Fréttablaðið - 23.06.2009, Page 26
22 23. júní 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Vodafonev., áhorf.: 987
Valur ÍBV
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 11-9 (4-4)
Varin skot Haraldur 4 – Albert 2
Horn 6-3
Aukaspyrnur fengnar 15-14
Rangstöður 3-3
ÍBV 4–5–1
Albert Sævarsson 5
Arnór Eyvar Ólafsson 3
(32., Pétur Rúnólfs. 5)
Andrew Mwesigwa 2
(46., Tony Mawejje 6)
Eiður Sigurbjörnsson 4
Matt Garner 4
Cristopher Clements 5
Yngvi Borgþórsson 6
Andri Ólafsson 6
Bjarni R. Eiríksson 4
(74., Viðar Kjartans. -)
Þórarinn Valdimars. 5
Ajay Leitch-Smith 6
VALUR 4–4–2
Haraldur Björnsson 6
Reynir Leósson 5
Atli Sv. Þórarinsson 4
Guðmundur Mete 5
Bjarni Ólafur Eiríks. 5
Ólafur Páll Snorras. 6
Baldur Bett 5
Ian David Jeffs 5
Pétur G. Markan 6
(67., Baldur Aðalst. 5)
*Helgi Sigurðs. 6
(79., Einar Marteins. -)
Marel J. Baldvins. 6
*Maður leiksins
1-0 Pétur Georg Markan (1.)
2-0 Ólafur Páll Snorrason (9.)
2-0
Þorvaldur Árnason (7)
sport@frettabladid.is
BREIÐABLIK 2-1 STJARNAN
0-1 Arnar Már Björgvinsson (49.)
1-1 Alfreð Finnbogason (58.)
2-1 Kristinn Steindórsson (68.)
Kópavogsvöllur, áhorf.: 1.347
Jóhannes Valgeirsson (3)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 12-15 (6-5)
Varin skot Ingvar 4 – Bjarni 3
Horn 9-5
Aukaspyrnur fengnar 13-12
Rangstöður 5-2
Breiðablik 4–2–3-1 Ingvar Þór Kale 5 - Arnór Sv.
Aðalsteinsson 5, Guðmann Þórisson 6, Kári Ársæls-
son 6, Kristinn Jónsson 6 - Finnur Orri Margeirs. 4,
Guðmundur Kristjánsson 7 - Olgeir Sigurgeirsson 5,
Arnar Grétars. 7, Kristinn Steindórs. 6 (89., Haukur
Baldvins.-) - *Alfreð Finnbogason 7
Stjarnan 4–3–3 Bjarni Þórður Halldórsson 4
- Guðni Rúnar Helgason 6, Daníel Laxdal 7, Tryggvi
Bjarnason 6, Hafsteinn Rúnar Helgason - Björn
Pálsson 4, Birgir H. Birgisson 3 (90., Bjarki Páll
Eysteins.-) , Steinþór F. Þorsteinsson 6 - Arnar M.
Björgvinsson 6 (76., Magnús Björgvins. -), Halldór
Orri Björns. 4, Ellert Hreins. 2 *Maður leiksins
STAÐAN:
FH 8 7 0 1 22-6 21
Stjarnan 8 5 1 2 21-11 16
Valur 8 5 1 2 11-8 16
Fylkir 8 4 2 2 14-9 14
KR 8 4 2 2 14-9 14
Keflavík 8 4 2 2 14-2 14
Breiðablik 8 3 2 3 13-14 11
Fram 8 2 2 4 9-10 8
Grindavík 8 2 1 5 10-20 7
ÍBV 8 2 0 6 7-13 6
Þróttur 8 1 2 5 6-18 5
Fjölnir 8 1 1 6 9-20 4
PEPSI-DEILDIN
VISA-BIKAR KARLA
Dráttur 16-liða úrslitanna:
Fram - Grindavík
Breiðablik - Höttur
ÍBV - FH
Fylkir - Fjarðabyggð
Valur - KA
Víðir - KR
HK - Reynir Sandgerði
Keflavík - Þór Akureyri
Leikirnir fara fram 5. og 6. júlí.
