Fréttablaðið - 23.06.2009, Page 16
23. júní 2009 ÞRIÐJU-
DAGUR
2
Ari Halldórsson í nýju húsnæði í Skúlatúni 2 sem verið er að standsetja.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BÖRN ættu samkvæmt ráðleggingum Lýðheilsustöðvar að
hreyfa sig að lágmarki klukkustund á dag. Gönguferðir um
hverfið í fylgd foreldra eða útileikir eru þar gott innlegg.
Áhugi á innhverfri íhugun hefur
blossað upp meðal Íslendinga
eftir að David Lynch kvikmynda-
leikstjóri var hér á ferð í vor.
„David vill að sem flestir Íslend-
ingar leggi fyrir sig innhverfa
íhugun og stuðli þannig að samstill-
ingu í þjóðarvitundinni. Því hefur
hann gefið þjóðinni þrettán millj-
ónir til niðurgreiðslu námskeiðs-
gjalda,“ segir Ari Halldórsson, einn
af kennurum Íslenska íhugunarfé-
lagsins. Þegar hafa um 600 manns
skráð sig á námskeið á www.ihug-
un.is. Þau verða á kvöldin og um
helgar og hefjast væntanlega 3. júlí
í nýju húsnæði að Skúlagötu 2. „Við
ætlum að kenna öllum þessum 600
en þeir komast ekki allir að í einu.
Við getum kennt svona fimmtíu á
viku og eftir það mætir fólk í einka-
tíma í sex mánuði.“
Ari segir að innhverf íhugun sé
einföld, náttúruleg tækni sem iðkuð
sé í fimmtán til tuttugu mínútur
kvölds og morgna, sitjandi með
lokuð augu. Þegar hún sé iðkuð af
hópi fólks sýni rannsóknir að hún
stuðli að almennum framförum en
dragi úr neikvæðum þáttum á borð
við glæpi og ofbeldi. Um sex millj-
ónir manna um allan heim hafi lært
þessa tækni frá því að Maharishi
Mahesh Yogi, upphafsmaður henn-
ar, kynnti hana fyrir um fimmtíu
árum, þar af um 3.000 Íslending-
ar. Hann segir bæði nemendafjöld-
ann og fjárframlag Davids verða
til þess að námskeiðsgjöldin nú
séu aðeins tíu þúsund krónur eða
tíundi hluti þess sem þau séu venju-
lega. „Það er markmiðið hjá David
að gefa öllum hér á landi kost á að
læra þessa tækni og þetta er örugg-
lega eini staðurinn í heiminum sem
það kostar svona lítið.“ - gun
Einföld tækni
SagaMemo er nýleg vara úr
íslenskum lækningajurtum sem
virðist geta unnið gegn minnis-
tapi. Hún er í fljótandi formi og
framleidd af SagaMedica.
Sýnt hefur verið fram á að efni
í íslenskri ætihvönn og blágresi
dragi úr niðurbroti á boðefninu
Acetylcholin sem er mikilvægt
fyrir minnið. SagaMemo jurtaveig
er framleidd úr þessum tveimur
jurtategundum með 45 prósent
alkóhóli. Virknin er sú sama og
flestra þeirra lyfja sem notuð eru
í dag sem meðferð við Alzheimer-
sjúkdómnum. Mixtúran inniheldur
lífvirk efni sem stuðla að víkkun
æða og auknu blóðstreymi og þar
með lækkun blóðþrýstings. Einn-
ig eru efni í hvönn sem draga úr
bólgum.
SagaMemo mixtúran er tekin
inn með teskeið. Þeir sem vilja
forðast alkóhól geta sett hana í
fimm mínútur í bolla af sjóðandi
vatni og þá gufar alkóhólið upp.
- gun
Mikilvæg
fyrir minnið
Ætihvönn er íslensk lækningajurt.
NORDICPHOTOS/GETTY
Starfsfólk óskast
Rammagerðin - Iceland Giftstore leitar að kröftugu og
áhugasömu starfsfólki með góða tungumálakunnáttu í
verslanir sínar í Hafnarstræti 19 og Skólavörðustíg 8.
Áhugasamir hafi samband við
Hilmar Má Aðalsteinsson rekstrarstjóra
Iceland Giftstore, sími 691 7746,
hilmar@rammagerdin.is
„Mundu að þú hefur alltaf val um að líta jákvætt eða neikvætt á hlutina. Jákvætt
hugarfar og viðhorf stuðlar að eigin andlegri vellíðan og hefur einnig jákvæð áhrif
á alla sem umgangast þig.“
eirberg.is • 569 3100 • S
Fæst í apótekum
Rodalon
– alhliða hreinge
og sótthreinsun
• Fyrir baðherbergi
• Eyðir lykt úr íþrótt
• Vinnur gegn mygl
• Fjarlægir óæskile
• Eyðir fúkka úr tjöl
teg. Amelie - virkileg
og haldgó ur í D,DD,E
á kr. 9.990,-
teg. 810858 - létt fylltur og
glæsilegur í BC skálum á kr. 3.950,-
buxur í stíl á kr. 1.950,-
teg. 76431 - mjúkur og mjög fallegur í
CD skálum á kr. 3.950,- fl ottar boxer
buxur í stíl á kr. 1.950,-” Verð 6.885 kr.
Verð 5.885 kr.
Heilsuboðorðin tíu úr bókinni 500 hollráð