Fréttablaðið - 23.06.2009, Page 12

Fréttablaðið - 23.06.2009, Page 12
12 23. júní 2009 ÞRIÐJUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 UMRÆÐAN Siv Friðleifsdóttir skrifar um umhverfismál Þann 15. júní var lögð fram þingsálykt-unartillaga á Alþingi um að unnin verði landnýtingaráætlun fyrir ferða- mennsku á miðhálendinu, þannig að unnt sé að taka vel á móti ferðamönnum á hálendinu án þess að ganga of nærri því. Höfundur er fyrsti flutningsmaður en þingmenn úr öllum flokkum eru meðflutnings- menn. Ferðamönnum á Íslandi fjölgar ört. Í ár er reikn- að með smávægilegri fækkun vegna efnahags- þrenginga á alþjóðavettvangi en líklega fjölgar ferðamönnum aftur strax á næsta ári. Síðustu fimm ár hefur erlendum ferðamönnum hér fjölgað um 9,8% á ári. Um 502.000 ferðamenn sóttu landið heim árið 2008. Miðað við áframhaldandi aukn- ingu má vænta þess að yfir ein milljón erlendra ferðamanna sæki landið heim upp úr 2016. Jafn- framt er líklegt að Íslendingar kjósi í auknum mæli að ferðast innanlands næstu ár. Til að hægt sé að taka á móti þessum fjölda án þess að skemma viðkvæma náttúru eða upplifun ferðamannanna er mikilvægt að kanna þolmörk ferðamannastaða. Slíkar kannanir hafa verið unnar að einhverju leyti, en auka þarf allt rannsóknarstarf á þessu sviðið. Í ferðaþjónustu er Ísland kynnt á grund- velli hreinnar óspilltrar náttúru þar sem saman fer sérstætt og fjölbreytilegt landslag og ósnortin víðerni. Kannanir Ferðamálastofu sýna að 76% erlendra ferðamanna koma til að upplifa íslenska náttúru. Í Háskóla Íslands hefur verið lagður grunnur að kortlagningu ósnort- inna víðerna. Fyrstu niðurstöður sýna að 42% landsins flokkast til ósnortinna víð- erna, og þá er ekki tekið tillit til raflína Landsnets nema að litlu leyti þar sem slík gögn eru ekki aðgengileg. Samkvæmt þessari flokkun eru ósnortin víðerni án jökla innan við 31% landsins. Því er brýnt að huga vel að þessum landsvæðum svo sérstaðan glatist ekki. Gert er ráð fyrir að framangreind landnýtingar- áætlun verði unnin undir forustu iðnaðarráð- herra og umhverfisráðherra. Við vinnslu henn- ar skal hafa samráð hagsmunaaðila í greininni. Einnig er nauðsynlegt að leita til sérfræðinga, svo sem í ferðamálafræðum, við undirbúning og vinnslu áætlunarinnar. Æskilegt væri að klára vinnslu hennar fyrir árslok 2015. Ferðaþjónustan skilar vaxandi gjaldeyristekjum í þjóðarbúið og námu þær um 110 milljörðum króna á síðasta ári. Gjaldeyristekjur Íslands það ár skiptust þannig að 29,7% voru af stóriðju, 26,3% af sjávarafurðum og 16,9% af erlendum ferðamönnum. Það er því til mikils að vinna. Höfundur er alþingismaður. Ferðamennska á hálendinu SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR Þegar Sesselja Sigmundsdóttir, stofnandi Sólheima í Gríms- nesi, var að alast upp á Brúsa- stöðum í Þingvallasveit kom farandkennari á veturna, bjó á heimilinu um hríð og kenndi börnunum. Þetta var ung kona, Unnur Vilhjálmsdóttir, afbragðs- kennari og í miklum metum hjá fjölskyldunni. Þegar Sesselja ákveður að stofna heimili fyrir munaðarlaus börn og koma þeim til manns, fer hún utan til að afla sér þekkingar og reynslu og biður föður sinn að fylgjast með ef gott jarðnæði losnar í nágrenni Reykjavíkur meðan hún er erlendis, því hún ætlar að stunda búskap. Hún skrifar gamla kenn- aranum sínum um hagi sína og framtíðaráform, og Unnur svarar um hæl, samgleðst henni og hvetur til dáða. „Lærðu það sem veitir þér atvinnu og peninga, svo að þú þurfir ekki að vera upp á aðra komin, svo þú getir verið sjálfstæður borgari, hvort heldur er karl eða kona.“ Þetta var árið 1927. Þessi framsýni kennari kveðst ekki komast suður eins og fyrir- hugað hafi verið vegna veikinda, en biður Sesselju að orða það ekki við neinn: „Því ég vil ekki vera í hvers manns munni lasin!