsund manns höfðu komið
saman í gær en engin mótmæli
voru á sunnudag. Að minnsta
kosti nítján létust í stórum mót-
mælum á laugardag og 457
manns voru handteknir.
Leiðtogaráðið í Íran hefur
viðurkennt að í um 50 héruð-
um landsins hafi greidd atkvæði
verið fleiri en fjöldi á kjörskrá.
Heilbrigðisyfirvöld segja nítj-
án hafa látist á laugardaginn.
Ríkisfjölmiðlar segja þrettán
hafa látist en aðrar fréttir herma
að fjöldinn gæti verið allt að 150
manns.
Mir Hossein Moussavi, sem
tapaði í forsetakosningunum
þann 12. júní, hvatti í gær stuðn-
ingsmenn sína til að halda mót-
mælum áfram á friðsamlegan
hátt. - þeb
Mótmæli í Íran héldu áfram:
Viðurkenna
kosningasvindl
í 50 héruðum
VIÐSKIPTI Ekki er enn ljóst hvert
Bókabúð Máls og menningar fer
eftir að versluninni við Laugaveg
verður lokað 1. ágúst næstkom-
andi.
Verið er að meta stöðuna, að
sögn Ingþórs Ásgeirssonar, fram-
kvæmdastjóra verslanasviðs Penn-
ans. Komið hafi til tals að vera á
Laugavegi 26, þar sem Skífan er nú
til húsa. Einnig hafi verið skoðað að
fara í SPRON-húsið við Skólavörðu-
stíg. „Sena [rekstarfélag Skífunn-
ar] er eitt af þeim fyrirtækjum sem
rætt hafa við okkur,“ segir Ingþór.
Hann segir ákvörðun verða tekna
fyrir lok þessarar viku. Ekki náð-
ust samningar milli Pennans og
Kaupangs, eigendafélags hússins,
um áframhaldandi leigu.
Bókmenntafélagið Mál og menn-
ing hyggst stofna nýja bókabúð í
húsinu við Laugaveg 18 sem mun
bera heitið Mál og menning, þó að
ekki sé reksturinn á vegum Penn-
ans. Þetta segir Árni Einarsson,
stjórnar formaður bókmenntafé-
lagsins. Félagið seldi Pennanum
rekstur Bókabúðar Máls og menn-
ingar fyrir sjö árum.
Bókmenntafélagið Mál og menn-
ing hyggst stofna bókabúðina með
eigendum bókaverslunarinnar
Iðu. Bókaverslun Iðu við Lækjar-
götu verður þó ekki lokað, að sögn
Árna, enda verða ekki sömu áhersl-
ur í verslununum. Áhersla verður
á innlendar bækur í nýju bókabúð-
inni. Aðspurður segist Árni ekki
gera athugasemd við það að Penn-
inn komi sér upp bókabúð Máls og
menningar í miðbænum.
Fjármálastjóri Senu vildi ekki
tjá sig um hvort til stæði að leigja
Pennanum húsnæði Skífunnar við
Laugaveg. - vsp
Skífuhúsið og SPRON-húsið koma til greina undir Bókabúð Máls og menningar:
Tvær M&M búðir í miðbænum
LAUGAVEGUR 18 Bókabúð Máls og
menningar fer úr þessu húsi 1. ágúst. Í
húsinu verður hins vegar rekin bókabúð
sem heitir Mál og menning.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
HEILBRIGÐISMÁL Óhjákvæmilegt
er að skerða heilbrigðisstarfsemi
eigi að mæta þeim niðurskurði
sem heilbrigðis- og trygging-
arráðuneytinu er gert að gera,
segir Ögmundur Jónasson heil-
brigðisráðherra.
„Þetta er svo mikill niður-
skurður að óhjákvæmilegt er
að þetta komi niður á starfsem-
inni.“ Hann segist hafa áhyggjur
af stöðunni og reynt verði að ná
markmiðum fjárlaga, sem meðal
annars séu sett að undirlagi
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Verk-
efnið verði unnið í samvinnu við
starfsfólk og notendur þjónustu.
„Við munum vinna þetta á félags-
legum og lýðræðislegum nótum.“
- kóp
Ráðherra óttast niðurskurð:
Mun koma nið-
ur á starfsemi
BRETLAND John Bercow, þingmað-
ur Íhaldsflokksins í Bretlandi var
kjörinn 157. forseti neðri deildar
breska þingsins. Hann hlaut 322
atkvæði en keppinautur hans
og samflokksmaður, Sir George
Young, fékk 271 atkvæði.
„Þetta er mesti heiður á mínum
pólitíska ferli,“ sagði John eftir
að úrslitin lágu ljós fyrir í gær-
kvöldi.
Hann tekur sæti Michaels
Martin úr Verkamannaflokknum
sem vék sökum útgjaldahneykslis
sem kom fram í dagsljósið. Marg-
ir breskir þingmenn og ráðherrar
sögðu af sér í kjölfar hneykslis-
ins. - vsp
Nýr forseti neðri deildar:
Mesti heiður
pólitísks ferils
Tafir við Borgarnes
Umferðartafir verða á Borgarfjarðar-
brú við Borgarnes milli eitt og hálf-
fjögur aðfaranótt miðvikudags vegna
viðgerðar.
BORGARNES
SPURNING DAGSINS