Fréttablaðið - 23.06.2009, Síða 8
23. júní 2009 ÞRIÐJUDAGUR
DÓMSMÁL Aðalmeðferð hófst í gær í
Héraðsdómi Reykjavíkur yfir fjór-
um ungmennum sem rændu eldri
hjón á Arnarnesi í apríl síðastliðn-
um.
Fólkið er allt ákært fyrir hús-
brot, rán og brot gegn frjálsræði
manna. Þá eru þau öll sökuð um
að hafa tekið ákvörðun um ránið í
félagi hvert við annað og teljast því
meðsek í málinu, þrátt fyrir að hafa
átt mjög mismikinn þátt í því. Tveir
menn, 22 og 31 árs, eru ákærðir
fyrir að ryðjast inn í hús hjónanna,
ráðast á þau, halda þeim í gíslingu
og ræna þau. Tvær stúlkur, 20 og 17
ára, eru ákærðar fyrir að leggja á
ráðin um ránið og bíða mannanna í
bíl. Yngri stúlkan er barnabarn
mannsins sem var rændur.
Við vitnaleiðslur kom fram að
fólkið hefði allt verið undir áhrif-
um áfengis og fíkniefna þegar ránið
var framið. Ætlunin hefði upphaf-
lega verið að ræna mannlaus hús
til þess að fjármagna fíkniefna-
kaup. Stúlkurnar tvær og annar
mannanna keyrðu um Arnarnes-
ið og önnur stúlkan benti hinum
á hús afa síns og stjúpömmu við
Mávanes. Þau hafi séð ljós í húsinu
og þess vegna ákveðið að fá hinn
manninn með í ránið.
Yngri maðurinn bar fyrir dómi
að hann hefði ekki vitað að um rán
væri að ræða heldur hefði hann
verið beðinn um að hjálpa til við
búslóðarflutninga. Hinir sakborn-
ingarnir þrír sögðu þó allir að
honum hefði verið fullljóst að rán
væri ætlunin.
Mönnunum er gefið að sök að
hafa ruðst inn á heimili hjónanna
þegar konan kom til dyra. Þá mun
sá eldri hafa tekið fyrir vit henn-
ar, snúið hana niður í gólfið og svo
slegið hana þremur þungum högg-
um í höfuðið. Hinn hafi á sama tíma
farið á neðri hæð hússins þar sem
maðurinn var, lagt hníf að honum
og hótað að stinga hann. Hann hafi
svo hótað báðum hjónunum lífláti
á meðan félagi hans fór um húsið í
leit að verðmætum. Þeir skáru svo
á símasnúrur og hótuðu að skjóta
hjónin áður en þeir fóru.
Yngri maðurinn sagðist fyrir
dómi ekki hafa haft í hótunum við
hjónin. Sá eldri neitaði líka að hafa
hótað hjónunum og slegið konuna.
Hvorugur þeirra kannaðist við að
hafa skorið á símalínurnar. Fram
kom fyrir dómi að mennirnir höfðu
aldrei hist fyrr en í ráninu. Stúlk-
urnar tvær hafa hins vegar verið
vinkonur frá því þær kynntust í
meðferð á Vogi fyrir um ári.
thorunn@frettabladid.is
Arnarnesræningjar
neita að hafa hótað
Aðalmeðferð hófst í héraðsdómi í gær í máli fjórmenninga sem rændu eldri
hjón á Arnarnesi í apríl. Mennirnir sem frömdu ránið eru sagðir hafa hótað og
ógnað hjónunum en neita því. Þeir höfðu aldrei hist fyrir ránið.
FYRIR DÓMARA Hér sést annar ákærðu mannanna leiddur fyrir dómara í apríl .
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Önnur stúlknanna tveggja er barna-
barn mannsins sem var rændur. Hún
bar fyrir dómi að hún hefði beðið
mennina tvo sem frömdu ránið um
að gera afa sínum og stjúpömmu
ekki mein. Hún beið ásamt hinni
stúlkunni í bíl á meðan ránið fór
fram. Þá sagði hún að hana hefði
langað að vara við ráninu en ekki
getað það vegna þess að síminn
hennar hefði verið ónýtur. Jafnframt
sagði hún að sig hefði langað að
gefa sig fram en ekki þorað.