“ skrif- ar hún. Virðing og vorkunnsemi Unnur hefur bersýnilega verið læs á mannlegt eðli og samfé- lagshegðun, þar sem hinn sterki nýtur virðingar en sá veiki vor- kunnar. Oft samúðar og sam- kenndar, en vorkunnsemin er yfirleitt ekki langt undan. Og hver vill láta vorkenna sér? Varla margir. Virðing og vorkunnsemi eru sjaldan samstíga. En ekki verður við öllu séð. Nú erum við Íslendingar í hvers manns munni lasnir, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Fjár- hagslegt heilsuleysi þjóðarinnar vekur ýmist undrun, vorkunn- semi eða reiði annarra þjóða. Við ber að Íslendingar á erlendri grund kjósi að leyna þjóðerni sínu, og er það nýmæli, svo ekki sé meira sagt. Það er hart að missa virðingu annarra þegar eitthvað bjátar á, en verra ef sjálfsvirðingin er ekki nógu sterk til að standa það af sér. Öllum líður best umvafð- ir velvild og virðingu, það segir sig sjálft, en aldrei verður of oft á það minnt, að sá sem sækir sjálfsvirðingu sína og sjálfstraust í álit annarra er á hálum ís. Það er eins og að afhenda öðrum fjar- stýringu að eigin líðan og láni. Framtíðarsýn Hvernig erum við svo að höndla þetta efnahagslega heilsuleysi og fylgikvilla þess? Svona og svona, er það ekki? Stjórnmálamenn eru að tapa trausti með því að taka ekki þjóðina með sér í þennan flókna leiðangur, þó að henni sé ætlað að fjármagna hann. Hafi áður verið gjá milli þings og þjóðar, hefur hún breikkað ef eitthvað er. Flestir laga sig að breyttum aðstæðum, draga saman, og lífið hefur sinn vanagang, en allt of margir eiga þess ekki kost. Mærðarhjal á Alþingi og í frétta- viðtölum hjálpar því fólki ekki neitt. Ungt fólk flytur unnvörpum til útlanda ef það á þess kost. Ungur maður sem ég þekki flutti til Noregs með fjölskyldu sína fyrir nokkrum mánuðum, og fékk þar góða vinnu og fínt húsnæði. Hann kom til landsins í nokkra daga og fannst allt vera við það sama. „Það er ótrúlegt frelsi að vera laus við þessa umræðu,“ sagði hann með áherslu. Ætla má að við náum vopn- um okkar og virðingu í augum umheimsins smám saman á næstu árum ef vel tekst til, en þangað til verður eflaust þungt undir fæti. Spurningin er hins vegar hvort bærileg eining eða ósættanlegt sundurlyndi verður með þessari þjóð, sem allir eru að tala um. Þessari þjóð, sem er svo auðug og lángefin á mörgum svið- um, en skortir annað. Til dæmis skilning á þeim sannindum, að sá sem á lítið er ekki fátækur, held- ur hinn, sem fær aldrei nóg. Núna skiptir mestu að horfa fram á veginn. Fá skýra fram- tíðarsýn sem þessi fámenna og þrasgefna þjóð getur sameinast um. Það er búið að tala, skrifa og rífast nóg um það sem liðið er. Nú er komið að því að rífa sig upp úr farinu, því að fortíðin er til að læra af – ekki til að lifa í! Efnahagslegt heilsuleysi JÓNÍNA MICHAELSDÓTTIR Í DAG | Samlynd þjóð eða sundurlynd Þ á voru þeir ekki eins vondir í skapinu, pólitíkusarnir,“ sagði Gísli Halldórsson arkitekt í viðtali í Morgunblað- inu á sunnudag. Ummælin féllu í kjölfar frásagnar af því stórmerka átaki þegar ráðist var í umfangsmiklar íbúðabyggingar í Reykjavík á sjötta áratugnum til að koma þaki yfir höfuð hundraða fjölskyldna sem bjuggu í lekum og köldum bröggum vítt og breitt um borgina. Átakið var samhent og að því komu stjórnmálamenn í bæ og ríki, félagasamtök og fleiri. Menn voru sammála um að við ríkj- andi ástand mætti ekki búa og sammæltust um að finna lausn á vandanum. Nú, röskri hálfri öld síðar, er við býsna mikinn vanda að etja í íslensku samfélagi. Og einmitt þegar þörf er á samheldni og samstöðu eru pólitíkusarnir vondir í skapinu. Ástand efnahagsmála er hrikalegra en svo að tólf manna rík- isstjórn ráði við það. 34 manna þingmeirihluti tveggja stjórn- málaflokka dugar heldur ekki til. Þegar viðfangsefnið er að búa svo um hnúta að nú og eftirleiðis verði lífvænlegt á Íslandi þarf allar hendur á árarnar. Meðal verkefna er að gera bankana eins vel starfhæfa og mögulegt er, fjalla um skuldir heimilanna, ráðast gegn atvinnu- leysinu, styrkja starfsumhverfi fyrirtækjanna, leysa Icesave- deiluna, bæta stöðu sveitarfélaga, ræða aðkomu lífeyrissjóða að endurreisninni, afla lánsfjár í útlöndum, spara stórlega í ríkis- rekstrinum, styrkja krónuna og endurhugsa tekjuöflun ríkisins, svo eitthvað sé nefnt. Svo þarf að hafa í huga að margvíslegar afleiðingar ástandsins eru fjarri því komnar í ljós. Á næstu mánuðum og árum mun þjóðin líklega glíma við félagsleg og heilsufarsleg vandamál af áður óþekktri stærðargráðu. Undir það þarf að búa félags- og heilbrigðiskerfið. Þá er réttarfarshliðin ónefnd en stjórnmálamenn verða að gæta að því að rannsóknir, ákærur og dómsmeðferðir gangi eðlilega fyrir sig. Líka refsingar ef og þegar þar að kemur. Það er sem sagt mikið að gera á pólitískum vettvangi og verk- efnin geipilega mikilvæg. Við þessar aðstæður er ekki rúm fyrir hefðbundið pólitískt þras. Stælar og skens verða að víkja fyrir viljanum til að vinna saman að lausnum. Hvíla þarf alla tilburði sem ekki eru til ann- ars en að fella pólitískar keilur. Þeir sem ekki treysta sér til að vinna þvert á flokkslínur þurfa að segja sig frá verkinu og kalla til varamenn. Flokksformenn þurfa að sýna gott fordæmi. Bæði í röðum stjórnarliða og stjórnarandstæðinga. Með þessu er ekki átt við að allir eigi að vera sammála heldur er bent á þörfina fyrir endurnýjað hugarfar og ný vinnubrögð. Og stjórnmálamenn eru vinsamlegast beðnir um að hætta að vera svona vondir í skapinu. Má biðja um svolitla samstöðu og samheldni? Vondir í skapinu BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON SKRIFAR Ástand efnahagsmála er hrikalegra en svo að tólf manna ríkisstjórn ráði við það Ef Jón lifði Íslendingar standa andspænis stórum vanda og þurfa fyrir vikið að svara knýjandi spurningum. Til dæmis: Í hvaða flokki væri Jón Sigurðsson ef hann væri á lífi í dag? Sturla Böðvarsson sagði í Þjóðhá- tíðarræðu á Hrafnseyri að líklega væri hann í Sjálfstæðisflokknum. Einhverjir hafa þó orðið til að mótmæla og ljóst að þetta mál þarf að ræða betur þar til endanleg niður- staða fæst. Í leiðinni væri kannski hægt að skera endanlega úr um hvort Jón Sigurðsson borðaði frekar Hlöllabáta eða Nonna- báta væri hann á lífi í dag. „Björtustu“ Íslendingarnir Þá er það spurningin um hverjir séu líkastir Bjarti í Sumarhúsum. ESB-sinnar ganga að því sem vísu að „Bjartastir“ séu þeir sem eru á móti ESB-aðild. Hallur Hallsson tók hins vegar annan pól í hæðina í Hrafna- þingi á dögunum, og telur þvert á móti að þeir sem eru hlynntir ESB- aðild séu eins og Bjartur í Sumar- húsum. Hér þarf að velta við hverjum steini áður en botn er fenginn í málið. Kannski Halldór Guðmundsson og Hannes Hólmsteinn Giss- urarson verði fengnir til að kveða upp úr um hver sé mesti Bjarturinn í Kastljósi við tækifæri? Þingmannalíf Þá náðu umræðurnar á Alþingi nýrri dýpt í gær þegar Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Guðmundur Steingrímsson, þing- maður Framsóknarflokksins, deildu um hvort frumvarp til laga um bankasýslu ríkisins minnti meira á skáldsögu eftir Franz Kafka eða Milan Kundera. Áður en niðurstaða fékkst í það mál steig Tryggvi Þór Herberts- son í pontu og blandaði Carlo Collodi, höfundi Gosa, í leikinn. Þessi atburða- rás er helst farin að minna á mynd eftir Þráinn Bertelsson. Spurning hver sé Þór og hver Danni. bergsteinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.