Fréttablaðið - 23.06.2009, Blaðsíða 30
26 23. júní 2009 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. Listastefna, 6. tvíhljóði, 8. tækifæri,
9. smáskilaboð, 11. ónefndur, 12.
vegna, 14. nirfill, 16. í röð, 17. struns,
18. í viðbót, 20. gjaldmiðill, 21. tútta.
LÓÐRÉTT
1. sitjandi, 3. skammstöfun, 4. land
í Evrópu, 5. tálbeita, 7. umhirða, 10.
skjön, 13. dvelja, 15. listi, 16. skraf,
19. mun.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. dada, 6. au, 8. lag, 9. sms,
11. nn, 12. sökum, 14. nánös, 16. mn,
17. ark, 18. auk, 20. kr, 21. snuð.
LÓÐRÉTT: 1. rass, 3. al, 4. danmörk,
5. agn, 7. umönnun, 10. ská, 13. una,
15. skrá, 16. mas, 19. ku.
„Þetta er skemmtilegasta verkefni
sem ég hef tekið að mér,“ segir
Sólmundur Hólm Sólmundarson,
blaðamaður og eftirherma, sem
nú fæst við að rita endurminning-
ar Gylfa Ægissonar tón- og mynd-
listarmanns. Sólmundur, sem vann
eftirminnilega eftirhermukeppni
sem Logi Bergmann gekkst fyrir
á sínum tíma, hefur fengist við
að koma fram á skemmtunum og
hermir eftir ýmsum: „Ég er með
helling. Gömlu sem hafa fylgt
mér lengi eru Pálmi [Gunnars-
son], Olsen-bræður, Shaggy ... gull-
in mín. Sé reyndar fram á að Sig-
mundur Davíð verði einn af þeim.
Svo er það Jónas Kristjánsson
en ég hermi nú helst eftir honum
fyrir kollegana. Já, og svo auðvitað
Gylfi – sem er algert eftirlæti mitt
og áhorfenda.“
Sólmundur, sem hefur á sínum
blaðamannsferli ritað ýmsar
fréttir af Gylfa („já, það hefur
aldrei þurft að pína mig til að
hringja í hann,“) segir þetta
verkefni hafa orðið nánast fyrir
tilviljun. „Gylfi hringdi í mig út
af öðru og ég fór að spyrja hann
hvort hann væri ekki farinn að
skrifa ævisögu sína. Hann sagði
svo ekki vera en spurði hvort
ég vildi bara ekki taka þetta að
mér. Ég hélt það nú enda mikill
aðdáandi Gylfa eins og flestir
sem einhver samskipti við hann
eiga.“ Þeir félagar hafa nú hist
margoft og talað mikið saman í
síma. Sólmundur hefur stúderað
Gylfa úr fjarlægð en nú, eftir að
svo mikil kynni tókust með þeim
félögum, segir Sólmundur eitt
og annað hafa komið sér á óvart.
„Gylfi er miklu dýpri persóna en
ég hélt hann væri. Hann er ekki
bara sjúddírarírei þó ekkert orð
lýsi manninum betur. Hann er eitt
stórt sjúddírarírei.“
Sólmundur vonar að bókin verði
tilbúin í haust að því gefnu að
þeir séu báðir sáttir. „Það þarf að
gera þetta vel enda mörg fyllerí
og hjónabönd sem þarf að dekka,“
segir Sólmundur og er þakklátur
Gylfa fyrir að treysta sér fyrir
þessu mikla og þarfa verki. Eng-
inn útgefandi er enn inni í mynd-
inni en Sólmundur býst við að
þeir stökkvi á þennan gullmola.
„Gylfi selur, við sjáum það bara
best á disknum sem Papar voru
að gefa út með lögum hans. Ann-
ars er ég ekki í þessu út af pen-
ingunum. Samveran með Gylfa er
ómetanleg og svo kem ég til með
að ná honum þúsund sinnum betur
eftir þetta.“ Verkefnið leggst vel í
sjálfan Gylfa sem og nafn bókar-
höfundar: „Í sól og sumaryl. Þetta
verður fínt samstarf. Ég legg öll
spil á borðið og hlífi mér hvergi
ekki frekar en vanalega. En ég
vil ekki særa neinn. Ef við fáum
eitthvað fyrir bókina vil ég ekki
eyða því öllu í lögfræðinga. En
þær eru margar sögurnar,“ segir
Gylfi Ægisson. jakob@frettabladid.is
SÓLMUNDUR HÓLM: RITAR ÆVISÖGU GYLFA ÆGISSONAR
Féll fyrir viðfangsefninu
GYLFI OG SÓLMUNDUR Bókin kemur væntanlega út fyrir jól en þó ekki fyrr en báðir eru sáttir enda mörg fylleríin og hjónaböndin
sem þarf að dekka. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Akkúrat núna er ég að hlusta
á The William Blakes, ég sá þá
spila á tónleikum í Árósum fyrir
nokkru og þeir hafa verið uppá-
haldið mitt síðan þá. Hljóm-
sveitin Bárujárn er svo nýja
uppáhalds íslenska hljómsveitin
mín þessa dagana.“
Hanna Björk Valsdóttir, framleiðandi
Draumalandsins
„Já, það er rétt. Það var brotist inn
aðfaranótt sunnudags,“ segir Egill
Örn Jóhannsson framkvæmda-
stjóri Forlagsins.
Hann hlýtur að hafa verið menn-
ingarlega þenkjandi maðurinn sem
braust inn í bókaútgáfuna Forlagið
snemma að morgni sunnudags.