Hin stúlkan sagði að á meðan
þær sátu í bílnum hefði barnabarnið
sagt við hana að hún hefði verið
að grínast með að benda á hús afa
síns og stjúpömmu. Hún hefði ekki
haldið að látið yrði verða af því að
fremja ránið. Þegar henni hefði orðið
það ljóst hefði hún ekki þorað að
segja neitt.
VAR AÐ GRÍNAST MEÐ RÁNIÐ
VERSLUN Erlendir ferðamenn
koma í hópum í tölvuverslunina
EJS í Reykjavík og á Akureyri og
kaupa fartölvur, enda er gengið
þeim hagstætt. „Ferðamenn eru
að gera kjarakaup og það er mjög
hagstætt verð hjá okkur og hefur
alltaf verið. Einnig erum við að
bjóða útlendingunum upp á alþjóð-
lega ábyrgð,“ segir Bjarni Þór Sig-
urðsson, sölustjóri EJS. Kaupæðið
hófst strax í október í fyrra í kjöl-
far gengishrunsins.
„Um jólin var síðan mikið um
að Íslendingar í skólum erlend-
is og fólk sem var búsett erlendis
keypti sér fartölvu hér til að taka
með sér út,“ segir Bjarni.
Mikið af skemmtiferðarskipum
hefur verið í höfn á Akureyri frá
því í vor og segir Bjarni að mikið
sé um að teknar séu rútuferðir í
verslanir. Einnig komi margir
almennir ferðamenn og kaupi af
þeim.
Fartölvusala hefur verið góð hjá
fyrirtækinu frá bankahruninu að
sögn Bjarna og sala til almennings
milli ára stendur í stað. Fyrirtæk-
in séu hins vegar að draga saman
og því dragist salan til þeirra
saman.
Hann segir að tölvumerkið Dell
sé sjaldgæft í verslunum erlend-
is og því séu ferðamenn spennt-
ir fyrir því. Þeir þurfi venjulega
að panta tölvurnar á netinu í sínu
heimalandi. - vsp
Erlendir ferðamenn kaupa mikið af fartölvum eftir að krónan hrundi:
Ferðamenn gera kjarakaup
Í TÖLVUVERSLUN Erlendir ferðamenn
kaupa fartölvur í hrönnum af EJS.
Gengið er þeim hagstætt eftir að krónan
hrundi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
MENNTAMÁL Töluvert fleiri stúlkur
voru teknar inn í Menntaskólann í
Reykjavík en strákar fyrir næsta
skólaár. Af þeim sem tekin voru
inn var 151 stúlka og 115 piltar.
Stúlkur á fyrsta ári verða því um
57 prósent nemenda þess árs.
Ekki er óvenjulegt að fleiri
stúlkur séu teknar inn, að sögn
Bjarna Gunnarssonar, konrekt-
ors MR. Þetta sé þó ívið meira en
oftast hafi verið. Ekki var reynt
að jafna hlutfallið milli kynjanna.
Miðað var við einkunnina 8,4 á
náttúrufræðibraut og 8,2 á mála-
braut þegar umsækjendur voru
metnir.
Í Verzlunarskóla Íslands er
hlutfallið hærra. Stúlkur eru um
63 prósent þeirra sem fengu inn-
göngu fyrir næsta skólaár og pilt-
ar um 37 prósent. Inngöngu fengu
308 nemendur; 194 stúlkur og 114
piltar. Engin sérstök viðmiðunar-
einkunn var í Verzló en langflest-
ir nemendur voru með yfir 8,5 í
meðaleinkunn úr grunnskóla.
Ekki er búið að taka tölur um
kynjahlutfall saman í Menntaskól-
anum við Hamrahlíð að sögn G.
Pálma Magnússonar, konrektors
MH. Verið er að vinna í því.
Í fyrstu atrennu voru þeir
lægstu sem komust inn með 7,5
í meðaleinkunn. Þegar taka átti
inn þá sem völdu MH sem auka-
val þurfti hins vegar að vísa fólki
frá sem var langt yfir 8,5 í meðal-
einkunn.
„Við bjuggumst ekki við að
Verzló og MR vísuðu fólki með
svona háar einkunnir frá,“ segir
Pálmi. - vsp
Kynjahlutfall mjög ójafnt í vinsælustu framhaldsskólunum á næsta skólaári:
Piltar í miklum minnihluta
TOLLERING Í MR Töluvert fleiri stúlkur
en piltar verða tolleraðar næsta haust.
Um 57 prósent nemenda sem teknir
voru inn fyrir næsta skólaár voru stúlkur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM