Fréttablaðið - 11.07.2009, Page 1
HELGARÚTGÁFA
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI11. júlí 2009 — 163. tölublað — 9. árgangur
Þjóðin sem á að
vera kínversk
STJÓRNMÁL 16
GRASAFERÐ 18
TVÖ SÉRBLÖÐ Í DAG
fréttir
fylgja
Fréttablaðinu
í dag
INNI OG ÚTI
Rólað í
garðinum
inni&úti
LAUGARDAGUR 11.
JÚLÍ 2009 Sumarblað Frétta
blaðsins
● LIST
EGIÐ AÐ KREPPUN
NI
GAMAN Í GARÐINUM
Fyrirtækið Jiande C
henyi Leisure
Products hannar sk
ondnar rólur.
SÍÐA 5
TÍMABÆRT AÐ SNYR
TA
Sumarið er tilvalinn
tími til að
snyrta og klippa run
na.
SÍÐA 4
VIÐTAL 14
Notar íslensk grös
og kínverskar nála-
stungur
HEFUR FUNDIÐ SINN STAÐ Í LÍFINU
Björk Guðmundsdóttir um nýju
röddina og draumastaðinn Púertó Ríkó
Í fullum
gangi
TÓNLIST
TÖLVULEIKIR
DVD MYNDIR
SVÍVIRÐILEGA EIN-
FALDAR LAUSNIR
Paul Bennett er í
sinni fjórðu
Íslandsheimsókn
VIÐTAL 10
BRUNI Engar úrbætur að ráði voru
gerðar á Hótel Valhöll eftir að svört
skýrsla um ástand hússins var birt
árið 2006. Þar kom fram að töluvert
skorti á að húsið uppfyllti kröfur
um brunavarnir. Hótelið brann til
kaldra kola í gær.
„Það kemur fram í skýrslunni að
þetta er slysagildra þannig að fyrst
eldur varð laus var ég ekki hissa
á þessum endalokum,“ segir Þor-
steinn Gunnarsson arkitekt, annar
tveggja sem unnu skýrsluna.
Eldur varð laus í Hótel Valhöll á
fimmta tímanum í gær. Flest bend-
ir til þess að eldsupptök hafi verið í
reykháf í eldhúsi, segir Úlfar Þóris-
son, sem tók við rekstri hótelsins í
maí síðastliðnum.
Einn starfsmanna hótelsins
þurfti aðhlynningu vegna reyk-
eitrunar, og var hann fluttur á
Landspítalann í Reykjavík. Aðra
sakaði ekki í brunanum.
„Þetta gerðist allt mjög hratt
og húsið fylltist fljótlega af reyk,“
segir Úlfar. Hann segir húsið
hafa verið rýmt um leið og eldur-
inn kviknaði. Fáir voru á hótelinu
þegar eldurinn kviknaði, en til stóð
að slá upp grillveislu um kvöldið og
halda tónleika.
Húsið var alelda þegar slökkvi-
liðsmenn frá Brunavörnum Árnes-
sýslu komu á staðinn.
Þeir börðust við eldinn ásamt
slökkviliðs mönnum frá höfuð-
borgar svæðinu, en fengu lítið við
eldinn ráðið.
Húsið er mikið skemmt og talið
ónýtt. Slökkviliðsmenn unnu fram
eftir kvöldi við að slökkva glæður,
og til stóð að halda vakt við húsið í
nótt. - bj, vsp / sjá síðu 4
Eyðileggingin algjör
Hótel Valhöll á Þingvöllum fór illa í eldsvoða í gær og er talið ónýtt. Ekki var
brugðist við skýrslu frá árinu 2006 sem sagði brunavörnum ábótavant. Ég er
ekki hissa á þessum endalokum segir annar höfunda svartrar skýrslu.
GRÍÐARLEGT ELDHAF Eldur varð laus í húsinu síðdegis í gær og varð húsið alelda á um hálfri klukkustund. Mildi þykir að enginn skyldi slasast alvarlega í brunanum
en húsið var rýmt strax eftir að eldsins varð vart. Slökkviliðsmenn fengu lítt við ráðið og brann hótelið nánast alveg til grunna.
FRÉTTABLAÐIÐ / DÍANA MIKAELSDÓTTIR
BRUNNIÐ TIL GRUNNA Ekkert eftir nema
af hinu fornfræga hóteli nema rústir
einar. FRÉTTABLAÐIÐ / ARNÞÓR
Hótel Valhöll var byggt árið 1898.
Upphaflega var það bárujárnsklætt
timburhús með 136 fermetra
grunnflöt. Árið 1929 var það flutt
á þann stað þar sem það stóð til
loka. Þá var hafist handa við að
byggja við það fyrir Alþingishátíð-
ina 1930. Byggt var eftir teikning-
um Guðjóns Samúelssonar. Húsið
hefur verið í eigu ríkisins frá árinu
2002. - vsp