Egill telur líklegt að hann hafi
viljað ná sér í spennandi bók um
hrunið eða góða kilju fyrir háttinn.
En þegar þjófavarnakerfið gall
við þá lét hann sig hverfa og var
svo gripinn af lögreglu, sem brást
skjótt við, fljótlega í kjölfarið. Var
hann þá tómhentur og Egill sakn-
ar einskis. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins var maðurinn í svo
annarlegu ástandi að fyrst eftir að
lögreglan hafði hendur í hári hans
stóð hún í þeirri meiningu að inn-
brotsþjófurinn væri finnskur.
„Þetta gerðist í kjölfar mik-
illar sumargleði Forlagsins sem
var hér á laugardagskvöld. Gleðin
var mikil. Höfundum var boðið og
héldu menn fyrst að einhver hefði
snúið til baka til að halda gleðinni
áfram,“ segir Egill Örn furðu létt-
ur í bragði miðað við að hafa orðið
fyrir því, í hinu rólega hverfi þar
sem Forlagið er við Bræðraborg-
arstíg, að fá í heimsókn þennan
óboðna gest. - jbg
Bókhneigður innbrotsþjófur
EGILL ÖRN Eftir sumarfögnuð í húsa-
kynnum Forlagsins mætti menningar-
sinnaður innbrotsþjófur í svo annarlegu
ástandi að lögreglan hélt að hann væri
finnskur. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Sigrún Stefánsdóttir, dagskrár-
stjóri Rásar 2, kynnti
fyrir skemmstu
breytingar á morg-
undagskrá Rásar
1 og 2. Þannig
færðist Morgunvaktin
af Rás 1 yfir á Rás 2 og
heyrir undir fréttastjór-
ann Óðinn Jónsson.
Lára Ómarsdóttir
og Freyr Eyjólfsson
tóku við af Hrafnhildi
Halldórsdóttur og
Guðrúnu Gunnars-
dóttur sem færðar
voru til annarra starfa.
Morgunblaðið gerði
sér mat úr þess-
um tilfærslum
í Staksteinum
og taldi víst
að þarna
væru duldar sparnaðaraðgerðir á
ferðinni. Svo mun þó ekki vera,
enda missir enginn vinnuna.
Ástæðan mun einfaldlega vera sú
að yfirmenn í Efstaleiti vilja bregð-
ast við sífellt minnkandi hlustun
á stöðina sem að sögn kunnugra
hefur fallið um tíu prósent á einu
ári. Fækkun hlustenda Rásar 2 er
aðallega í yngri aldurshópum sem
þykir ekki gott til langframa. Nokkur
titringur hefur verið hjá útvarpsfólki
eftir þessar aðgerðir enda búast fáir
við að þeim sé lokið.
Fréttablaðið greindi frá því hér á
þessum stað að þríeykið Sveppi,
Auddi og Eiddi [Eiður Smári
Guðjónsen] hefði farið í mikla reisu
til USA, sannkallaða stjörnuferð,
og voru John Terry og fleiri kappar
með í för. Eitthvað lentu þeir félag-
ar í vandræðum á heimleiðinni
því einn þeirra, Andri Sigþórsson,
fyrrverandi knattspyrnukappi, tap-
aði vegabréfinu sínu.
Eiður mun hafa leyst
úr þeim vandræðum
og komst einhvern
veginn hjá þeim
farartálma með því
að panta einka-
flugvél sem ferjaði
þá félaga heim
á leið. Icelandair
varð af því að hafa
þessa skemmtilegu
farþega með í sinni
vél. - hdm, jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Þetta er auglýsing fyrir LG. Sem
er alþjóðlegt fyrirtæki. Þeir fram-
leiða meðal annars síma og þetta
er sjónvarpsauglýsing fyrir nýjan
háþróaðan síma. Míní-bíómynd
sem fjallar um það þegar frum-
maðurinn kemst í snertingu við
hátæknina,“ segir Einar Sveinn
Þórðarson hjá Pegasus.
Um helgina síðustu var hér töku-
lið frá frönskum framleiðanda
sem var að taka upp sjónvarps-
auglýsingu fyrir stórfyrirtækið
LG. Pegasus var framleiðandi hér
á Íslandi. Að sögn Einars Sveins
komu fjölmargir Íslendingar að
málum, meðal annars tíu manna
hópur leikara og dansara sem
brugðu sér í líki frummannsins.
Leikararnir Ólafur Darri og Atli
Rafn léku frummenn. Að sögn
Ólafs Darra má hann ekkert tjá sig
um auglýsinguna vegna ákvæða í
samningi sem hann skrifaði undir.
Þá voru hér hvorki meira né minna
en átta gervasérfræðingar og með
þeim starfaði gervamaðurinn Stef-
án Jörgen – einn fremsti gervasér-
fræðingur landsins.
Einar Sveinn vill ekki nefna
neinar kostnaðartölur en segir
þó fyrirliggjandi að þetta hafi
verið umfangsmikil framleiðsla.
Og kærkomnar gjaldeyristekjur.
„Leikstjóri auglýsingarinnar er
Zavier Mairess, sem er vinsæll
auglýsingaleikstjóri frá Belgíu,“
segir Einar Sveinn. Ekki er vitað
hvenær auglýsingin verður sýnd.
- jbg
Léku frummenn í alþjóðlegri auglýsingu
ÓLAFUR DARRI OG ATLI RAFN SEM FRUMMENN Auglýsingin fjallar um það þegar
frummaðurinn kemst í snertingu við hátæknina.
PARKET
TILBOÐ
Rafmagnspottar og hitaveituskeljar
Í MIKLU ÚRVALI.
VERÐ FRÁ 198.000,-