> Eiður Smári kominn á sölulista
Sky greindi frá því í gær að Eiður Smári Guðjohnsen væri
kominn á sölulista hjá Barcelona og að þjálfari liðsins,
Pep Guardiola, hefði tjáð honum að hann væri ekki í
framtíðarplönum félagsins. Eiður Smári á
eitt ár eftir af samningi sínum við félag-
ið. Vitað er að einhver ensk félög hafa
áhuga á Eiði og þar á meðal Black-
burn. Tyrkneska félagið Besiktas er
einnig sagt hafa áhuga. Hermt er
að Barcelona vilji fá fimm milljónir
evra fyrir Eið.
Valsmenn sigruðu ÍBV, 2-0, á heimavelli sínum að Hlíðarenda
í gær með því að keyra yfir andstæðinga sína í byrjun leiks.
Eftir aðeins átta sekúndna leik hafði Pétur Georg Markan
komið Val yfir þegar hann nýtti hraða sinn og refsaði
Eyjamönnum fyrir fyrstu mistök þeirra í leiknum.
Á níundu mínútu hafði Ólafur Páll Snorrason aukið
forystu Vals í 2-0 en yfirburðir Valsmanna í fyrri
hálfleik voru mjög miklir og þá sérstaklega fyrsta
hálftímann þegar aðeins eitt lið var á vellinum.
Valsmenn hefðu hæglega getað skorað fleiri
mörk á þeim tíma en hittu ekki markið.
Willum Þór Þórsson þjálfari Vals er á Englandi
á þjálfaranámskeiði og var eins og fjarvera
þjálfarans færði leikmönnum Vals aukið
frelsi á vellinum en Þorgrímur Þráinsson stýrði
liðinu í fjarveru Willums.
„Stundum koma tímabil í fótbolta þar sem, eins og
góður listamaður segir, menn eru í flæði og muna ekki
stundina og ég held að Pétur Georg muni ekki markið
sem hann skoraði, honum leið svo vel á vellinum,“
sagði Þorgrímur eftir leikinn og bætti við.
„Þegar mönnum líður vel innan vallar þá gerast góðir
hlutir og ég held að mönnum hafa liðið vel í leiknum.
Menn höfðu frelsi til að hlaupa út úr stöðum og hreyfðu sig
vel án bolta og það er alltaf erfitt að spila gegn liðum sem leika
þannig.“
Eyjamenn voru meira með boltann eftir hlé en náðu ekki að skapa
sér afgerandi marktækifæri þó nokkrum sinnum hafi munað mjóu.
„Það var gott að setja tvö mörk í upphafi. Eyjamenn eru mjög
öflugir eins og sást í seinni hálfleik þegar þeir voru dýrvitlausir. Við
vitum að 2-0 forysta er ekki mikið og það þarf ekki nema eitt slys
til að allt fari í baklás, en mér fannst við spila þétt og öflugt í síðari
hálfleik og halda fengnum hlut,“ sagði Þorgrímur.
„Við höfum haldið hreinu í nokkra leiki í röð og nú þurfum við að
blómstra aðeins betur fram á við og þá er þetta komið.“
„Það er gaman að vera falin einhver ábyrgð og standa undir press-
unni en þetta er fyrst og fremst sigur strákanna,“ sagði Þorgrímur
að lokum. -gmi
PEPSI-DEILD KARLA: VALSMENN UNNU 2-0 SIGUR GEGN NÝLIÐUM ÍBV Á VODAFONE-VELLINUM Í GÆRKVÖLDI
Frábær byrjun dugði Valsmönnum til sigurs
FÓTBOLTI Blikar eru komnir á
beinu brautina eftir flottan sigur
á nágrönnum sínum í Stjörnunni í
Pepsi-deildinni í gærkvöldi. Leik-
urinn var vel leikinn af beggja
hálfu en Blikarnir ívið sterkari og
áttu sigurinn skilinn þó svo hann
hafi verið afar tæpur.
Gestirnir úr Garðabæ byrjuðu
leikinn betur og stýrðu umferð-
inni framan af. Þeim gekk þó illa
að skapa sér opin færi en hefðu
að ósekju mátt skjóta meira fyrir
utan enda virkaði Ingvar Kale
taugaóstyrkur í markinu. Blik-
arnir unnu sig hægt og bítandi
inn í leikinn. Klipptu sinn gamla
félaga, Steinþór Frey, út úr leikn-
um og með Arnar Grétarsson og
Guðmund Kristjánsson sterka
á miðjunni tóku þeir völdin af
Stjörnumönnum. Heimaliðinu
gekk þó ekkert mikið betur að fá
opin færi en gestunum en varnir
beggja liða stóðu vaktina afar vel
í fyrri hálfleik.
Sýning í seinni hálfleik
Það var skammt liðið á seinni
hálfleik þegar gestirnir náðu
forystunni. Bjarni Þórður varði
skalla frá Alfreð, negldi boltan-
um fram þar sem Finnur Orri
hitti hann ekki. Arnar Már slapp
fyrir vikið einn í gegn og skoraði
með því að setja boltann í stöng-
ina og inn. Skelfileg mistök hjá
Finni Orra en smekklega gert að
sama skapi hjá Arnari Má. Hans
sjöunda mark í sumar .
Ég fullyrði að enginn leikmað-
ur hefur þurft að afreka annað
eins og Arnar til þess að komast í
byrjunarlið í íslenska boltanum en
þetta var aðeins í annað sinn sem
hann er í byrjunarliðinu í sumar.
Aðeins tíu mínútum síðar skor-
aði Alfreð Finnbogason eitt af
mörkum sumarsins. Tók frákast
fyrir utan teig og var ekkert að
tvínóna við hlutina heldur þrumaði
knettinum í nærskeytin. Algjör-
lega óverjandi.
„Menn eru eitthvað að tala um
að ég sé einhver potari. Ég þurfti
að afsanna það. Ég smellhitti hann
og það var ákaflega ljúft að sjá
boltann í netinu,“ sagði Alfreð um
markið.
Blikar voru ekki hættir því
Kristinn Steindórsson kom
þeim síðan yfir eftir klaufaskap
Stjörnu-manna. Aftur klikkaði
hreinsun úr teignum, boltinn fór
beint í fætur Kristins sem var
ekkert sérstaklega vel staðsettur
en sá að Bjarni stóð framarlega í
markinu. Hann lét vaða og smell-
hitti boltann sem sigldi glæsilega
upp í fjærhornið.
Stjörnumenn seldu sig dýrt
undir lokin, sóttu grimmt og freist-
uðu þess að jafna. Næst því komst
Steinþór er hann átti skot í slána.
Blikar horfa upp á við
„Þetta var ákaflega ljúft. Það er
ekki hægt að neita því. Ekkert
betra en að lenda undir og koma til
baka. Við vissum að við yrðum að
vinna þennan leik ef við ætluðum
að blanda okkur í efri hlutann sem
við ætlum okkur svo sannarlega,“
sagði Alfreð Finnbogason Bliki.
Bjarni Jóhannsson, þjálfari
Stjörnunnar, var svekktur eftir
leik.
„Þetta var jafn leikur og sig-
urinn hefði getað lent hjá báðum
liðum. Við föllum allt of mikið til
baka eftir að við skorum en komum
úr skelinni aftur en það gekk ekki
því miður,“ sagði Bjarni.
Breiðablik komst upp um eitt
sæti með sigrinum, í það sjöunda,
en Stjarnan er sem fyrr í öðru
sæti deildarinnar nú fimm stigum
á eftir toppliði FH.
henry@frettabladid.is
Sannkölluð sýning í síðari hálfleik
Nágrannaliðin Breiðablik og Stjarnan gáfu áhorfendum peninganna virði með mikilli skemmtun í síðari
hálfleik á Kópavogsvelli í gærkvöldi. Eftir að hafa lent undir komu Blikar til baka og sigruðu leikinn, 2-1,
með glæsimörkum Alfreðs Finnbogasonar og Kristins Steindórssonar. Stjarnan nú fimm stigum á eftir FH.
MARKASKORARI Alfreð Finnbogason skor-
aði fyrra mark Breiðabliks í gærkvöld en
hann hefur verið iðinn við kolann í upp-
hafi móts og er kominn með sex mörk.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R